Valur

Valur

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Val frá Reykjavík.

Fréttamynd

Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val

Tveir leikir voru á dagskrá í lokaumferð neðri hluta Bestu deildar kvenna í gær þar sem þrjú lið börðust um að forðast tvö fallsæti. Þór/KA hélt sér uppi með sigri í Víkinni og felldi þar með Víking og Val.

Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Maður upp­sker eins og maður sáir“

Þrátt fyrir 2-1 sigur gegn Fram í lokaumferð Bestu deildar kvenna dugði niðurstaðan ekki til og Valur er fallið niður um deild. Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, segir fallið afar sárt.

Sport
Fréttamynd

Upp­gjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn

Valskonur eru fallnar úr efstu deild kvenna í fótbolta í fyrsta sinn í sögunni. Sigur liðsins gegn Fram í lokaumferð Bestu deildarinnar í kvöld dugði ekki til að bjarga sæti liðsins þar sem að Þór/KA vann á sama tíma Víking Reykjavík í Fossvoginum og sendi þar með bæði Val og Víking Reykjavík niður í Lengjudeildina.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ég hef miklar á­hyggjur af Valsstelpunum“

„Þær eru búnar að missa rosalega mikið,“ segir Helena Sverrisdóttir um lið Vals sem í kvöld byrjar nýja leiktíð í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Sérfræðingar Körfuboltakvölds óttast dimman vetur á Hlíðarenda.

Körfubolti
Fréttamynd

„Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“

„Ég held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld. Þetta er frábært handboltalið, spilar frábæran handbolta og er mjög rútínerað. Að vinna svona lið með ellefu mörkum er ekkert grín,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, eftir sigur á heimavelli í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í Evrópudeildinni. Danska liðið Mors-Thy lá í valnum í kvöld, en um er að ræða lið sem endaði í fjórða sæti á síðasta tímabili í dönsku úrvalsdeildinni. Lokatölur 39-28 fyrir Val.

Handbolti
Fréttamynd

Nafnarnir í KA sáu um Val

Víkingar unnu frábæran sigur á Þór í Olís-deild karla í Safamýrinni í kvöld. Lokatölur 36-31 en Þórsarar voru 19-17 yfir í hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi

Valur er enn á lífi í Bestu deild kvenna eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Víkinga sem eru einnig í harðri fallbaráttu. Taugatrekkjandi síðari hálfleikur sem einkenndist af fáum markverðum atvikum tryggði það að liðin skyldu jöfn sem þýðir að þrjú lið, Valur, Víkingur og Þór/KA, munu berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deildinni næsta föstudag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Mattías Kjeld valdi KR

Mattías Kjeld hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bestu deildar lið KR og gengur í raðir félagsins frá Gróttu eftir að hafa heillað í Lengjudeildinni á nýafstöðnu tímabili.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Hversu mikil pressa var á honum?“

Framherjinn Dagur Orri Garðarsson spilar líklega ekki mikið lengur hér á landi þó að ekkert hafi orðið af því að hann yrði seldur frá Val til Slóveníu í síðustu viku. Sérfræðingar Stúkunnar segja hann verðskulda að komast út í atvinnumennsku.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Valur rétti af skelfi­lega byrjun

Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Vals í handbolta kvenna fengu skell í fyrstu umferð Olís deildarinnar þegar liðið tapaði fyrir Selfossi. Liðið tók á móti ÍBV í annarri umferð deildarinnar og náði í kærkominn sigur.

Handbolti