Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Alisson Becker segist vera hundrað prósent klár í slaginn með brasilíska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í fótbolta þrátt fyrir að hafa misst af mörgum leikjum með Liverpool á nýloknu tímabili. Enski boltinn 13. júní 2026 20:15
Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Vinicius Junior er ofurstjarna á Spáni en fólk efast enn um hann í Brasilíu. Ein af stóru spurningunum í kringum brasilíska landsliðið er hvort Vinicius takist að sannfæra þjóðina á þessu heimsmeistaramóti. Fyrsti leikur Brasilíumanna er í kvöld á móti Marokkó. Fótbolti 13. júní 2026 19:06
Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey Ganamanninum Thomas Partey hefur verið neitað um vegabréfsáritun til Kanada, sem kemur í veg fyrir að hann geti spilað fyrsta leik Gana á heimsmeistaramótinu sem er gegn Panama í Toronto. Nú hefur Gana lagt fram mótmæli. Fótbolti 13. júní 2026 18:39
Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur tilkynnt að enski dómarinn Michael Oliver muni ekki dæma sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu 2026 vegna meiðsla. Fótbolti 13. júní 2026 17:49
Á sársaukafullar minningar af HM Brasilíumaðurinn Frederico Saraiva, Fred, leikmaður Fram í Bestu deild karla mun sitja límdur við skjáinn yfir leikjum Brassa á HM í sumar. Þeir hefja leik í kvöld. Íslenski boltinn 13. júní 2026 16:12
Stemningin á Times Square engri lík Mikil stemning hefur myndast á Times Square í New York-borg fyrir leik Brasilíu og Marokkó sem hefst í kvöld. Hátíðarhöldin hófust í gærkvöldi. Fótbolti 13. júní 2026 14:02
Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Hercules Gomez, fyrrverandi leikmaður bandaríska landsliðisins í fótbolta, sagði að fyrri hálfleikur Bandaríkjanna gegn Paragvæ væri besta frammistaða sem hann hefur séð. Fótbolti 13. júní 2026 12:18
Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Folarin Balogun átti frábæran leik þegar Bandaríkin lagði Paragvæ 4-1. Eftir frammistöðuna er hann valinn maður dagsins á HM hjá Vísi. Fótbolti 13. júní 2026 11:01
Verður ekki með í fyrsta leik á HM Carlo Ancelotti, þjálfari brasilíska landsliðsins, hefur staðfest að Neymar mun missa af fyrsta leik Brasilíu á HM. Brasilía mætir Marokkó í stórleik í kvöld. Fótbolti 13. júní 2026 10:33
Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Þjálfunartækjum var stolið af enska landsliðinu í fótbolta. Liðið á að mæta til æfinga í Kansas í dag en mun mögulega ekki hafa öll tæki og tól til staðar. Fótbolti 13. júní 2026 10:00
Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Bandaríkin tóku í nótt á móti Paragvæ í þriðja opnunarleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Heimamennirnir byrjuðu mótið sterkt með góðum sigri. Leikurinn endaði 4-1. Fótbolti 13. júní 2026 09:22
„Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Skotland spilar sinn fyrsta leik á HM síðan 1998 í kvöld þegar liðið mætir Haítí. Þar mun elsti leikmaður mótsins, og klefafélagi Tómasar Bent Magnússonar, koma við sögu. Fótbolti 13. júní 2026 09:01
Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Knattspyrnusérfræðingurinn Gary Neville telur að Harry Kane sé eini heimsklassaleikmaðurinn í HM-hópi Englands í ár. Fótbolti 13. júní 2026 08:01
Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Brasilíumenn misstu eina af hetjunum úr að margra mati besta fótboltalandsliði sögunnar og það aðeins nokkrum dögum fyrir fyrsta leik brasilíska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 13. júní 2026 07:01
Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Paul Pogba hefur haldið því fram að franska landsliðið á heimsmeistaramótinu í fótbolta í ár sé betra en meistaraliðið frá 2018, lið sem hann sjálfur var hluti af. Fótbolti 12. júní 2026 22:30
Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Gestgjafar Kanada gerðu jafntefli í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í fótbolta eftir að hafa verið lengi undir. Baráttuglaðir Bosníumenn voru nálægt sigri. Fótbolti 12. júní 2026 21:03
Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Thomas Partey mun ekki taka þátt í fyrsta leik Gana á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Toronto þar sem honum hefur verið neitað um landvistarleyfi í Kanada. Hann má aftur á móti spila leiki liðsins í Bandaríkjunum. Fótbolti 12. júní 2026 17:15
„Hafið þið ekki horft á leikina?“ Portúgalski landsliðsfyrirliðinn Cristiano Ronaldo fullvissaði þjóð sína um að hann væri í toppstandi, áður en portúgalski hópurinn fór upp í flugvél á leið til Flórída á heimsmeistaramótið í fótbolta í dag. Fótbolti 12. júní 2026 16:31
Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Eins manns dauði er annars brauð eins og fylgjendur Kelci Bowers urðu vitni að á Instagram þegar hún sýndi frá símtalinu þess efnis að kærasti hennar, Marco Senesi, hefði verið kallaður inn í HM-hóp Argentínu. Fótbolti 12. júní 2026 13:32
Almar ekki í kassanum Almar Steinn Atlason, sem alla jafnan er kallaður Almar í kassanum, varð ekki fyrir vali Fox Sports í leitinni að einstaklingum til að dvelja í glerbúri og fá borgað fyrir að horfa á HM í fótbolta. Fótbolti 12. júní 2026 13:32
Trump mætir ekki í kvöld Donald Trump Bandaríkjaforseti mætir ekki á fyrsta leik bandaríska landsliðsins á HM karla í fótbolta í kvöld. Fótbolti 12. júní 2026 12:48
Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fyrrum landsliðsstjörnur Suður-Afríku höfðu ekki margt að segja eftir tap liðsins fyrir Mexíkó í fyrsta leik á HM í fótbolta í gærkvöld. Grafarþögn var í stúdíóinu í beinni. Fótbolti 12. júní 2026 11:30
Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Hwang In-beom var hetja Suður-Kóreu í 2-1 endurkomu sigri gegn Tékklandi og er maður dagsins á HM hjá Vísi. Fótbolti 12. júní 2026 11:00
Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Nýjar reglur voru innleiddar fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem hefst í gær en hér á landi hafa þessar reglur verið í gildi frá því að Bestu deildirnar hófust. Einn besti dómari deildarinnar segir nýju reglurnar hafa reynst vel og býst við hröðum, skemmtilegum leikjum á HM. Tímasóun er þó ekki alveg úr sögunni. Fótbolti 12. júní 2026 10:00
Ferðaðist ekki með liðinu Scott McTominay, leikmaður Napoli, ferðaðist ekki með liðsrútunni þegar skoska landsliðið mætti á hótelið sitt í Boston. Hann ferðaðist einn með lækni eftir að hafa misst af síðustu æfingu liðsins vegna veikinda. Fótbolti 12. júní 2026 08:31
Hver er flottasta treyjan á HM? Skiptar skoðanir eru á fótboltatreyjum landanna 48 sem taka þátt á HM í sumar. Þær rjúka út í Boltamanninum í Fellsmúla. Fótbolti 12. júní 2026 08:01
Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Annar leikur A-riðils átti sér stað í nótt á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Þar sigraði Suður-Kórea Tékkland í spennandi leik 2-1. Fótbolti 12. júní 2026 07:38
Þá roðnaði Beckham Zlatan Ibrahimović sagði skemmtilega sögu af David Beckham þegar þeir voru liðsfélagar hjá franska stórliðinu Paris Saint-Germain. Fótbolti 12. júní 2026 07:03
Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Lionel Messi og Cristiano Ronaldo eru mættir á sitt sjötta heimsmeistaramót á ferlinum og setja með því met. Það eru ágætar líkur á því að þeir mætist á mótinu. Fótbolti 11. júní 2026 23:17
Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Gata í New York hefur verið endurnefnd eftir Thierry Henry í aðdraganda heimsmeistaramótsins 2026. Pele heitinn fær líka götu nefnda eftir sér. Fótbolti 11. júní 2026 22:33
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn