Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Íbúaráðin góður samráðsvettvangur Í þrjú ár var ég formaður íbúaráðs Grafarvogs en þar hef ég búið í tæp fjörtíu ár. Ég gegndi því hlutverki sem fulltrúi Framsóknar. Ég vann þar með frábæru fólki úr hverfinu, fólki sem tengdist ólíkum hópum íbúa. Það lögðu sig allir fram um að vinna vel fyrir hverfið sitt, hafa augu og eyru opin og ráðið fylgdi málum hverfisins eftir eins og unnt var. Skoðun 14. apríl 2026 18:03
Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Óháðu borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir hafa lagt til að þau verði áheyrnarfulltrúar í borgarráði, umhverfis- og skipulagsráði og forsætisnefnd borgarinnar. Það hefði í för með sér að laun Kjartans myndu hækka um 868 þúsund og laun Mörtu um 578 þúsund. Innlent 14. apríl 2026 16:24
Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Ekki verður lengur boðið upp á unnar kjötvörur í skólum samkvæmt tillögu meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkurborgar sem samþykkt var nú síðdegis. Minnihlutinn kalla tillöguna forræðishyggju en meirihlutinn vísar til þess að unnar kjötvörur séu í dag flokkaðar með áfengi og tóbaki og séu krabbameinsvaldandi. Innlent 14. apríl 2026 16:01
Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Samkvæmt tillögu um lengri opnunartíma sundlauga í Reykjavík yfir sumartímann verða sundlaugar borgarinnar opnar til klukkan 22 um helgar frá 1. júní til 31. ágúst 2026. Tillagan var samþykkt á fundi menningar -og íþróttaráðs í síðustu viku. Innlent 14. apríl 2026 14:05
Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, segir að myndband sitt, þar sem hann keyrir um göngugötu í miðborg Reykjavíkur og finnur ekkert stæði, hafi kallað fram sprengju í viðbrögðum; 180 þúsund manns hafa horft á myndbandið – Ari segir að svo virðist sem fólk hafi hreinlega beðið eftir því að einhver léti sig þetta varða. Innlent 14. apríl 2026 13:35
Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Kvikmyndin The Brink of War, sem fjallar um leiðtogafundinn í Höfða 11. og 12. október 1986 á hápunkti kalda stríðsins, verður frumsýnd í ágúst en ný stikla fyrir myndina kom út í gær. Þar má sjá Reagan og Gorbatsjov lifna við á tröppum Höfða. Bíó og sjónvarp 14. apríl 2026 12:07
Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu réðst í handtökur í gær í tengslum við meintan innflutning fíkniefna til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar innflutning með gámaflutningaskipi Eimskips og var með viðbúnað á hafnarsvæði fyrirtækisins fyrri part dags í gær. Innlent 14. apríl 2026 11:19
Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Hópur lögreglumanna tók þátt í aðgerð í Skútuvogi í Reykjavík nú síðdegis. Ásmundur Rúnar Gylfason, stöðvarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að ökumanni hafi verið veitt eftirför þegar hann sinnti ekki stöðvunarskyldu. Hann hafi að lokum verið handtekinn í Skútuvogi. Innlent 13. apríl 2026 16:06
Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Í samfélagsmiðlagjörningi ekur Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, niður Austurstræti þar sem hann furðar sig á því að þar séu engin bílastæði. Austurstræti hefur verið göngugata síðan í september og því er ólöglegt að aka bíl niður götuna, sem Miðflokksmaðurinn gerir þó. Innlent 12. apríl 2026 20:43
Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Hvöss norðanátt er á Kjalarnesi og geta hviður farið yfir 35 metra á sekúndu þvert á Vesturlandsveginn næstu klukkustundir. Biðlað er til ökumanna og annarra í ferðahug á Vesturlandi að hafa varann á en þá sérstaklega þeirra sem keyra á stórum ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Veður 12. apríl 2026 11:22
Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Þótt þitt eintak af bók fari í ruslið þá glatast hún ekki að eilífu,“ segir Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, fagstjóri hjá Landsbókasafninu, sem í kjölfar umræðu um fagurbókmenntir í Sorpugámum telur rétt að minna á lög um skylduskil sem mögulega geti friðað samvisku fólks sem þarf að henda bókum. Lífið 12. apríl 2026 11:01
Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Yfirkjörstjórn Reykjavíkur kom saman til fundar í hádeginu og úrskurðaði ellefu framboðslista gilda til borgarstjórnarkosninga í vor. Innlent 11. apríl 2026 16:01
Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna „Fyrir rúmlega ári síðan greindist ég með sjaldgæfan sjálfsofnæmissjúkdóm sem hefur stundum gert daglegt líf og vinnu erfiðari. Þrátt fyrir það var ákveðinn léttir að fá loksins skýringu á því sem ég hafði verið að ganga í gegnum. Það gaf mér tækifæri til að skilja líkamann minn betur og læra að takast á við einkennin,“ segir Elinborg Jóhanna Hrannarsdóttir, sem keppir í Ungfrú Ísland 2026. Lífið 11. apríl 2026 08:01
Góðan daginn býður góðan dag Ellefu flokkar skiluðu nauðsynlegum gögnum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar áður en framboðsfrestur rann út klukkan tólf. Óvænt framboð hreyfingarinnar Góðan daginn barst á elleftu stundu en þau segjast vilja bæta rekstur borgarinnar með nýjum áherslum. Innlent 10. apríl 2026 20:32
Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Fjölmargir hafa eflaust orðið varir við aukið sírenuvæl undanfarna daga á höfuðborgarsvæðinu. Það á sér þó mjög hversdagslegar skýringar en yfir standa æfingar í forgangsakstri hjá lögreglunemum. Sjái fólk lögreglubíla á fleygiferð um borgina sé því ekki ólíklegt að þeir séu á æfingu frekar en á leið í útkall. Innlent 10. apríl 2026 17:15
Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Páll Edwald, lögfræðingur og frambjóðandi Miðflokksins til borgarstjórnar, og Selma Eir Hilmarsdóttir, nemi í læknisfræði, eru trúlofuð. Lífið 10. apríl 2026 15:01
Krefjast þess að framkvæmdir við Kaffistofuna verði stöðvaðar Fjörutíu og fjórir íbúar og fasteignaeigendur í hverfi 108 hafa lagt fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar um að veita byggingarleyfi fyrir starfsemi kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Þau krefjast þess að framkvæmdir verði stöðvaðar og vilja að samþykki borgarinnar verði fellt úr gildi. Innlent 10. apríl 2026 13:36
Nýtt framboð í Reykjavík á elleftu stundu Undirskriftasöfnun fyrir Góðan daginn, nýtt framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur hófst í gærkvöldi, hálfum sólarhring áður en framboðsfrestur rennur út. Hópurinn vill meðal annars endurskoða borgarlínu og Sundabraut. Innlent 10. apríl 2026 11:24
Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar „Einu sinni notuðum við hesta sem átu gras. Nú eru bílarnir farnir að gera það,“ segir Vesturbæingurinn Örn Úlfar Sævarsson sem um árabil hefur háð einhvers konar eins manns varnarbaráttu fyrir grasbalanum við Vesturbæjarlaug sem miskunnarlítið er notaður sem bílastæði. Innlent 10. apríl 2026 08:45
Rúllum út rauða dreglinum „Kerfið er of þungt.“ Þessi setning hefur fylgt mér úr mörgum samtölum sem ég hef átt við borgarbúa, fólk í atvinnulífinu og starfsfólk í framlínunni síðustu vikur. Skoðun 10. apríl 2026 07:01
Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi „Það sem hefur mótað mig mest er að hafa veikst alvarlega fyrir þremur árum. Þá þurfti ég í raun að hefja lífið mitt upp á nýtt og læra að lifa lífinu sem ég hélt að ég hefði þurft að kveðja, Sú reynsla kenndi mér að meta litlu hlutina og vera þakklát fyrir hvern dag. Ég lít á það sem annað tækifæri sem Guð gaf mér og þess vegna leyfi ég ekki gagnrýni annarra að stoppa mig frá því að elta draumana mína,“ segir Sólveig Bech sem keppir í Ungfrú Ísland 2026. Lífið 10. apríl 2026 07:01
Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Umsvifamiklir veitingamenn í miðborg Reykjavíkur segja núverandi fyrirkomulag bílastæðamála gera fólki erfiðara fyrir að sækja miðbæinn og grafa undan rekstri á svæðinu. Þeir kalla eftir því að hætt verði að rukka fyrir bílastæði á kvöldin og um helgar og segja að ef stæðum sé lokað verði það að skila einhverju sem bæti miðborgina. Innlent 9. apríl 2026 19:31
Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Gabríel Douane Boama, sem sætir ákæru fyrir fjölda brota sem hann játar að mestu, tjáði sig aðeins um tvo ákæruliði af tíu þegar skýrsla var tekin af honum við aðalmeðferð í dag. Í þeim er honum gefið að sök að hafa hótað konu með hnífi og rænt síma af manni á sama tíma. Hann kveðst ekki hafa verið með hníf á sér og hafa óvart tekið símann af manninum en ekki rænt honum. Innlent 9. apríl 2026 15:58
Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Hljómsveitin ex.girls gaf í dag út fyrstu smáskífuna af nýrri plötu sinni, City of Fear, en laginu fylgir óhefðbundið myndefni. Platan var tekin upp á tíu dögum í Rotterdam árið 2023 og hefur mallað hjá sveitinni síðan. Söngkona sveitarinnar lýsir plötunni sem sexý og óhugnarlegri og hún sé samin af barnslegri gleði. Tónlist 9. apríl 2026 11:46
Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi. Innlent 9. apríl 2026 09:01
Rangt svar við raunverulegum vanda Að stytta opnunartíma frístundaheimila, eins og meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt, er skref í ranga átt. Styttingin mun ekki leysa mönnunarvanda, heldur þvert á móti gera hann verri. Nú þegar glímir starfsemin við skort á starfsfólki, sérstaklega á haustin. Ef starfshlutfall er minnkað og störfin gerð enn óstöðugri en þau eru í dag, verður Reykjavík enn síður samkeppnishæf um hæft fólk. Skoðun 9. apríl 2026 07:31
Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Í Reykjavík má nokkurn fjölda styttna og útilistaverka sem endurspegla sögu, menningu og list borgarinnar og landsins alls. Lífið 8. apríl 2026 20:00
The Streets koma fram á Iceland Airwaves Búið er að tilkynna 28 listamenn sem koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í nóvember en fleiri eiga eftir að bætast við. Stærstu nöfnin sem eru nefnd þar eru breska sveitin The Streets, breska söngkonan Shygirl, íslenska stórstjarnan Daði Freyr og hið filipseysk-íslenska Yaolekre. Lífið 8. apríl 2026 13:44
Að kaupa burt vandann Að tryggja öllum börnum aðgengi að leikskólaplássi er ekki „bara“ þjónusta heldur grundvallarstoð í velferðarsamfélagi. Leikskólar sinna ekki aðeins umönnun heldur gegna þeir lykilhlutverki í þroska, menntun og félagsmótun barna á fyrstu árum ævinnar. Rannsóknir á sviði menntunar og barnasálfræði hafa ítrekað sýnt að snemmtæk íhlutun og skipulagt leikskólastarf hefur jákvæð áhrif á málþroska, félagsfærni og síðar námsárangur. Skoðun 8. apríl 2026 10:32
Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Þann 9. maí 2026 stígur Yasiin Bey, betur þekktur sem Mos Def, á svið í Gamla Bíói í Reykjavík. Forsala hefst í dag, 8. apríl, en almenn miðasala þann 10. apríl. Lífið 8. apríl 2026 09:00