Platini: Messi verður að vinna HM til að geta talist sá allra besti Lionel Messi jafnaði afrek Michel Platini í gær með því að vinna Gullboltann þrjú ár í röð og Platini segir að Messi sé þegar orðinn einn af bestu fótboltamönnum allra tíma. Forseti UEFA bendir samt á það að Messi geta aldrei verið talinn sá allra besti nema að hann ná árangri með argentínska landsliðinu. Fótbolti 10. janúar 2012 10:45
Messi getur jafnað afrek Platini í kvöld Lionel Messi fær að vita það í kvöld hvort að hann fái Gullboltann þriðja árið í röð og komist þá í hóp með Frakkanum Michel Platini, núverandi forseta UEFA en Platini var kosinn besti knattspyrnumaður Evrópu 1983, 1984 og 1985. Fótbolti 9. janúar 2012 17:30
Man. Utd ekki í Meistaradeildina | Búið að refsa Sion Sá möguleiki að Man. Utd komist bakdyramegin inn í Meistaradeildina er úr sögunni því svissneska knattspyrnusambandið hefur farið að ráðleggingum FIFA og refsað Sion fyrir að spila með ólöglega leikmenn. Fótbolti 30. desember 2011 15:17
Man. United kemst ekki bakdyramegin inn í Meistaradeildina Svissneska knattspyrnusambandið hefur orðið við beiðni UEFA og er búið að taka 36 stig af Sion-liðinu fyrir að tefla fram ólöglegum leikmönnum. UEFA hafði kastað Sion út úr Evrópudeildinni og var búið að hóta því að gera hið sama við önnur svissnesk lið, myndi svissneska sambandið ekki refsa Sion. Fótbolti 30. desember 2011 15:11
Cristiano Ronaldo skoraði meira en Messi á árinu 2011 Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa báðir átt frábært ár. Messi vann reyndar fjóra fleiri titla með Barcelona á árinu en það var Ronaldo sem skoraði einu marki meira á árinu sem er að líða. Fótbolti 25. desember 2011 22:00
Dani Alves: Guardiola er hjartað í Barcelona-liðinu Brasilíski bakvörðurinn Dani Alves hrósar mikið þjálfara liðsins Josep Guardiola og segir að nú sé aðalmarkmið leikmanna liðsins að sannfæra Guardiola að halda áfram með liðið. Fótbolti 21. desember 2011 13:00
Xavi búinn að vinna 19 titla með Barcelona Xavi Hernández og félagar í Barcelona tryggðu sér Heimsmeistaratitil félagsliða í gær með því að vinna sannfærandi 4-0 sigur á brasilíska liðinu Santos í úrslitaleik. Xavi átti flottan leik, lagði upp fyrsta markið og skoraði síðan annað markið sjálfur. Fótbolti 19. desember 2011 16:00
Man. Utd gæti óvænt komið aftur inn í Meistaradeildina Svo gæti farið að Manchester United verði í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir allt saman. Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur nefnilega hótað knattspyrnusambandi Sviss og fari sambandið ekki eftir þeirra fyrirmælum þá verður öllum svissneskum liðum meinað að taka þátt í Evrópukeppnum. Fótbolti 17. desember 2011 16:00
Erfitt fyrir þá ensku Dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og svo 32-liða og 16-liða úrslit Evrópudeildar UEFA. Fimm ensk lið eru eftir í keppnunum og fengu þau öll erfiða andstæðinga. Kolbeinn Sigþórsson og Ajax mæta Manchester United. Fótbolti 17. desember 2011 06:30
David Villa: Ég ætla að ná úrslitaleiknum í Meistaradeildinni í maí David Villa mun ekki spila með Barcelona næstu fimm mánuðina eftir að hafa hann fótbrotnaði í undanúrslitaleiknum á HM félagsliða í gær en Barcelona vann þá 4-0 sigur á Al Sadd frá Katar. Fótbolti 16. desember 2011 23:45
Meistaradeildardrátturinn: Arsenal mætir AC Milan Nú rétt fyrir hádegi var dregið í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Stórleikur sextán liða úrslitanna er viðureign AC Milan og Arsenal. Fótbolti 16. desember 2011 09:37
Zenit sektað vegna óláta áhorfenda Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sektað rússneska liðið Zenit St. Petersburg um 8 milljónir króna vegna óláta áhorfenda á tveimur leikjum félagsins í Meistaradeildinni. Fótbolti 13. desember 2011 18:00
Platini óánægður með ummæli Ferguson um Evrópudeildina Michel Platini, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, er ekki ánægður þau ummæli sem Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, lét falla um Evrópudeild UEFA á dögunum. Fótbolti 9. desember 2011 13:00
Ferguson svarar Roy Keane fullum hálsi Alex Ferguson, stjóri Manchester United, gefur ekki mikið fyrir þá gagnrýni sem Roy Keane, fyrrum fyrirliði United, veitti liðinu eftir tapið gegn Basel í Meistaradeild Evrópu í gær. Fótbolti 8. desember 2011 16:00
Lehmann: Afar leiðinlegt að horfa á City spila Markvörðurinn þýski, Jens Lehmann, er örugglega hæstánægður með að Manchester City er fallið úr leik í Meistaradeild Evrópu þar sem honum þykir margt annað skemmtilegra en að horfa á City-menn spila fótbolta. Fótbolti 8. desember 2011 15:30
Samsæriskenningar berast víða - Komst Lyon áfram á svindli? Netheimar loga vegna úrslitanna í leikjum gærkvöldsins í D-riðli Meistaradeildarinnar. Þar komst Lyon áfram í 16-liða úrslitin á ótrúlegan máta en Ajax þarf að spila í Evrópudeild UEFA. Frönsk veðmálayfirvöld hafa opnað rannsókn á málinu. Fótbolti 8. desember 2011 14:15
Mancini: Evrópudeildin er mikilvæg Roberto Mancini, stjóri Manchester City, segir að félagið muni leggja mikla áherslu á að vinna Evrópudeild UEFA eftir að liðið féll úr leik í Meistaradeild Evrópu í gær. Fótbolti 8. desember 2011 11:30
Lít út fyrir að hafa lent í bardaga á móti báðum Klitschko-bræðrunum í einu Sebastian Kehl, fyrirliði Dortmund, fékk slæmt spark í andlitið í Meistaradeildarleiknum á móti Marseille í gærkvöldi og var borinn útaf eftir aðeins rúmlega hálftíma leik. Stephane Mbia, leikmaður Marseille, fékk gula spjaldið fyrir sparkið en Kehl endaði upp á spítala. Fótbolti 7. desember 2011 23:45
Vidic meiddist í kvöld Man. Utd varð fyrir fleiri en einu áfalli í kvöld því fyrirliðinn, Nemanja Vidic, meiddist illa ofan á allt saman. Fótbolti 7. desember 2011 22:40
Í beinni: Ajax - Real Madrid Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Ajax og Real Madrid í D-riðli Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 7. desember 2011 19:30
Barca-börnin glöddu Guardiola í gær: Óaðfinnanleg frammistaða Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, tefldi fram hálfgerðu unglingaliði í síðasta leik liðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Leikmenn eins og Lionel Messi, Xavi, Andrés Iniesta og fleiri fengu hvíld en í staðinn fengu framtíðarleikmennirnir að prufa sig í deild þeirra bestu. Fótbolti 7. desember 2011 16:45
Enginn frá Man. Utd talaði við fjölmiðla í kvöld Það var ekki hátt risið á leikmönnum Man. Utd eftir niðurlæginguna gegn Basel í kvöld. Enginn frá félaginu talaði við fjölmiðlamenn eftir leikinn. Fótbolti 7. desember 2011 15:36
Mancini: Þetta er enginn heimsendir Leikmenn Man. City gerðu það sem þeir gátu í kvöld. Lögðu Bayern en það dugði ekki til þar sem Napoli vann á sama tíma og komst þar með áfram en City verður í Evrópudeildinni ásamt nágrönnum sínum í United. Fótbolti 7. desember 2011 15:35
Man. Utd og Man. City í Evrópudeildina Bæði Manchesterliðin verða að gera sér það að góðu að spila í Evrópudeild UEFA það sem eftir lifir vetrar eftir að hafa fallið úr leik í Meistaradeild Evrópu í vetur. Fótbolti 7. desember 2011 15:29
Ferguson: Einbeiting Rooney í góðu lagi Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að Wayne Rooney sé með einbeitinguna í góðu lagi fyrir leikinn mikilvæga gegn Basel í kvöld en hann mun morgun koma fyrir aganefnd UEFA í Sviss vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leik með enska landsliðinu í haust. Fótbolti 7. desember 2011 09:30
Lífið heldur áfram þótt við dettum út Tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar, nágrannarnir í Manchester City og Manchester United, eiga það á hættu að spila sinn síðasta leik í Meistaradeildinni á tímabilinu í kvöld og komast því ekki áfram í sextán liða úrslitin. Úrslitin ráðast þá í riðlum A til D, en fjögur af átta sætum eru enn laus. Bayern München, Inter Milan, Benfica og Real Madrid eru þegar komin áfram og öll nema portúgalska liðið hafa unnið sinn riðil. Fótbolti 7. desember 2011 07:00
Drogba: Það hjálpar mér að fá að spila Didier Drogba var maður kvöldsins í Meistaradeildinni því hann skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja í 3-0 sigri Chelsea á Valencia. Chelsea tryggði sér ekki bara sæti í sextán liða úrslitunum heldur einnig sigur í riðlinum. Fótbolti 6. desember 2011 22:32
Barcelona jafnaði markamet Manchester United í kvöld Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, leyfði sér að hvíla lykilleikmenn í leiknum á móti BATE Borisov í Meistaradeildinni í kvöld en það kom ekki að sök því Barcelona vann 4-0 sigur. Fótbolti 6. desember 2011 22:20
Í beinni: Olympiakos - Arsenal Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Olympiakos og Arsenal í F-riðli Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 6. desember 2011 19:15
Villas-Boas: Svöruðum gagnrýninni í kvöld Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, svaraði gagnrýninni í kvöld með því að stýra sínu liði inn í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir sannfærandi 3-0 sigri á spænska liðinu Valencia. Fótbolti 6. desember 2011 19:15