Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Árni Sæberg skrifar 1. september 2026 13:18 Vel á annað hundrað kom saman í morgun. Stjórnendur allra frístundaheimila og félagsmiðstöðva Reykjavíkurborgar komu saman og lögðu blóm og kerti við Ráðhúsið í morgun til þess að minnast frístundamiðstöðvanna.
Valgeir Þór Jakobsson, varaformaður fagdeildar Frítímans, segir í samtali við Vísi að tilgangur samstöðufundarins hafi verið að ræða aðgerðir borgarinnar, sem fela í sér lokun og niðurfellingu allra frístundamiðstöðva í borginni. Vilja sæti við borðið „Nú eru þessar frístundamiðstöðvar ekki til sem heild og því fara frístundaheimili í rauninni miðlægt beint undir Reykjavíkurborg og verða mikið eyland og missa allan faglegan bakstuðning. Við vorum í raun og veru að koma saman bæði til þess að vekja athygli á hvaða áhrif þetta hefur beint á grunnþjónustuna og til þess að svara borgarstjórnarmeirihlutanum, af því það er þeirra sýndarpólitík að fela niðurskurðinn á bak við aukna þjónustu, sem enginn fagmaður á gólfinu telur rétt.“ Niðurskorið veganesti til framtíðar er meðal þess sem lagt var við Ráðhúsið.Vísir/Berghildur Þá hafi stjórnendurnir kallað eftir því að fá sæti við borðið og samtali við borgaryfirvöld um áframhaldið. „Það eru ótrúlega margir hlutir sem liggja í lausu lofti fyrir okkar starfsvettvang og okkar fagsvið eftir þessar breytingar, sem enginn hefur gert grein fyrir ennþá.“ Svekkelsi og reiði Þá segir hann að mikil samstaða hafi verið meðal þeirra rúmlega 150 sem mættu á fundinn. Mikill fjöldi mætti á samstöðufundinn. „Í rauninni er fólk bara svekkt og reitt út í borgarstjórnina fyrir skilningsleysi og lítillækkun á okkar starfsstétt. Með þessari ákvörðun er verið að þurrka út frístundamódel sem er búið að vera í 25 ár í uppbyggingu og faglegri þróun. Og því var breytt með einu pennastriki eftir tveggja mánaða undirbúning skipulagsbreytinganefndar. Og við erum í rauninni að tala fyrir því að það var aldrei rætt við fagfólkið við undirbúning þessarar ákvörðunar.
Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Deildarstjóri sem sagt var upp eftir tæplega tuttugu ára starf hjá Reykjavíkurborg óttast að verkefni hennar verði færð yfir á starfsfólk sem þegar sé störfum hlaðið. Forstöðumaður frístundaheimilis segir þjónustuna geta versnað verði það raunin. 28. ágúst 2026 23:31 Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Aðstoðarforstöðukona frístundaheimilisins Regnbogans í Breiðholti harmar breytingar á skipuriti Reykjavíkurborgar sem leiddu til tæplega níutíu uppsagna. Hún spyr hvort það sé í lagi að betra Excel-skjal sé á kostnað barnanna. 28. ágúst 2026 16:30 Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira
Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Deildarstjóri sem sagt var upp eftir tæplega tuttugu ára starf hjá Reykjavíkurborg óttast að verkefni hennar verði færð yfir á starfsfólk sem þegar sé störfum hlaðið. Forstöðumaður frístundaheimilis segir þjónustuna geta versnað verði það raunin. 28. ágúst 2026 23:31
Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Aðstoðarforstöðukona frístundaheimilisins Regnbogans í Breiðholti harmar breytingar á skipuriti Reykjavíkurborgar sem leiddu til tæplega níutíu uppsagna. Hún spyr hvort það sé í lagi að betra Excel-skjal sé á kostnað barnanna. 28. ágúst 2026 16:30