Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar 6. október 2026 09:31 Það er í lagi að vera ósammála. Pólitíkin væri líka frekar gagnslaus ef að kjörnir fulltrúar skiptust ekki reglulega á skoðunum og deildu um þær. Þegar að sömu kjörnu fulltrúar biðja hins vegar sérfræðinga um að gera skýrslur til þess að fræða sig um ákveðin mál, væntanlega í þeirri von um að hjálpa sér að taka um þau afstöðu, þá er skynsamlegt að taka mark á þeim.Í þessari viku hefur umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar til umfjöllunar að endurgera hægri beygju framhjáhlaup frá Bæjarhálsi til norðurs, inn á Höfðabakka. Í raun ríkir svo mikil sátt um þessi áform meirihlutans að Miðflokkurinn hefur lýst yfir stuðningi við þau. Eini hængurinn er sá að fagleg rök mæla gegn þeim. “The overall operational benefit of reinstating the slip lane is therefore limited.” Samkvæmt úttekt verkfræðistofunnar COWI hafa umferðartafir aukist lítillega á gatnamótunum en samkvæmt skýrslunni er það ekki fjarlægingu framhjáhlaupsins að kenna. Í úttektinni er þvert á móti mælt gegn því að taka það upp aftur. Framhjáhlaup er talið hafa neikvæð áhrif á öryggi allra vegfarenda, þar með talið ökumanna enda eru aftanákeyrslur mjög tíðar í slíkum framhjáhlaupum. Verkfræðistofan VSB gerði úttekt á slysahættu í hægri beygju framhjáhlaupi árið 2023. Þar segir m.a. í niðurstöðukafla: „Athyglisvert er að hægri beygju framhjáhlaup eru algeng hérlendis þrátt fyrir að fáar rannsóknir séu til sem styðja við notkun hennar. Öryggi og skilvirkni þessara lausna er að mestu óþekkt. Engin gögn fundust um slysagreiningar, öryggismat né umferðamat á þessum útfærslum. Í þessu rannsóknarverkefni voru skoðuð þau tíu gatnamót á höfuðborgarsvæðinu sem voru með flest slys í hægri beygju framhjáhlaupum. „Algengasta tegund slysa eru aftanákeyrslur, þar sem ekið er aftan á bíl sem er kyrrstæður eða ekið er aftan á bíl sem bremsar.“ (bls. 28) Samtök um bíllausan lífsstíl hafa mótmælt þessum áformum við fulltrúa umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og koma hér fram eindregnum mótmælum gegn því að fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt. Það er í lagi að vera ósammála en förum eftir niðurstöðum sérfræðinga og förum ekki í breytingar sem eru hættulegar fyrir okkur öll - gangandi og hjólandi en ekki síst akandi. Fyrir hönd Samtaka um bíllausan lífsstíl, Brynhildur Bolladóttir, formaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Brynhildur Bolladóttir Mest lesið „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Það er í lagi að vera ósammála. Pólitíkin væri líka frekar gagnslaus ef að kjörnir fulltrúar skiptust ekki reglulega á skoðunum og deildu um þær. Þegar að sömu kjörnu fulltrúar biðja hins vegar sérfræðinga um að gera skýrslur til þess að fræða sig um ákveðin mál, væntanlega í þeirri von um að hjálpa sér að taka um þau afstöðu, þá er skynsamlegt að taka mark á þeim.Í þessari viku hefur umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar til umfjöllunar að endurgera hægri beygju framhjáhlaup frá Bæjarhálsi til norðurs, inn á Höfðabakka. Í raun ríkir svo mikil sátt um þessi áform meirihlutans að Miðflokkurinn hefur lýst yfir stuðningi við þau. Eini hængurinn er sá að fagleg rök mæla gegn þeim. “The overall operational benefit of reinstating the slip lane is therefore limited.” Samkvæmt úttekt verkfræðistofunnar COWI hafa umferðartafir aukist lítillega á gatnamótunum en samkvæmt skýrslunni er það ekki fjarlægingu framhjáhlaupsins að kenna. Í úttektinni er þvert á móti mælt gegn því að taka það upp aftur. Framhjáhlaup er talið hafa neikvæð áhrif á öryggi allra vegfarenda, þar með talið ökumanna enda eru aftanákeyrslur mjög tíðar í slíkum framhjáhlaupum. Verkfræðistofan VSB gerði úttekt á slysahættu í hægri beygju framhjáhlaupi árið 2023. Þar segir m.a. í niðurstöðukafla: „Athyglisvert er að hægri beygju framhjáhlaup eru algeng hérlendis þrátt fyrir að fáar rannsóknir séu til sem styðja við notkun hennar. Öryggi og skilvirkni þessara lausna er að mestu óþekkt. Engin gögn fundust um slysagreiningar, öryggismat né umferðamat á þessum útfærslum. Í þessu rannsóknarverkefni voru skoðuð þau tíu gatnamót á höfuðborgarsvæðinu sem voru með flest slys í hægri beygju framhjáhlaupum. „Algengasta tegund slysa eru aftanákeyrslur, þar sem ekið er aftan á bíl sem er kyrrstæður eða ekið er aftan á bíl sem bremsar.“ (bls. 28) Samtök um bíllausan lífsstíl hafa mótmælt þessum áformum við fulltrúa umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og koma hér fram eindregnum mótmælum gegn því að fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt. Það er í lagi að vera ósammála en förum eftir niðurstöðum sérfræðinga og förum ekki í breytingar sem eru hættulegar fyrir okkur öll - gangandi og hjólandi en ekki síst akandi. Fyrir hönd Samtaka um bíllausan lífsstíl, Brynhildur Bolladóttir, formaður.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun