

Jólavefur Vísis
Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.

Jólablóm með góðum ilmi
Hýasinta hefur tekið sér sess sem ein af jólaplöntunum hjá okkur en víða erlendis er hún vorblóm. Hýasintan er laukplanta, þannig að allur næringarforði er í lauknum og þarf hún því í raun og veru ekki að vera í mold. Laukurinn sjálfur á ekki að vera í vatni en ræturnar þurfa að fá vatn og passa þarf að halda að þeim raka.

Rambaði á góðan fisk
"Ég er ekki með fastar hefðir kringum jólahaldið heldur haga því dálítið eins og andinn blæs mér í brjóst hverju sinni," segir Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur innt eftir sínum jólasiðum. Samtalið fer fram gegnum síma þar sem Steinunn býr í grennd við Montpellier í Frakklandi og er ekkert á leiðinni heim til Íslands fyrir hátíðirnar.

Skynsemi vs. jól
Jólakötturinn bendir hér á mikilvgi svefnsins, bæði fyrir menn og dýr.

Jólaleikur Bloggsins
<strong>Jólaleikur Bloggsins</strong> <a href="/?PageID=587">Hvað veistu um Nylon? </a>

Gefið til góðs
Jólakötturinn veltir fyrir sér kaupæði landans fyrir jólin.

Pakkar afhentir á morgun
Pakkar sem safnast hafa undir jólatré Kringlunnar, til Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands verða afhentir á morgun klukkan 11 við jólatré Kringlunnar. Fulltrúar Kringlunnar, Bylgjunnar og Íslandspósts munu afhenda fulltrúum frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Fjölskylduhjálpar Íslands fyrstu pakkana sem safnast hafa undir jólatré Kringlunnar.

Jólafasta?
Jólakötturinn veltir jólaföstunni fyrir sér og telur jólalos réttara heiti á þessum tíma.

Vill rjúpu á jólaborðið
Í svartasta skammdeginu, þegar dagsbirtan varir aðeins í nokkrar mínútur í senn, er ekkert betra en að horfa á myndir af Íslandi í sól. Þetta er því einmitt tíminn til að horfa á mynd um veiði," segir Eggert Skúlason sem á dögunum gaf út DVD-diskinn Veiðiperlur.
Jólastyrkjum úthlutað
Jólastyrkjum verður úthlutað í samkomusal Hjálpræðishersins núna á laugardaginn. Fulltrúar fjölskyldna sem sótt hafa um styrk mega koma milli klukkan 10 og 12 og einstaklingar milli klukkan eitt og þrjú.

Jólatré bernsku minnar
Jólatré bernsku minnar er sýning í handverksmiðstöðinni Punktinum við Kaupvangsstræti á Akureyri. Sum jólatrén eru nýskreytt en önnur líta út eins og þau komu af háaloftinu. </font />

Að klæðast eftir veðri
Ég hef ákveðið að bregða út af venjunni á þessu ári og éta þá sem mér sýnist, sama hvort fötin eru gömul eða ný.
Niður með jólaljósin
Kúbversk stjórnvöld hafa krafist þess að bandaríska sendinefndin á Kúbu taki niður jólaskreytingar sem skreyta húsnæði þess í Havana. Ástæðan er sú að hluti af jólaskreytingunni er talan 75, sem er stuðningsyfirlýsing við 75 kúbverska andófsmenn sem voru dæmdir í allt að 28 ára fangelsi fyrr á árinu.

Skata og jólakort á Þorláksmessu
"Við höfum gjarnan lagt mikið upp úr Þorláksmessukvöldi og það verið hátíðsdagur hjá okkur," segir Helgi Pétursson tónlistarmaður með meiru, og má segja að það liggi vel á honum þessa dagana og jólastemningin sé farin að segja til sín.
Daufblindir fá styrk
Í ár mun jólakortastyrkur Hugar hf. renna til Daufblindrafélags Íslands en Hugur hf. hefur í gegnum árin styrkt góðgerðar- og líknarmálefni með ýmsum hætti.

Ljós dempuð í kirkjunni
Sænska félagið hélt Lúsíuhátíð í Seltjarnarneskirkju í gærkvöld, en í Svíþjóð er slík hátíð haldin 13. desember þar sem Lúsía og og þernur hennar syngja jólalög. Matilda Gregersdotter, formaður Sænska félagsins, segir um árvissan viðburð að ræða hér.

Meiri bókaafsláttur en í fyrra
Afsláttur á bókum virðist meiri í ár en undanfarin ár, segir Hrannar B. Arnarsson, markaðsstjóri bókaútgáfunnar Eddu.

Þörf fyrir aðstoð eykst
Eftirspurn eftir aðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar hefur aukist nú fyrir jólin. Þegar hafa 300 manns fengið aðstoð og Anna Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, býst við að annar eins fjöldi óski eftir aðstoð á fimmtudag og föstudag.
Barist við jólakvíða
Árlegur fundur EA samtakanna um jólakvíða fer fram í kórkjallara Hallgrímskirkju klukkan sex síðdegis næsta fimmtudag.
Ágreiningur um eðli jóla
Jóhannes Páll páfi tekur nú þátt í deilu um það hvort ítalskir ríkisskólar eigi að draga úr fjárveitingum til jólahátíða þar sem fæðingu frelsarans er minnst. Telur páfi að hátíðarnar séu mikilvægur þáttur í menningar- og trúarlífi Ítala.

Eru jólasveinarnir til í alvöru?
Von er á jólasveininum Stekkjastaur til byggða í nótt og er viðbúið að gluggakistur víða um land verði þaktar skóm af ýmsu tagi. Engu að síður eru skiptar skoðanir um hvort jólasveinninn sé yfirhöfuð til. Vísindavefur Háskólans hefur sett fram helstu rök með og á móti í málinu.

Jólastuð í Borgarleikhúsinu
Gleðin er haldin í Borgarleikhúsinu en þetta er í 22. sinn sem nemendur Kramhússins koma saman fyrir jól og sýna listir sínar. Ýmislegt verður á boðstólum eins og argentínskur tangó, þjóðdansar frá Balkanskaga, funk jazz, hip hop og flamenco.

Leggja saman kraftana í kortin
Hjónin Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Edda Guðmundsdóttir senda heimagerð jólakort í ár eins og oft áður. Kortin prýðir mynd af málverki eftir Eddu sem er frístundamálari en Steingrímur vinnur kortin í tölvunni og prentar þau út á góðan pappír.

Efni í handgerð og kort og heimage
"Kortagerð er eitt alvinsælasta föndrið fyrir jólin hjá okkur því þeir eru alltaf fleiri og fleiri sem gera jólakortin sín sjálfir," segir Björg Benediktsdóttir, kaupmaður í versluninni Föndru við Dalveg, spurð um heitustu vörurnar hjá handverksfólki nú um stundir.

Alvöru útsala í desember
Stórútsala er nú í versluninni Friendtex í Síðumúla 13 þar sem allar vörur verða seldar með 40-60% afslætti að minnsta kosti til jóla. Friendtex selur danskan kvenfatnað sem margir kannast við af heimakynningum og er margt á boðstólum svo sem peysur, íþróttagallar, jakkar, kápur, pils og buxur.

Lúsíubrauð
"Lúsíuhátíðin er afar falleg enda er lúsían tákn fyrir það góða í lífinu," segir hin sænska Kristina Anderson, stoðtækjasmiður þegar hún er spurð um Lúsíumessuna sem er þann 13. desember.

Nægur tími til að versla
Nú eru verslanir byrjaðar að hafa opið lengur. Í Smáralind er opið frá 11 til 22 alla daga til og með 22. desember með þeirri undantekningu að laugardaginn 18. desember er opið frá 10 til 22. Á Þorláksmessu er síðan opið frá 11 til 23 og á aðfangadag frá 10 til 13.

Þreyttir á að horfa hver á annan hálfberan
Pottverjar í Kópavogslaug héldu sinn árlega aðventufagnað á dögunum í húsakynnum laugarinnar með sameiginlegu hlaðborði og jólasögu. Þeir hafa hist í heita pottinum í yfir 20 ár en aðventustundin er sú tíunda í röðinni.

Loksins eitthvað fyrir karlana
Þetta er alveg nýtt hér á landi og ekki í neinni annarri Vero Moda-verslun í heiminum svo ég viti. Markmiðið hjá okkur er að bæta þjónustu um jólin því það er oft mikið að gera. Oft reynist erfitt að velja gjöf handa konunni en við leggjum okkur fram við að koma með sniðugar hugmyndir að jólagjöfum.

Úrvalið breytilegt dag frá degi
"Allir hlutirnir eru framleiddir á Sólheimum en þar eru sex vinnustofur. Þetta eru mikið til einstakir hlutir og má segja að úrvalið í versluninni sé breytilegt frá degi til dags," segir Sveinbjörn Pétursson hjá jólamarkaðinum.

Hringir inn jólin með virðuleika og reisn
Skjöldur Sigurjónsson veitingamaður hefur í fórum sínum forláta, upptrekkta klukku sem prýddi stofu alþýðuheimilis í byrjun síðustu aldar. Gripinn fékk hann í arf eftir ömmu sína og afa og hefur hún elt hann allar götur frá því að hann hóf búskap fyrir einum tuttugu árum.