Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, hefur verið send í leyfi á meðan farið verður í úttekt á stjórnunarháttum í skólanum. Tæp þrjú ár eru síðan hún lét af störfum sem skólastjóri Hvassaleitisskóla eftir að fjölmargir kennarar og starfsmenn skólans undirrituðu yfirlýsingu, þar sem þeir lýstu yfir vantrausti á hendur henni. 13.11.2025 15:00
Bera ábyrgð á þjófnaði gámsins en sleppa með skrekkinn Gámaflutningar ehf. hafa verið sýknaðir af kröfum Landslagna ehf., sem lentu í því í fyrra að gámur í eigu félagsins var fluttur án heimildar á Hólmsheiði, þar sem hann fannst tómur. Gámaflutningar voru taldir ábyrgir fyrir þjófnaðinum en Landslagnir voru ekki taldar hafa fært sönnur á tjón sitt. 13.11.2025 14:22
Fæstir hlynntir veru Rúv á auglýsingamarkaði Aðeins 27 prósent svarenda nýrrar könnunnar segjast hlynnt því að Ríkisútvarpið sé á auglýsingamarkaði. 36 prósent svarenda segjast ekki hafa skoðun á málinu og 38 prósent segjast andvíg veru Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. 13.11.2025 12:08
Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör Gengi hlutabréfa í Alvotech lækkaði um tæplega tíu prósent í fyrstu viðskiptum eftir að félagið birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung í gærkvöldi. Það sem af er degi hefur gengið lægst farið í 634 krónur, sem er það lægsta frá upphafi. 13.11.2025 10:11
Hæstiréttur hafnaði kröfum hópnauðgara Hæstiréttur hefur staðfest þriggja ára fangelsisdóma þeirra Ásbjörns Þórarins Sigurðssonar og Bessa Karlssonar fyrir hópnauðgun. Þeir kröfðust þess að dómur Landsréttar yrði ógiltur þar sem konan sem þeir nauðguðu hefði gefið skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað. 12.11.2025 16:52
Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, hefur birt skýrslu sína eftir úttekt á framleiðslu Alvotech í tengslum við umsókn félagsins um markaðsleyfi fyrir lyf, sem var hafnað á dögunum. Ábendingar stofnunarinnar eru tíu talsins og allar í nokkrum liðum. Meðal þess sem stofnunin setur út á eru klístruð gólf og mygla í verksmiðju Alvotech að Sæmundargötu í Vatnsmýri. 12.11.2025 15:25
Leiðbeinandinn ákærður fyrir að nauðga einu barni tvisvar Starfsmaður leikskólans Múlaborgar sætir ákæru fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn einu barni í tveimur aðskildum tilvikum. Greint hefur verið frá því að hann hafi verið grunaður um brot gegn fleiri en tíu börnum. 12.11.2025 14:46
Dómsmál á hendur starfsmanni Múlaborgar hafið Ákæra á hendur starfsmanni leikskólans Múlaborgar, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn börnum á leikskólanum, var þingfest í morgun. Afstaða hans til sakargiftanna liggur ekki fyrir. Þá liggur efni ákærunnar ekki fyrir að svo stöddu. 12.11.2025 13:39
Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Niðurstöður nýrrar könnunnar Seðlabanka Íslands um væntingar markaðsaðila um verðbólgu og vexti sýna fram á litlar breytingar. Hins vegar hækkaði hlutfall svarenda sem taldi taumhald peningastefnunnar vera of þétt og var 83 prósent samanborið við 43 prósent í síðustu könnun í ágúst. Markaðurinn býst þó ekki við því að peningastefnunefnd Seðlabankans lækki stýrivexti þegar hún tilkynnir næstu vaxtaákvörðun þann 19. nóvember. 12.11.2025 10:49
„Jafnvel Kringvarpið í Færeyjum flytur fréttir á ensku“ Formaður Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir tillögu þingmanns Miðflokksins um að Ríkisútvarpið láti af fréttaflutningi á ensku og pólsku. „Meira að segja Kringvarpið í Færeyjum flytur fréttir á ensku,“ segir hún og bætir við að hún furði sig á því að tillögunni hafi ekki fylgt önnur um að hætta útsendingum í lit. 11.11.2025 16:56