Mínútu þögn fyrir leik Íslands í Mexíkó Mínútu þögn verður fyrir leik íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Mexíkó sem fram fer í Queretaro klukkan tvö í nótt. Fótbolti 25.2.2026 16:00
„Ákváðum að velja sterkasta liðið óháð aldri“ Arnar Gunnlaugsson vonast eftir að fulltrúar Bestu deildar karla sýni sínar bestu hliðar er Ísland mætir Mexíkó í æfingaleik í nótt. Ytri aðstæður hafa verið settar til hliðar og öll einbeiting á leikinn sjálfan. Fótbolti 25.2.2026 14:32
Þjálfari Mexíkó: „Það verða allir öruggir“ Javier Aguirre, landsliðsþjálfari Mexíkó, segir knattspyrnusamband landsins hafa lofað því að allir verði öruggir er liðið mætir Íslandi í nótt. Óeirðir brutust út í vikunni eftir að yfirmaður alræmdra glæpasamtaka var felldur á sunnudag. Fótbolti 25.2.2026 13:00
Landsleikur Íslands í Mexíkó í hættu? Fótboltaleikjum hefur verið frestað í Mexíkó sökum ófremdarástands sem hefur skapast í kjölfar þess að glæpaforinginn El Mencho var skotinn til bana í gær. Fótbolti 23. febrúar 2026 08:21
Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Glæpaforinginn Rubén Nemesio Oseguera, sem var betur þekktur sem El Mencho, lést fyrr í dag eftir að hafa verið skotinn í bardaga við Mexíkóska herinn. Erlent 22. febrúar 2026 22:32
„Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Kanadískur maður sem gekk undir nafninu „Einræðisherrann“ aðstoðaði yfirvöld í Bandaríkjunum við að handsama Ryan Wedding fyrr á árinu. Einræðisherrann svokallaði heitir Andrew Clark en hann er sagður hafa verið hægri hönd Weddings í að flytja gífurlegt magn kókaíns frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og Kanada um árabil. Erlent 16. febrúar 2026 14:31
Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) hefur tilkynnt að aftur sé búið að opna fyrir flugumferð til og frá alþjóðaflugvellinum í El Paso í Texas. Lokað var fyrir flugumferð um svæðið í nótt og það án útskýringa og átti lokunin að standa yfir í tíu daga. Erlent 11. febrúar 2026 14:08
Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Kanadamaðurinn Ryan Wedding, sem keppt hefur á Vetrarólympíuleikunum fyrir hönd Kanada, hefur verið handtekinn en hann var einn af þeim tíu mönnum sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) vilja mest koma höndum yfir. Wedding hefur verið ákærður fyrir morð, smygl og peningaþvætti og hefur verið á flótta frá 2015. Erlent 23. janúar 2026 15:30
Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu. Tónlist 22. janúar 2026 15:30
Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Yfirvöld í Bandaríkjunum setja sífellt meiri þrýsting á ráðamenn í Mexíkó svo þeir hleypi bandarískum hermönnum inn í landið. Þar vilja Bandaríkjamenn nota þá í áhlaup gegn fíkniefnasamtökum sem framleiða og flytja mikið magn fíkniefna til Bandaríkjanna. Erlent 15. janúar 2026 16:34
Ítrekaðar íhlutanir í „bakgarði“ Bandaríkjanna Árás Bandaríkjastjórnar á Venesúela um helgina var fyrsta hernaðaraðgerð hennar í Rómönsku Ameríku á þessari öld. Bandaríkin eiga sér hins vegar aldalanga sögu íhlutana í heimshluta sem þarlendir ráðamenn hafa oft skilgreint sem „bakgarð“ þeirra. Erlent 5. janúar 2026 15:03
Annar sonur „El Chapo“ sagður ætla að játa brot sín Sonur hins víðfræga fíkniefnabaróns sem kallast „El Chapo“ er sagður ætla að gangast við sekt í dómsal í dag. Hann hefur verið ákærður fyrir fíkniefnasmygl í Chicago, eftir að hafa platað fyrrverandi samstarfsfélaga föður síns og annan stofnanda Sinaloa-samtakanna til Bandaríkjanna. Erlent 1. desember 2025 19:03
Mynd eftir Fridu Kahlo sló met í New York Málverk eftir mexíkósku listakonuna Fridu Kahlo seldist á uppboði í New York í gærkvöldi á tæpar fimmtíu og fimm milljónir dala, eða um sjö milljarða íslenskra króna. Þar með féll met en verkið er nú dýrasta listaverk heims sem gert er af konu. Erlent 21. nóvember 2025 07:46
Var úthúðuð af skipuleggjanda en sigraði í Ungfrú alheimi Hin mexíkóska Fátima Bosch Fernández, ungfrú Mexíkó, sigraði í nótt fegurðarkeppnina Ungfrú alheimur, Miss Universe 2025, sem fram fór í Taílandi. Í aðdraganda keppninnar vakti það sérstaklega athygli þegar taílenskur framkvæmdastjóri keppninnar úthúðaði Bosch Fernández og sigaði gæslunni á hana. Lífið 21. nóvember 2025 07:40
Um hundrað slösuðust og tuttugu voru handtekin á mótmælum í Mexíkó Að minnsta kosti 120 manns, flestir lögreglumenn, slösuðust þegar þúsundir gengu fylktu liði um Mexíkóborg í gær til að mótmæla ríkisstjórn Claudiu Sheinbaum, forseta Mexíkó, og ofbeldisfullum glæpum. Tuttugu voru handtekin á mótmælunum fyrir rán og líkamsárás samkvæmt frétt BBC. Erlent 16. nóvember 2025 09:15
Náðu myndum af háhyrningum að velta hvítháfum og éta úr þeim lifrina Vísindamönnum í Mexíkó hefur nokkrum sinnum tekist að taka upp hjörð háhyrninga ráðast á og drepa hvíthákarla. Háhyrningarnir éta svo orkuríka lifur hákarlanna og lítið sem ekkert annað. Erlent 4. nóvember 2025 18:48
Fjölmargra enn saknað eftir flóð og aurskriður Sex dögum eftir að tugir manna dóu vegna úrhellis í Mexíkó er fjölmargra enn saknað. Að minnsta kosti 66 eru látnir, samkvæmt tölum sem birtar voru í gærkvöldi, en enn hefur ekki tekist að finna 75 til viðbótar eftir að skyndiflóð og aurskriður léku íbúa Mexíkó grátt. Erlent 16. október 2025 14:17
Tugir látnir eftir úrhelli í Mexíkó Að minnsta kosti 64 eru látnir eftir úrhelli í Mexíkó í lok síðustu viku. Skyndiflóð og aurskriður ollu miklum usla en að minnsta kosti 65 er enn saknað. Björgunarsveitir eru fyrst núna að ná til byggðarlaga sem lokuðust inni eftir úrhellið. Erlent 13. október 2025 15:40
Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Kókaín hefur aldrei verið ódýrara né hreinna í Bandaríkjunum en það er nú. Neysla þess hefur aukist til muna á undanförnum árum, samhliða umfangsmiklum aðgerðum gegn neyslu fentanýls í Bandaríkjunum og gegn framleiðslu þess í Mexíkó. Erlent 17. september 2025 18:48
Martial á leið til Mexíkó Anthony Martial, fyrrverandi framherji Manchester United, er á leið til Monterrey í Mexíkó. Fótbolti 11. september 2025 17:02
Slagsmál á mexíkóska þinginu yfir ræðutíma Slagsmál brutust út á mexíkóska þinginu á miðvikudag milli öldungardeildarþingmanns og forseta öldungadeildarinnar vegna deilna um ræðutíma. Átökin hófust með lítilsháttar stimpingum sem breyttust í heilmikinn hasar. Erlent 29. ágúst 2025 09:38
El Mayo sagður ætla að játa sekt Ismael Zambada, sem var um árabil einn valdamesti fíkniefnabarónn Mexíkó er talinn ætla að játa sekt í bandarískum alríkisdómstól í dag. Zambada, sem gengur undir nafninu „El Mayo“ og var háttsettur leiðtogi í Sinaloa-samtökunum svokölluðu en tvær vikur eru síðan alríkissaksóknarar sögðust ekki ætla að sækja eftir dauðadómi gegn Zambada. Erlent 25. ágúst 2025 10:06
Ný dýrasta knattspyrnukona heims Olivia Smith er ekki lengur dýrasta knattspyrnukona heims. Metið hefur skipt ört um hendur síðustu misseri og nú er það komið í hendurnar á mexíkóskri landsliðskonu aðeins mánuði eftir að Smith eignaðist það. Fótbolti 21. ágúst 2025 18:02
Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Kristi Noem, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í vikunni að til stæði að mála allan múrinn á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó svartan. Þannig ætti að gera farand- og flóttafólki erfiðara með að komast til Bandaríkjanna. Erlent 21. ágúst 2025 10:02