Látinn laus og óvíst með framhaldið Karlmaður af erlendum uppruna sem var með óspektir á þingpöllum Alþingis síðdegis í gær verður leystur úr haldi í dag að loknum yfirheyrslum. Innlent 5. mars 2024 16:01
Þingpallarnir opnir eins og aðra daga Skrifstofustjóri Alþingis segir þingpallana opna á Alþingi í dag eins og kveðið sé á um í stjórnarskránni þrátt fyrir óþægilegt atvik síðdegis í gær. Þá þurfti að fjarlægja hælisleitendur af pöllunum sem trufluðu þingstörf. Innlent 5. mars 2024 14:38
Foreldrar ungra reykvískra barna geta nú spáð fyrir um stöðuna á biðlistum Reykjavíkurborg hefur hleypt af stokkunum sérstökum Leikskólareikni sem ætlað er að sýna stöðu umsókna í leikskóla borgarinnar og geti foreldrar þannig fengið áætlaða spá um stöðu barna sinna á biðlista. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir gott að fá fram reikninn sem sýni þó jafnframt fram á þá alvarlegu stöðu sem uppi sé í leikskólamálum. Innlent 5. mars 2024 14:29
Leita að parísarhjólsstjóra Reykjavíkurborg leitar að samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Þetta kemur fram á vef borgarinnar. Innlent 5. mars 2024 14:06
Ekkert að frétta úr miðbæ Kópavogs Í að verða sex ár, hafa íbúar í miðbæ Kópavogs og margir aðrir íbúar í bænum beðið eftir fréttum af væntanlegum framkvæmdum á Fannborgarreitnum í hjarta bæjarins. Skoðun 5. mars 2024 14:00
Bergþór stríðir Samfylkingunni Samfylkingin styður markmið útlendingafrumvarpsins sem er til umræðu á Alþingi og dómsmálaráðherra fagnar stefnubreytingu flokksins. Þingflokkur Vinstri Grænna gerir ýmsa fyrirvara við málið. Innlent 5. mars 2024 13:31
Náðu 72 yfir landamærin en 13 á upphaflegum lista stjórnvalda enn fastir á Gasa Sjötíu og tveimur Palestínumönnum, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi, var bjargað út af Gasasvæðinu í kjölfar símafundar utanríkisráðherra við ísraelskan kollega sinn síðastliðinn þriðjudag. Utanríkisráðherra segir að drjúgur meirihluti dvalarleyfishafa á Gasa hafi fengið samþykki fyrir því að fara yfir landamærin, en þó ekki allir því þrettán sem eru á upphaflegum lista stjórnvalda eru eftir á Gasa samkvæmt upplýsingum fá utanríkisráðuneytinu. Íslenskir sjálfboðaliðar eru staðráðnir í að sækja þá sem eftir eru. Innlent 5. mars 2024 12:28
Sveitarfélögin tali skýrt um gjaldskrárlækkanir og fríar skólamáltíðir Ekki verður skrifað undir nýja kjarasamninga nema sveitarfélögin leggi skýrt fram til hvaða aðgerða þau eru reiðubúin að grípa til að tryggja frið á vinnumarkaði næstu fjögur árin, að sögn formanns Starfsgreinasambandsins. Hann er hins vegar bjartsýnn á að leyst verði úr þeim ágreiningsefnum sem eftir eru í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Innlent 5. mars 2024 11:45
Fengu grænt ljós á flutning 72 dvalarleyfishafa frá Gasa Sjötíu og tveir einstaklingar frá Gasa, sem eru með dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar, komu til Kaíró í Egyptalandi seint í gærkvöldi og halda í kjölfarið til Íslands. Þetta gerist eftir að ísraelsk stjórnvöld afgreiddu fyrirliggjandi nafnalista íslenskra stjórnvalda um helgina. Innlent 5. mars 2024 08:39
Er menntakerfið okkar sprungið? Í síðustu viku heimsótti þingflokkur Viðreisnar grunnskóla og framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðurnesjum. Skoðun 5. mars 2024 08:01
Hverjir hafa verið að koma og hverjir eiga að fá að vera? Umsóknum um alþjóðlega vernd á Íslandi fjölgaði gríðarlega árin 2022 og 2023, ekki síst vegna umsókna einstaklinga frá Úkraínu og Venesúela. Ef þessi tvö ár eru tekin út fyrir sviga hafa hins vegar litlar breytingar orðið á fjölda umsókna síðustu ár. Innlent 5. mars 2024 07:17
Atkvæðagreiðsla hafin um verkfall ræstingarfólks Kjaraviðræður breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins eru að falla á tíma eftir að Efling hóf atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks í dag. Helstu hindranir eru ósamkomulag um uppsagnavernd og óvissa um hvort sveitarfélögin sættist á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Innlent 4. mars 2024 19:21
„Mér brá auðvitað við þegar þetta kom upp“ Birgir Ármansson, forseti Alþingis, segir tilefni til þess að skoða og endurmeta öryggismál á Alþingi í kjölfar atviks sem átti sér stað í dag þar sem lögregla og þingverðir þurftu að fjarlægja mann af þingpöllum Alþingis sem steig yfir handriði þeirra og öskraði að þingmönnum. Innlent 4. mars 2024 19:01
Öskraði af þingpöllunum á dómsmálaráðherra Fjarlægja þurfti karlmann af þingpöllum Alþingis seint á fjórða tímanum sem var með læti og steig yfir handriðið. Þingmenn risu úr sætum og virkaði brugðið. Innlent 4. mars 2024 16:00
Katrín loðin í svörum um forsetaframboð Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi nú rétt í þessu var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra spurð um það sérstaklega hvort hún ætlaði að gefa kost á sér í komandi forsetakosningaslag. Innlent 4. mars 2024 15:34
Ríkisstjórn Íslands og Palestína: Rangar ákvarðanir, röng skilaboð Við Íslendingar stigum mikilvægt skref þann 29. nóvember 2011 þegar við urðum fyrst vestrænna þjóða til að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Skoðun 4. mars 2024 14:30
Ævintýralega skemmtileg fýluferð til Grænlands Stefán Pálsson sagnfræðingur fór með sem viðhengi þegar vestnorræna ráðið hélt til Grænlands. Ekkert varð af fyrirhuguðum fundahöldum en Stefán hefði ekki viljað missa af ferðinni. Innlent 4. mars 2024 13:28
Frír matur í skólum og lausn eftir fæðingarorlof til umræðu Leiðtogar breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segja það ráðast af viðbrögðum sveitarfélaganna hvort hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga á næstu tveimur sólarhringum. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hefst að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Innlent 4. mars 2024 11:47
Nauðsynlegar breytingar á útlendingalögum Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum vegna hraðrar fjölgunar umsókna um alþjóðlega vernd. Umsóknum hefur fjölgað um 3700% á rúmum áratug og hafa valdið umtalsverðum kostnaði fyrir ríkið, eða um 20 milljörðum króna árið 2023, auk álags á alla okkar innviði. Skoðun 4. mars 2024 08:00
Við og þau Má maður ekki tala um útlendinga án þess að vera kallaður rasisti? Skoðun 4. mars 2024 07:00
Dómsmálaráðherra reiknar með málþófi á Alþingi Á síðustu tveimur árum hafa íslensk stjórnvöld fengið níu þúsund umsóknir frá flóttafólki um vernd hér á landi en það eru mun fleiri umsóknir en hin löndin á Norðurlöndunum hafa fengið á sama tíma. Innlent 3. mars 2024 14:30
Upplifir alls ekki að forysta VG sé ekki nógu sterk Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan í kosningum í dag. Þingflokksformaður VG telur að flokkurinn sé ekki að ná í gegn með þær áherslur og þann árangur sem náðst hefur meðan flokkurinn hefur setið við ríkisstjórnarborðið. Innlent 3. mars 2024 08:09
Ekki alveg kominn tími á Vísisfrétt á fjórða deiti Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir segist aldrei hafa pælt mikið í eigin kynhneigð og skilgreinir sig ekki sem hinsegin. Hún segir umræðuna í kringum handtöku sína á Kíkí hafa reynt mjög á fjölskyldu sína og dyraverðir á skemmtistaðnum orðið fyrir aðkasti í kjölfar málsins. Lífið 3. mars 2024 07:01
Sýni að Vinstri græn séu í tilvistarkreppu Vinstri græn mælast með 4,7 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn myndi detta af þingi yrði það niðurstaðan. Stjórnmálafræðingur segir flokkinn í tilvistarkreppu. Minna fylgi Samfylkingar milli mánaða og aukið fylgi Miðflokks megi rekja til útlendingamála. Innlent 2. mars 2024 12:07
Vinstri græn næðu ekki inn á þing Vinstri græn mælast með 4,7 prósent í nýjum Þjóðarpúlsi Gallúp. Flokkurinn myndi detta af þingi ef niðurstaðan yrði þessi í næstu Alþingiskosningum. Samfylkingin mælist áfram stærsti flokkur landsins þó fylgið dali um rúm tvö prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 1. mars 2024 19:37
„Hluti af skipulagðri hungursneyð sem er verið að búa til á svæðinu“ Fólk kom í dag saman á Austurvelli, í frosti og kulda, til knýja íslensk stjórnvöld til að hætta við ákvörðun um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). Innlent 1. mars 2024 19:30
Taka þurfi styttingu framhaldsskólans til skoðunar Mennta- og barnamálaráðherra segir koma til greina að endurskoða styttingu framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú. Þess í stað yrði grunnskólanám stytt um eitt ár. Innlent 1. mars 2024 15:47
Hildigunnur nýr veðurstofustjóri Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Hildigunni H. H. Thorsteinsson í embætti forstjóra Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára. Hún verður skipuð í embættið frá og með 1. júní næstkomandi. Innlent 1. mars 2024 12:33
Bein útsending: Nóbelsverðlaunahafi um hagfræðina á 21. öldinni Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz í dag. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, og stendur frá klukkan 12 til 13:30. Sýnt er frá viðburðinum í beinni útsendingu. Viðskipti innlent 1. mars 2024 11:15
Fyrirmyndir stækka framtíðina Stundum segir mynd – eða myndband – meira en þúsund orð. Við leggjum því til að þú horfir á myndbandið hér að neðan áður en lengra er haldið. Skoðun 1. mars 2024 08:01
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent