Íþróttaborgin Reykjavík Uppvaxtarár mín á Akranesi snerust um fátt annað en íþróttir. Aðstaðan var líka frábær á mælikvarða þess tíma. Grasvöllurinn á Merkurtúni, Jaðarsbakkar, nýlegt íþróttahús, golfvöllur, sundlaugin og auðvitað Langisandur ef annað brást. Árangur Skagamanna í íþróttum var líka eftirtektarverður. Skoðun 5. maí 2026 08:00
Af vanrækslu og myglu Fasteignir Reykjavíkurborgar hafa drabbast niður vegna skorts á viðhaldi. Við í Viðreisn höfum verið að hitta borgarbúa, starfsfólk og stjórnendur í borginni sem öll tala um að það sé óljóst hver ber ábyrgð á að taka ákvarðanir. Skoðun 5. maí 2026 07:03
Börnin sem flytja oft Á Íslandi hefur aldrei verið til heilbrigður leigumarkaður. Örugg langtímaleiga þar sem fólk getur byggt sér upp heimili og framtíð hefur staðið fáum til boða. Samt býr fjórða hvert barn á Íslandi í leiguhúsnæði og líklegt er að veruleiki þeirra margra séu tíðir flutningar með tilheyrandi róti og aðlögun að nýjum skóla. Skoðun 5. maí 2026 06:33
Frelsið til að eiga heimili Séreignarstefnan – eða áhersla á að sem flestum sé gert kleift að eiga eigið húsnæði hefur lengi verið hornsteinn í stefnu Sjálfstæðisflokksins. Séreignastefnan er frelsisstefna. Að gera launafólki kleift að búa við fjárhagslegt sjálfstæði. Skoðun 4. maí 2026 11:01
Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Það gerist ekki á hverjum degi að ríki og sveitarfélag nái saman um stórfellda uppbyggingu sem getur raunverulega breytt stöðu þúsunda fjölskyldna. Skoðun 4. maí 2026 09:31
Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Frumvarp dómsmálaráðherra um að afnema núverandi kerfi um séríslenska jafnlaunavottun og -staðfestingu fyrirtækja og stofnana var til umræðu og afgreiðslu á Alþingi liðinni viku. Skoðun 4. maí 2026 08:30
Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Við Íslendingar erum góð í að redda hlutum en við erum ekkert sérstök í því að búa til langtímaáætlanir. Okkur hefur samt af og til tekist það. Skoðun 4. maí 2026 08:17
Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Hvað á foreldri að gera þegar fæðingarorlofi lýkur en ekkert dagvistunarpláss er í boði? Og hvað ætlar borgin að gera til að mæta fjölskyldum sem lenda í þeirri stöðu? Skoðun 4. maí 2026 08:03
Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Við heyrum of oft frá foreldrum sem eru að hlaupa og skutlast á milli skóla, frístundar, æfinga og listiðkunar að kerfið vinnur ekki alltaf með þeim. Við getum gert þetta miklu betur. Skoðun 4. maí 2026 07:45
Vélarnar ræstar út í skurð „Ræsum vélarnar“ sögðu ráðherrar ríkisstjórnarinnar með stolti á kynningarfundi um nýja samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 rétt fyrir síðustu jól. Yfirlýsingar um hitt og þetta sem loksins kæmist í framkvæmd voru látnar fljúga, uppbygging væri fram undan og að nú skyldu hendur standa fram úr ermum í samgöngumálum, byrjað yrði að bora og vegir loksins lagaðir. Skoðun 2. maí 2026 12:03
Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Spurning sem snýst ekki lengur bara um laun Skoðun 2. maí 2026 09:30
Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Loftslags- og umhverfismál eru eitt allra stærsta viðfangsefni okkar tíma og það er sýn Samfylkingarinnar að taka þurfi mið af þeim við alla ákvarðanatöku borgarinnar. Loftslagsmál eru í grunninn spurning um jöfnuð. Skoðun 2. maí 2026 07:03
Langt frá hátekjulistanum Ójöfnuður er til staðar á Íslandi og hefur veruleg áhrif á líf fólks. Helmingur alls auðs er í höndum tíu prósent landsmanna. Á sama tíma búa þúsundir barna við fátækt. Þegar auður og völd safnast á hendur fárra skapast skekkja sem bitnar á samfélaginu í heild. Skoðun 1. maí 2026 14:46
Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu Við skipulag og umhverfismótun þarf að huga að mikilvægum lífsgæðum í nærumhverfi fólks. Þetta á ekki síst við um þéttingu með nýbyggingum í eldri hverfum. Skoðun 1. maí 2026 14:31
Borgin sem hætti að hlusta Húsnæðisvandinn í Reykjavík snýst ekki bara um fjölda íbúða. Hann snýst fyrst og fremst um það hvort við erum að byggja íbúðir fyrir fólk sem er til, hefur áhuga á að búa í borginni eða flytja til hennar. Búið er að skapa ástand þar sem gengið er út frá því að kerfið viti betur en íbúarnir hvernig þeir vilja búa. Skoðun 1. maí 2026 14:16
Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Við stöndum því frammi fyrir þeirri stöðu að umferðartafir í Reykjavík eru orðnar sambærilegar við Kaupmannahöfn og litlu minni en í París og London. Skoðun 30. apríl 2026 12:16
Siglunes, já eða nei? Viljum við auka aðgengi barna að sjónum og öðrum náttúruperlum borgarinnar? Viljum við að börn og ungmenni fái raunveruleg tækifæri til að kynnast hafinu, læra á það og njóta þess? Skoðun 30. apríl 2026 11:10
Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Þótt hér í Reykjavík búi til skemmri eða lengri tíma margir góðir innflytjendur, er Reykjavík í huga mínum ekki sérstök fjölmenningarborg. Fyrst og síðast er Reykjavík höfuðborg okkar Íslendinga og menning hennar skal einkennast af því. Skoðun 30. apríl 2026 11:00
Lægri vextir eru STÓRA MÁLIÐ Það hefur hingað til verið átakanlegt að horfa á stjórnmálamenn og fjármálaspekúlanta gera sig gáfulega í framan og ræða alls konar aukaatriði án þess að hafa kjark til að nefna bleika fílinn í stofunni: Íslensku krónuna, fákeppnina sem henni fylgir og vaxtastigið sem af henni leiðir. Skoðun 30. apríl 2026 10:31
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. Lífið 30. apríl 2026 07:00
Verðlagseftirlit Viðreisnar – Gamall draugur í fylgd skattalækkunar Það er fátt sem hljómar betur í eyrum almennings en þegar ríkið ákveður loksins að lækka skatta. Skoðun 29. apríl 2026 16:32
Hafnarfjörður í gíslingu þéttingarstefnu Reykjavíkur Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa vaxið mikið undanfarin ár og þar er Hafnarfjörður engin undantekning. Íbúðum hefur fjölgað og hér rísa ný hverfi með blandaðri byggð. Það hljómar allt vel en segir ekki alla söguna. Eins og staðan er nú hefur Hafnarfjörður í raun lítið annað val en að byggja upp á forsendum þéttingarstefnu þvert á vilja íbúa skv. búsetukönnunum HMS, þrátt fyrir að bærinn hafi nægt byggingarland sem hægt væri að nýta til skynsamlegs vaxtar, meira svigrúms, aukinna lífsgæða fyrir íbúa, og atvinnulíf. Skoðun 29. apríl 2026 11:02
Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmálann Umræðan fyrir komandi kosningar hefur færst frá bílastæðum yfir í að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður árið 2019 markaði það tímamót í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sameinuðust öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, leidd af ýmsum flokkum, um forgangsröðun framkvæmda enda höfuðborgarsvæðið eitt atvinnu- og búsetusvæði. Skoðun 29. apríl 2026 07:15
8. sætið „Ég hefði nú viljað sjá þig ofar á listanum“ er setning sem ég hef heyrt seinustu daga og er nú líklega gott dæmi um að hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það. Fyrir utan hvað listinn okkar er stútfullur af harðduglegu og hæfileikaríku fólki, þá er sko engin tilviljun að ég vermi áttunda sætið. Nei, nei, þetta er allt saman vel úthugsað. Skoðun 28. apríl 2026 10:53
Kópavogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá Þann 16. maí kjósum við ekki aðeins um fulltrúa til að stýra Kópavogsbæ næstu ár, heldur um stefnu, hugarfar og framtíðarsýn. Við kjósum um hvort við ætlum að sitja hjá eða taka skref fram á við. Kjörorð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi eru skýr: Kópavogur í sókn. En hvað þýðir það í raun? Skoðun 28. apríl 2026 08:31
Frelsi kvenna er ekki vandamálið Ég elskaði að ganga með börnin mín þrjú. Elskaði að hugsa um þau sem ungabörn og elskaði þann dýrmæta fjölskyldutíma sem fylgir því að eignast börn. Að sama skapi þótti mér gott, og í raun nauðsynlegt, að komast aftur út á vinnumarkaðinn, taka fullan þátt í samfélaginu að nýju samhliða því sem ég sinnti fjölskyldunni. Skoðun 27. apríl 2026 23:03
Hrein torg, fögur borg Hér áður stóð gjarnan á sorptunnum í Reykjavík „hrein torg, fögur borg“. Það eru orð að sönnu. Snyrtimennska og hreinlæti skipta öllu máli þegar kemur að upplifun á borgarlífi og virðingu fyrir því sem fyrir augu ber. Skoðun 27. apríl 2026 12:15
Fyrsta stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg Fyrsta stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg hefur litið dagsins ljós. Í fyrsta sinn setjum við fram heildstæða sýn og áætlun um stóraukna fjárfestingu í innviðum fyrir gangandi og meiri natni í þjónustu við gangandi. Skoðun 27. apríl 2026 12:02
Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Það er merkilegt hvernig sumir stjórnmálamenn tala um frelsi – svo lengi sem það er frelsi til að velja það sem þeim sjálfum þykir réttast. Skoðun 27. apríl 2026 09:33
Af hverju treystir Reykjavík ekki atvinnulífinu? Stjórnsýsla Reykjavíkurborgar virðist ekki treysta atvinnulífinu. Hún á að haga sér eins og þjónustuaðili en lætur eins og eftirlitsaðili. Skoðun 27. apríl 2026 07:01