Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2026 22:31 Erling Braut Haaland með þvottabjörninn sinn undir hendinni við komuna til Noregs. @@Erling Hver hefði trúað því að uppstoppaður þvottabjörn væri einn af eftirsóttustu mununum eftir heimsmeistaramótið í fótbolta?
Norski ofurframherjinn Erling Braut Haaland kom út úr flugvélinni með uppstoppaðan þvottabjörn þegar hann lenti heima í Noregi eftir heimsmeistaramótið. Áhuginn á þvottabirninum rauk upp úr öllu valdi eftir að myndir birtust af Haaland með hann í fanginu. Eftir fjörutíu ára rekstur tryggðu tvær myndir af Haaland að verslunin í Texas í Bandaríkjunum sló met. Eftirspurnin hefur rokið upp en eigandinn er með dapurleg skilaboð. Fréttin á vef norska ríkissjónvarpsins.NRK Fimmtíu þúsund fyrirspurnir, fimmtán þúsund nýir fylgjendur á Instagram, 2300 seldir bolir og meteftirspurn eftir uppstoppuðum dýrum. Besti mánuður í sögu búðarinnar „Í síðasta mánuði áttum við besta mánuð sem búðin hefur nokkurn tímann átt, í allri sögu búðarinnar,“ sagði Cody Newport, eigandi kúrekabúðarinnar Wild Bills í Dallas í Texas-fylki. Þar er meðal annars hægt að kaupa stígvél, kúrekahatta og boli með áprenti. Eftir að hafa lagt Fílabeinsströndina að velli þann 30. júní mætti Haaland þangað til að uppfæra fataskápinn sinn. Eftir búðarheimsóknina birti markahrókurinn mynd með kúrekahatt, stígvél og í bol með textanum: „Y´all can kiss my Dallas“. „Hvað varðar bolina, þá höfum við selt um 2300 síðan hann keypti bolinn,“ sagði Newport við norska ríkisútvarpið. Ekki bara bolirnir sem hafa selst Áhuginn á bæði búðinni og vörunum sem hún selur hefur sprungið út í kjölfar Haaland-myndarinnar. Það eru ekki bara bolirnir sem hafa selst. Eftir að myndirnar af norska landsliðinu að lenda á norskri grundu birtust á skjám fólks sauð allt upp úr aftur. Wild Bill’s sold their last raccoon and it’s being shipped to … Norway Even fans in Norway fell in love with Texas lore pic.twitter.com/dQDPABJ2uJ— Just Mindy 🐊 (@just_mindy) July 15, 2026 „Ó nei, nú gerist það aftur – það sama og með bolina,“ sagði sölustjórinn Miguel Davila um það sem honum datt í hug þegar hann sá Haaland ganga út úr flugvélinni. Því það sem hann hélt á undir hendinni vakti mikla athygli: uppstoppaður þvottabjörn sem heldur á tómri ginflösku. Sá síðasti á leið til Noregs „Við eigum bara einn þvottabjörn eftir, og þetta er hann. Hann verður sendur til Noregs í dag eða á morgun,“ sagði framkvæmdastjórinn þegar NRK kom í heimsókn. Það lítur ekki út fyrir að það verði fljótlega aragrúi af uppstoppuðum þvottabjörnum á norskum heimilum. „Maðurinn sem býr þá til er kominn á eftirlaun, svo við getum ekki fengið fleiri,“ útskýrir Davila. „Þetta staðfestir einnig eigandi búðarinnar, sem segist vera að skoða lausnir. „Það er rétt. Birgirinn okkar, sem við fáum þetta frá, það er að segja maðurinn sem sér um uppstoppunina, er kominn á eftirlaun. Við verðum að finna aðra leið til að nálgast þetta,“ sagði Newport. Sjálfur íhugar hann að taka málin í eigin hendur. Bókstaflega. „Kannski verð ég að fara í nám í dýrauppstoppun,“ sagði Newport í gamni. It followed me home 🦝🤣 pic.twitter.com/IwMhgv0CAb— Erling Haaland (@Erling) July 13, 2026
HM 2026 í fótbolta Noregur Mest lesið Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Enski boltinn FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Íslenski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Dramatískur markaleikur á Brúnni Enski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Fleiri fréttir Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Sjá meira
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn