

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

Tróð yfir LeBron James og dreymir um að komast í NBA
Franski körfuboltamaðurinn Guerschon Yabusele var ein af spútnikstjörnum körfuboltakeppni Ólympíuleikanna í París en frammistaða hans átti mikinn þátt í að Frakkarnir fóru alla leið í gullleikinn.

„Þegar þú gerir ekkert í hópverkefninu en færð samt A“
Körfuboltamaðurinn Tyrese Haliburton var hluti af sigurliði Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum og fékk að sjálfsögðu gullmedalíu, þrátt fyrir að hafa fengið fá tækifæri á leikunum.

Þóttist ekki skilja ensku til að losna við ruslatalið í Garnett
Körfuboltamaðurinn Steven Adams hefur greint frá því hvað hann gerði til að losna við ruslatal Kevins Garnett, eins þekktasta kjaftasksins í sögu NBA.

Draymond Green gagnrýnir eigin þjálfara
Steve Kerr, þjálfari bandaríska karlalandsliðsins í körfubolta sem nú stendur í ströngu á Ólympíuleikunum í París, fékk gagnrýni úr óvæntri átt; frá leikmanni sínum í Golden State Warriors.

Mikil ánægja með nýju styttuna af Kobe og Gigi Bryant
Ný stytta af bandaríska körfuboltamanninum Kobe Bryant og dóttur hans Gianna „Gigi“ Bryant var afhjúpuð við einkaathöfn í Los Angeles í gær. Hún verður síðan fyrst aðgengileg almenningi í dag.

Dóttir LeBrons dauðskammaðist sín fyrir dansspor pabba gamla
LeBron James er einn besti körfuboltamaður allra tíma. Hann er hins vegar ekki merkilegur dansari, allavega ef marka má dóttur hans.

Stytta af Kobe og dóttur hans afhjúpuð á morgun
Á morgun verður stytta af Kobe Bryant og dóttur hans, Giönnu (Gigi), afhjúpuð fyrir utan heimavöll Los Angeles Lakers, Crypto.com Arena.

„Sorgardagur þegar eigendurnir velja peningana fram yfir aðdáendurna“
Charles Barkley, einn af fjórmenningunum í Insinde the NBA teyminu á TNT sjónvarpsstöðinni, hefur sent frá sér yfirlýsingu um yfirtöku Disney, NBC og Amazon Prime Video á sjónvarpssamningum NBA deildarinnar.

Westbrook til liðs við Nuggets
Eins og við var búist er Russell Westbrook genginn til liðs við Denver Nuggets. Westbrook, sem er 36 ára að verða, semur til tveggja ára.

Bless Barkley, Shaq og félagar: TNT stöðin missir NBA
NBA deildin í körfubolta ætlar að segja skilið við margra áratuga samstarf sitt við TNT sjónvarpsstöðina en þetta varð endanlega ljóst þegar gengið var frá sjónvarpssamningum við Disney, NBC og Amazon Prime Video í gær.

Gætu flutt Philadelphia 76ers til New Jersey
NBA liðið Sixers hefur átt heima í borginni Philadelphiu frá árinu 1963 en nú gæti orðið breyting á því.

Fer til Dallas á nýjan leik
Spencer Dinwiddie hefur ákveðið að færa sig um set og spila með Dallas Mavericks í NBA-deildinni á komandi leiktíð eftir að hafa skipt yfir til Los Angeles Lakers fyrr á þessu ári.

Caitlin Clark heilsaði upp á dætur Kobe Bryant á stjörnuleiknum
Stjörnuleikur WNBA deildarinnar fór fram um helgina en þar mætti stjörnulið deildarinnar landsliðinu en sú hefð hefur skapast að landsliðið mæti til leiks á ólympíuári.

Russell Westbrook frjáls ferða sinna á ný
Russell Westbrook er án félags, aðeins tveimur dögum eftir að LA Clippers skiptu honum til Utah Jazz. Tíðindin ættu þó ekki að koma neinum á óvart en Westbrook er sagður vera á leið til Denver Nuggets um leið og færi gefst.

LeBron kom í veg fyrir ein óvæntustu úrslit körfuboltasögunnar
Ekki mátti miklu muna að ein óvæntustu úrslit körfuboltasögunnar litu dagsins ljós í London í gær þegar stjörnum prýtt lið Bandaríkjanna mætti Suður-Súdan í æfingaleik. LeBron James bjargaði andliti Bandaríkjamanna.

Bronny átti loksins góðan leik
Eftir að hafa átt mjög erfitt uppdráttar í fyrstu leikjum sínum fyrir Los Angeles Lakers spilaði Bronny James vel þegar liðið vann Atlanta Hawks, 87-86, í sumardeild NBA.

Adam Silver ver nýjan svuntuskatt NBA deildarinnar
NBA félögunum hefur hvað eftir annað tekist að setja saman svokölluð ofurlið á síðustu árum með því að hóa saman mörgum frábærum leikmönnum á frábærum launum. Nú er það hins vegar orðið mun erfiðara vegn strangari reglna um launaþakið.

Bronny James hefur klikkað á öllum skotunum sínum
Los Angeles Lakers valdi Bronny James, tvítugan son LeBron James, í nýliðavalinu á dögunum en það er ekki hægt að segja að strákurinn sé að heilla marga með frammistöðu sinni í Sumardeild NBA.

Brunson hjálpar Knicks með því að skilja fimmtán milljarða eftir á borðinu
NBA körfuboltamaðurinn Jalen Brunson lét verkin tala í gær þegar kom að því að hjálpa New York Knicks að vera betra. Brunson var tilbúinn að fá mun lægri laun fyrir vinnu sína en hann var búinn að vinna sér inn.

Caitlin Clark varð fyrsti nýliðinn til að ná þrefaldri tvennu
Caitlin Clark heldur áfram að heilla í WNBA og varð í nótt fyrsti nýliði í sögu deildarinnar til að ná þrefaldri tvennu.

LeBron fær meira borgað næstu tvö ár en Jordan fékk allan ferilinn
LeBron James er í eilífum samanburði við Michael Jordan en oft er rifist um það hvor þeirra sé besti körfuboltamaður allra tíma.

Luka og Giannis geta tekið Ólympíudrauminn frá hvorum öðrum
Luka Doncic og Giannis Antetokounmpo, tveir af bestu leikmönnum NBA-deildarinnar í körfubolta, mætast með landsliðum sínum í undanúrslitum forkeppni Ólympuleikanna þar sem tap þýðir að Ólympíudraumurinn er úti.

Fundu strax nýjan Skvettubróður fyrir Steph Curry
Stóra fréttin í NBA deildinni í körfubolta frá því í gærkvöldi er að bandarískir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að Golden State Warriors hafi samið við nýja stórskyttu.

Kemba Walker hættur og verður þjálfari hjá Hornets
Leikstjórnandinn Kemba Walker hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og mun snúa sér að þjálfun hjá fyrrum félagi sínu Charlotte Hornets.

Jontay Porter fer fyrir dóm og mun játa veðmálasvindlið
Jontay Porter var fyrr á árinu dæmdur í ævilangt bann frá NBA deildinni vegna brota gegn veðmálareglum. Hann fer fyrir dóm í næstu viku og er sagður ætla að játa sök.

Lakers ræður reynslubolta með Reddick
Los Angeles Lakers hefur ráðið tvo fyrrverandi aðalþjálfara úr NBA-deildinni til að aðstoða nýráðinn þjálfara liðsins, J.J. Reddick, í því sem er hans fyrsta þjálfarastarf.

LeBron James samdi við Lakers og spilar við hlið sonarins
LeBron James hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við Los Angeles Lakers í NBA deildinni í körfubolta en Adrian Wojnarowski sagði fyrstur frá þessu í dag. Stigahæsti leikmaður sögunnar spilar því áfram með Lakers.

„Við gáfum Bronny ekkert, hann vann fyrir þessu“
Los Angeles Lakers kynntu nýliða liðsins á blaðamannafundi í gær. JJ Redick, nýráðinn þjálfari liðsins, tók skýrt fram að Lebron „Bronny“ James Jr. hafi ekki fengið neitt upp í hendurnar.

Pabbinn svekktur eftir að Klay valdi Mavericks yfir Lakers
Klay Thompson olli föður sínum vonbrigðum þegar hann valdi frekar að semja við Dallas Mavericks í staðinn fyrir að fara í Los Angeles Lakers.

Enginn vildi tala við hann en nú fær hann rúma þrjá milljarða
Margir leikmenn hafa fengið stóra samninga í NBA deildinni síðustu daga en sumir höfðu mjög gaman að því að sjá einn leikmann fá nýjan samning.