Noregur

Noregur

Fréttamynd

Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur hand­tekinn í gær

Héraðsdómur í Osló úrskurðaði í dag norska stjúpprinsinn Marius Borg Høiby, son norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, í gæsluvarðhald til 2. mars. Farið var fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir Høiby, sem var handtekinn aftur í gærkvöldi, grunaður um líkamsárás, hótun með hnífi og brot gegn nálgunarbanni. Þar að auki hefjast réttarhöld yfir Høiby á morgun vegna fjölda annarra mála, en hann sætir ákæru vegna 38 meintra brota á lögum, meðal annars fyrir ofbeldi í nánu sambandi, nauðgun og fleiri ofbeldisbrot.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta

Lögmaður Þorbjörns Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og formanns Nóbelsnefndarinnar, telur ástæðu til að rannsaka frekar hvort að skjöl úr rannsókn á Jeffrey Epstein séu ósvikin. Fjölskylda Jagland heimsótti Epstein og hann var sjálfur í samskiptum við kynferðisbrotamanninn alræmda.

Erlent
Fréttamynd

„Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“

„Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ spyr fréttastjóri hjá Aftenposten í samnefndri grein sem birtist í dag. Birting tölvupóstasamskipta hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein á dögunum bætir gráu ofan á svart hvað stöðu hennar innan konungsfjölskyldunnar varðar.

Erlent
Fréttamynd

Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn

Bandaríkjaforseti segist ekki lengur telja sig skyldugan til að hugsa aðeins um frið í heiminum eftir að hann hlaut ekki friðarverðlaun Nóbels í fyrra. Þetta skrifar hann í bréfi til forsætisráðherra Noregs þar sem hann ítrekar hótanir vegna Grænlands.

Erlent
Fréttamynd

Nóbelsnefndin af­dráttar­laus varðandi fram­sal verð­launa­peninga

Nóbelsnefnd friðarverðlaunanna hefur gefið út yfirlýsingu vegna framsals Maríu Corinu Machado verðlaunahafa á medalíu sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Yfirlýsingin er stutt og afdráttarlaus og segir nefndin að verðlaunin séu verðlaunahafans eins, burtséð frá því hvar peningurinn sé niðurkominn.

Erlent
Fréttamynd

Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“

Forsætisráðherra Bretlands segist munu ræða við Bandaríkjastjórn um fyrirhugaða Grænlandstolla. Leiðtogar Evrópu stilla nú saman strengi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði tolla gegn átta NATO-ríkjum vegna þess að þau sendu mannskap til Grænlands í hernaðaræfingu. 

Erlent
Fréttamynd

Vilja geta sett her­lög á eyju norðan Ís­lands

Norsk stjórnvöld hafa vegna óvissu í varnar- og öryggismálum kynnt áform um að lög um herlögreglu verði látin gilda á Jan Mayen. Breytingin þýddi að Norðmenn gætu framfylgt herlögum á þessari nágrannaeyju Íslands.

Erlent
Fréttamynd

Eitt besta leitarárið á norska land­grunninu

Nýliðið ár reyndist eitt það gjöfulasta í sögu olíuleitar á norska landgrunninu í seinni tíð. Miðað við undanfarinn áratug var aðeins árið 2021 betra í magni nýrra olíu- og gasfunda. Þörf er hins vegar á frekari olíu- og gasleit ef draga á úr yfirvofandi framleiðsluminnkun.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

For­sjá varla á­kveðin út­frá erfða­fræði­legum tengslum

Prófessor og sérfræðingur í sifjarétti segist ekki sjá fyrir sér að erfðafræðileg tengsl foreldra við barn sitt gætu ráðið úrslitum í forsjármáli á Íslandi. Hæstiréttur í Noregi hefur nú mál til umfjöllunar þar sem móðir hefur óskað eftir áliti á því hvort dómara á lægra dómstigi var heimilt að horfa til blóðtengsla þegar hann dæmdi föður forsjá.

Innlent
Fréttamynd

Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hitta Maríu Corina Machado, leiðtoga stjórnarandstæðunnar í Venesúela. Þá segir Trump að það yrði mikill heiður fyrir hann ef hún ákvæði að afhenda honum friðarverðlaun Nóbels, sem hún vann í fyrra.

Erlent
Fréttamynd

Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðar­lega

Heilsu norsku krónprinsessunnar Mette-Marit hefur hrakað gríðarlega vegna lungnasjúkdóms hennar. Ástandið er nú svo alvarlegt að hún mun líklega þurfa á lungnaígræðslu að halda, sem er stór og hættuleg aðgerð að sögn lækna hennar.

Lífið
Fréttamynd

Åge Hareide látinn

Åge Hareide, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, er látinn 72 ára að aldri. Hann hafði glímt við krabbamein í heila síðustu mánuði.

Fótbolti
Fréttamynd

Það hafi víst verið haft sam­ráð við sjávarút­veginn

Ísland skrifaði í morgun undir samkomulag við þrjú önnur ríki um skiptingu og stjórn makrílsstofnsins. Lengi vel hafa önnur ríki ekki viðurkennd stöðu Íslands sem strandríki í makríl. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir samkomulagið halla á íslensk fyrirtæki. 

Innlent
Fréttamynd

Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum við­töku

Afhending Nóbelsverðlaunanna 2025 fer fram við hátíðlega athöfn í dag, 10. desember á dánardegi Alfreds Nobels sem verðlaunin eru kennd við. Maria Corina Machado, handhafi friðarverðlauna Nóbels í ár, verður hins vegar ekki viðstödd athöfnina til að veita verðlaununum viðtöku. Machado, sem er stjórnarandstæðingur frá Venesúela, hefur sætt líflátshótunum af hálfu valdhafa í heimalandinu og hafði ekki færi á að ferðast til Osló í tæka tíð.

Erlent
Fréttamynd

Uggur í læknum og sam­töl við Norður­lönd nauð­syn­legt

Stjórnvöld verða að bregðast við þegar í stað og opna á samtöl við stjórnvöld á hinum Norðurlöndunum um nýtt samráðskerfi varðandi nám sérgreinalækna, ellegar verður innan tíðar skortur á læknum í ákveðnum sérgreinum hér á landi. Þetta segir formaður Læknafélagsins sem segir ugg í læknastéttinni vegna stöðunnar.

Innlent
Fréttamynd

Með byssu í stærstu verslunar­mið­stöð Oslóar

Lögreglan í Osló hefur handtekið mann sem sagður er hafa mætt með skotvopn í verslunarmiðstöðina Storo, þá stærstu í borginni, og hleypt þar af allavega einu skoti. Maðurinn mun hafa verið handtekinn en fólk hefur verið beðið um að halda sig fjarri verslunarmiðstöðinni í bili.

Erlent