Sjóræningjar skutu á norskt olíuflutningaskip Sjóræningjar skutu á norska olíuflutningaskipið Stolt Apal sem var á siglingu í Adenflóa, suður af Jemen, fyrr í dag. Erlent 17. maí 2020 23:09
Daði í uppáhaldi hjá Norðmönnum Í kvöld kusu Norðmenn Think About Things, lag Daða Freys og Gagnamagnsins sem besta lagið sem senda átti í Eurovision í ár. Tónlist 15. maí 2020 23:03
Sagði lögreglu frá „stráknum“ strax eftir hvarfið Tom Hagen, sem grunaður er um morð eða aðild að morði á eiginkonu sinni, Anne-Elisabeth Hagen, minntist á mann, sérfræðing á sviði rafmynta sem nú er grunaður um aðild að málinu, í yfirheyrslum skömmu eftir að Anne-Elisabeth hvarf í október 2018. Erlent 14. maí 2020 09:56
Norðmenn sækja milljarða í olíusjóðinn Stjórnvöld í Noregi hyggjast sækja nærri 420 milljarða norskra króna, um sex þúsund milljarða íslenskra króna, úr olíusjóði sínum til að fjármagna aðgerðir sínar vegna faraldurs kórónuveirunnar. Viðskipti erlent 12. maí 2020 11:31
Hagen sleppt úr gæsluvarðhaldi Tom Hagen hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi eftir að Hæstiréttur Noregs úrskurðaði gegn lögreglunni um framlengingu. Erlent 8. maí 2020 15:36
Svæðaskipta norsku deildinni til að verjast útbreiðslu kórónuveirunnar Norska deildin verður fjórskipt í fyrstu sex umferðunum þar sem liðin af sama svæði spila alla innbyrðis leiki sína. Fótbolti 8. maí 2020 15:30
Annar maður handtekinn vegna Hagen-málsins Lögregla í Noregi handtók í gærkvöldi mann í tengslum við rannsóknina á hvarfi Anne-Elisabeth Hagen, eiginkonu auðjöfursins Tom Hagen. Erlent 8. maí 2020 07:11
Systkini Hagen telja Anne-Elisabeth vera enn á lífi Systkini auðjöfursins Tom Hagen, sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana, segjast sannfærð um sakleysi bróður síns. Erlent 8. maí 2020 06:42
Lögmannsréttur vill sleppa Hagen úr gæsluvarðhaldi Lögregla hefur nú áfrýjað úrskurði lögmannsréttarins sem þýðir að Hagen verður áfram í varðhaldi þar til að Hæstiréttur landsins hefur tekið málið til meðferðar. Erlent 7. maí 2020 13:34
Lögregla rannsakar fjallakofa Tom Hagen Fjöldi lögreglumanna mættu í morgun að fjallakofa norska auðjöfursins Tom Hagen við Kvitfjell. Erlent 7. maí 2020 10:57
Norski seðlabankinn lækkar stýrivexti í núll Þetta er í fyrsta sinn í 200 ára sögu bankans sem stýrivextir fara niður í núll prósent. Viðskipti erlent 7. maí 2020 08:55
Manshaus vildi keyra niður sem flesta í miðborg Oslóar Réttarhöld í máli hins 22 ára Philip Manshaus hófust í Osló í morgun. Hann er ákærður um morð á stjúpsystur sinni og brot gegn hryðjuverkalögum landsins. Erlent 7. maí 2020 07:41
Lögregla girðir af svæði við heimili Hagen-hjónanna Lögreglan í Noregi girti í morgun af svæði við heimili Tom Hagen í Lørenskog í suðausturhluta landsins. Hagen er grunaður um morð á eiginkonu sinni, Anne-Elisabeth Hagen. Erlent 5. maí 2020 07:44
Reyna að bjarga Air France og Norwegian Hluthafar í norska lággjaldaflugfélaginu Norwegian samþykktu í morgun björgunaraðgerðir, en félagið rambar á barmi gjaldþrots um þessar mundir. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti sjö milljarða evra aðstoðarpakka fyrir Air France. Viðskipti erlent 4. maí 2020 12:00
Framtíð Norwegian ræðst í dag Framtíð norska lággjaldaflugfélagsins Norwegian ræðst í dag en nú stendur yfir fundur hluthafa þar sem þeir taka ákvörðun um hvort reyna skuli björgunaraðgerðir. Viðskipti erlent 4. maí 2020 07:47
Höfnuðu tillögu til bjargar Norwegian Kröfuhafar flugfélagsins Norwegian höfnuðu í dag að breyta lánum sínum í hlutafé. Óvissa er því um framtíð félagsins sem rambar á barmi gjaldþrots og glímir við bráðan lausafjárvanda. Viðskipti erlent 1. maí 2020 19:24
Líf Norwegian hangir á bláþræði Örlög Norwegian voru ákveðin í gær en hluthafar greiddu atkvæði í gærkvöldi um það hvort björgunarpakki sem flugfélagið lagði til yrði samþykktur. Hluthafar áttu fund klukkan 16:00 að staðartíma í gær til að kjósa um pakkann en það liggur fyrir að hlutafé félagsins verði uppurið um miðjan maí. Viðskipti erlent 1. maí 2020 08:49
Norskur fjölskyldufaðir í 20 ára fangelsi fyrir „hreina aftöku“ Norskur fjölskyldufaðir á fimmtugsaldri, Hans Olav Overn, var í dag dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að kyrkja fimmtán ára son sinn, Oscar André Ocampo Overn, á heimili fjölskyldunnar í Kapp í október í fyrra. Erlent 30. apríl 2020 15:05
Tom Hagen áfrýjar gæsluvarðhaldsúrskurðinum Þetta staðfestir Svein Holden verjandi Hagen í samtali við norska miðilinn Dagbladet. Erlent 30. apríl 2020 10:21
Tom Hagen í fjögurra vikna gæsluvarðhald Norski auðjöfurinn Tom Hagen hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, grunaður um að hafa orðið eiginkonu sinni Anne-Elisabeth Hagen að bana í október 2018. Erlent 29. apríl 2020 17:58
Konan sem hvarf og hægláti auðjöfurinn sem saknaði hennar „Mannránið“ sem skók Noreg, hvarf Anne-Elisabeth Hagen, náði óvæntum vendipunkti í gær. Hér verður reynt að varpa ljósi á feril þessa merkilega máls og vendingar átján mánaða lögreglurannsóknar. Erlent 29. apríl 2020 08:45
Tom Hagen neitar sök Norski milljarðamæringurinn Tom Hagen, sem handtekinn var í morgun grunaður um morðið á eiginkonu sinni Anne-Elisabeth Hagen, neitar sök. Erlent 28. apríl 2020 13:32
Tom Hagen grunaður um morðið á Anne-Elisabeth Tom Hagen, eiginmaður Anne-Elisabeth Hagen sem ekkert hefur spurst til síðan í október 2018, er grunaður um morð, eða að eiga hlut að morði, á eiginkonu sinni. Erlent 28. apríl 2020 08:53
SAS segir upp 40 prósent starfsfólks Skandinavíska flugfélagið SAS hyggst segja upp fimm þúsund starfsmönnum að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti erlent 28. apríl 2020 07:20
Eiginmaður Anne-Elisabeth handtekinn Tom Hagen, eiginmaður Anne Elisabeth Hagen sem hvarf af heimili sínu í október 2018, var handtekinn við heimili sitt í Lorenskógi á leið til vinnu í morgun. Erlent 28. apríl 2020 07:14
Leikið án áhorfenda í Noregi í allt sumar Stefnt er að því að hefja keppni í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta þann 23. maí næstkomandi en líklega verða engir áhorfendur leyfðir á leikjum deildarinnar fram á haust. Fótbolti 26. apríl 2020 11:15
Vill að ríkisstjórnin leggi rúma átta milljarða íslenskra króna í knattspyrnuhreyfinguna Terje Svendsen, forseti norska knattspyrnusambandsins, vill að ríkisstjórnin þar í landi hjálpi fótboltanum til muna og að knattspyrnusambandið fái 600 milljónir norskra króna í stuðning en sú upphæð jafngildir rúmlega átta milljörðum íslenskra króna. Fótbolti 24. apríl 2020 08:00
Fjögur dótturfélög Norwegian í þrot Norska flugfélagið Norwegian óskaði eftir því í dag að fjögur dótturfélög fyrirtækisins yrðu tekin til gjaldþrotaskipta. Viðskipti erlent 20. apríl 2020 19:00
Gengi Norwegian féll um rúmlega helming á tíu mínútum Hrunið kom greinendum lítið á óvart. Viðskipti erlent 14. apríl 2020 09:09
Norðmenn segjast komnir með stjórn á faraldrinum Norsk stjórnvöld sögðust í dag vera komin með stjórn á kórónuveirufaraldrinum. Erlent 6. apríl 2020 19:00