Flugóður forseti FIFA Valur Páll Eiríksson skrifar 17. júlí 2026 08:02 Infantino hefur flogið 114.562 kílómetra á einkaþotu á mótinu og enn á eftir að bætast við. vísir Margt hefur verið rætt og ritað um Gianni Infantino, forseta FIFA, í kringum HM karla í fótbolta sem fram fer vestanhafs. Umhverfisverndarsinnar setja út á gríðarlegt kolefnisspor hans á mótinu. Töluvert hefur verið sett út á Infantino og þá sérstaklega samband hans við Donald Trump. Hann sætir nú kæru fyrir Alþjóðaólympíunefndinni vegna ásakana um að hann hafi, fyrir tilstilli Trump, aflétt leikbanni framherja Bandaríkjanna. En Infantino verður ekki sakaður um annað en að vera duglegur. Í raun alveg flug óður á mótinu. Eftir að hafa mætt á nánast alla leiki á HM í Katar fyrir fjórum árum var ljóst að það tækist ekki á móti sem fram fer víðsvegar um Norður-Ameríku. En Infantino verður ekki sakaður annað en að reyna. Strax á öðrum degi flaug hann yfir tvö þúsund kílómetra frá Guadalajara til Los Angeles, daginn eftir til San Francisco, þaðan yfir til Vancouver og því næst á FIFA ráðstefnu í Miami. Hann hefur flogið Bandaríkin, Kanada og Mexíkó fram og aftur og endilöng á meðan mótinu hefur staðið með það fyrir augum að mæta á tvo leiki á dag eins oft og hægt er. Klippa: Flugferðir Infantino á HM Alls hefur hann mætt á 45 af 102 leikjum hingað til, og mun hafa mætt á 47 af 104 þegar mótinu lýkur. Þetta gerir Infantino á Gulfstream G650ER einkaþotu sem katörsk yfirvöld greiða undir hann. Hann fór einmitt á miðju móti, yfir tólf þúsund kílómetra til Katar til að votta emír ríkisins samúð sína vegna andláts föður hans. Degi síðar flaug hann aftur vestur um haf, aðra 12 þúsund kílómetra, til að sjá undanúrslitaleik Spánar og Frakklands. Þotan sem Infantino fær afnot af í gegnum katarska ríkið er af gerðinni Gulfstream G650ER.Mynd/Global Jet Alls hefur Infantino flogið 114.562 kílómetra á mótinu á einkaþotunni, tæplega þrisvar í kringum jörðina. Það skapar tæplega 600 tonn koltvísýrings. Það jafngildir kolefnisspori við að brenna 300 þúsund kíló af kolum, eða álíka spor og rafmagn og hiti fyrir 116 heimili í eitt ár. View this post on Instagram A post shared by Vísir (@visir.is) Þá er það á við að keyra bensíndrifinn bíl 3,4 milljónir kílómetra. Það er eins og að keyra hringveginn um Ísland oftar 2.500 sinnum. Færi maður hringinn það oft, keyrandi 8 tíma á dag, myndi það verkefni taka 13 ár að skilja eftir eins stórt kolefnisspor og Infantino. Kolefnissporið aðeins af flugum Infantino á mótinu er þá á við meðal spor 127 manns fyrir heilt ár. Flugferðir Gianni Infantino á HM 2026 11. júní: Mexíkó – Suður-Afríka (Mexíkóborg) -> 475 km -> Suður-Kórea – Tékkland (Guadalajara) -> 12. júní: -> 2.103 km -> Bandaríkin – Paragvæ (Los Angeles) -> 13. júní: -> 504 km -> Katar – Sviss (San Francisco) -> 1.323 km -> Ástralía – Tyrkland (Vancouver) -> 14. júní: -> 4.514 km -> FIFA ráðstefna, Miami -> 15. júní: -> 4.398 km Belgía – Egyptaland (Seattle) -> 1.547 km -> Íran – Nýja-Sjáland (Los Angeles) 16. júní: -> 2.198 km -> Argentína – Alsír (Kansas City) -> 17. júní: -> 1.040 km-> Portúgal – Kongó (Houston) -> 18. júní: -> 1.218 km -> Úsbekistan – Kólumbía (Mexíkóborg) -> 3.956 km -> Kanada – Katar (Vancouver) -> 19. júní: -> 6.505 km -> Skotland – Marokkó (Boston) -> 407 km -> Brasilía – Haíti (Philadelphia) -> 20. júní: -> 2.171 km -> Holland – Svíþjóð (Houston) -> 652 km -> Túnis – Japan (Monterrey) -> 21. júní: -> 1.757 km -> Spánn – Sádi-Arabía (Atlanta) -> 951 km -> Úrúgvæ – Grænhöfðaeyjar (Miami) -> 22. júní: -> 1.621 km -> Frakkland – Írak (Philadelphia) -> 137 km -> Noregur – Senegal (New Jersey) -> 10 km -> Bein útsending hjá Fox Studios (New York) 23. júní: -> 270 km -> England – Gana (Boston) -> 686 km -> Panama – Króatía (Toronto) -> 24. júní: -> 1.967 km -> Skotland – Brasilía (Miami) -> 25. júní: -> 1.069 km -> Curacao – Fílabeinsströndin (Philadelphia) -> 26. júní: -> 3.829 km -> Egyptaland – Íran (Seattle) -> 2.686 km -> Jórdanía – Argentína (Dallas) -> 27. júní: -> 1.794 km-> Kólumbía – Portúgal (Miami) -> 28. júní: -> 3.758 km -> Suður-Afríka – Kanada (Los Angeles) -> 29. júní: -> 2.213 km -> Brasilía – Japan (Houston) -> 657 km -> Holland – Marokkó (Monterrey) -> 30. júní: -> 842 km -> Fílabeinsströndin – Noregur (Dallas) -> 1.516 km -> Mexíkó – Ekvador (Mexíkóborg) -> 1. júlí: -> 2.169 km -> England – Kongó (Atlanta) -> 3.399 km -> Bandaríkin – Bosnía (San Francisco) -> 2. júlí: -> 505 km -> Spánn – Austurríki (Los Angeles) -> 1.740 km -> Sviss – Alsír (Vancouver) -> 3. júlí: -> 4.487 km -> Argentína – Grænhöfðaeyjar (Miami) -> 4. júlí: -> 1.547 km -> Kanada – Marokkó (Houston) -> 5. júlí: -> 1.209 km -> Mexíkó – England (Mexíkóborg) -> 6. júlí: -> 3.784 km -> Bandaríkin – Belgía (Seattle) -> 7. júlí: -> 196 km -> Sviss – Kólumbía (Vancouver) -> 9. júlí: -> 4.045 km -> Frakkland – Marokkó (Boston) -> 10. júlí: -> 4.202 km -> Spánn – Belgía (Los Angeles) -> 11. júlí: -> 3.769 km -> Noregur – England (Miami) -> 12. júlí: -> 12.405 km -> Útför Sheikh Hamad bin Khalifa Al Thani (Doha, Katar) -> 14. júlí: -> 11.129 km -> Frakkland – Spánn (Arlington) -> 15. júlí: -> 1.199 km -> England – Argentína (Atlanta) -> Alls: 114.562 kílómetrar Á eftir að bætast við: 18. júlí: -> 957 km -> England – Frakkland (Miami) -> 19. júlí: -> 1.753 km -> Argentína – Spánn (New York) FIFA Flug HM 2026 í fótbolta Umhverfismál Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjá meira
Töluvert hefur verið sett út á Infantino og þá sérstaklega samband hans við Donald Trump. Hann sætir nú kæru fyrir Alþjóðaólympíunefndinni vegna ásakana um að hann hafi, fyrir tilstilli Trump, aflétt leikbanni framherja Bandaríkjanna. En Infantino verður ekki sakaður um annað en að vera duglegur. Í raun alveg flug óður á mótinu. Eftir að hafa mætt á nánast alla leiki á HM í Katar fyrir fjórum árum var ljóst að það tækist ekki á móti sem fram fer víðsvegar um Norður-Ameríku. En Infantino verður ekki sakaður annað en að reyna. Strax á öðrum degi flaug hann yfir tvö þúsund kílómetra frá Guadalajara til Los Angeles, daginn eftir til San Francisco, þaðan yfir til Vancouver og því næst á FIFA ráðstefnu í Miami. Hann hefur flogið Bandaríkin, Kanada og Mexíkó fram og aftur og endilöng á meðan mótinu hefur staðið með það fyrir augum að mæta á tvo leiki á dag eins oft og hægt er. Klippa: Flugferðir Infantino á HM Alls hefur hann mætt á 45 af 102 leikjum hingað til, og mun hafa mætt á 47 af 104 þegar mótinu lýkur. Þetta gerir Infantino á Gulfstream G650ER einkaþotu sem katörsk yfirvöld greiða undir hann. Hann fór einmitt á miðju móti, yfir tólf þúsund kílómetra til Katar til að votta emír ríkisins samúð sína vegna andláts föður hans. Degi síðar flaug hann aftur vestur um haf, aðra 12 þúsund kílómetra, til að sjá undanúrslitaleik Spánar og Frakklands. Þotan sem Infantino fær afnot af í gegnum katarska ríkið er af gerðinni Gulfstream G650ER.Mynd/Global Jet Alls hefur Infantino flogið 114.562 kílómetra á mótinu á einkaþotunni, tæplega þrisvar í kringum jörðina. Það skapar tæplega 600 tonn koltvísýrings. Það jafngildir kolefnisspori við að brenna 300 þúsund kíló af kolum, eða álíka spor og rafmagn og hiti fyrir 116 heimili í eitt ár. View this post on Instagram A post shared by Vísir (@visir.is) Þá er það á við að keyra bensíndrifinn bíl 3,4 milljónir kílómetra. Það er eins og að keyra hringveginn um Ísland oftar 2.500 sinnum. Færi maður hringinn það oft, keyrandi 8 tíma á dag, myndi það verkefni taka 13 ár að skilja eftir eins stórt kolefnisspor og Infantino. Kolefnissporið aðeins af flugum Infantino á mótinu er þá á við meðal spor 127 manns fyrir heilt ár. Flugferðir Gianni Infantino á HM 2026 11. júní: Mexíkó – Suður-Afríka (Mexíkóborg) -> 475 km -> Suður-Kórea – Tékkland (Guadalajara) -> 12. júní: -> 2.103 km -> Bandaríkin – Paragvæ (Los Angeles) -> 13. júní: -> 504 km -> Katar – Sviss (San Francisco) -> 1.323 km -> Ástralía – Tyrkland (Vancouver) -> 14. júní: -> 4.514 km -> FIFA ráðstefna, Miami -> 15. júní: -> 4.398 km Belgía – Egyptaland (Seattle) -> 1.547 km -> Íran – Nýja-Sjáland (Los Angeles) 16. júní: -> 2.198 km -> Argentína – Alsír (Kansas City) -> 17. júní: -> 1.040 km-> Portúgal – Kongó (Houston) -> 18. júní: -> 1.218 km -> Úsbekistan – Kólumbía (Mexíkóborg) -> 3.956 km -> Kanada – Katar (Vancouver) -> 19. júní: -> 6.505 km -> Skotland – Marokkó (Boston) -> 407 km -> Brasilía – Haíti (Philadelphia) -> 20. júní: -> 2.171 km -> Holland – Svíþjóð (Houston) -> 652 km -> Túnis – Japan (Monterrey) -> 21. júní: -> 1.757 km -> Spánn – Sádi-Arabía (Atlanta) -> 951 km -> Úrúgvæ – Grænhöfðaeyjar (Miami) -> 22. júní: -> 1.621 km -> Frakkland – Írak (Philadelphia) -> 137 km -> Noregur – Senegal (New Jersey) -> 10 km -> Bein útsending hjá Fox Studios (New York) 23. júní: -> 270 km -> England – Gana (Boston) -> 686 km -> Panama – Króatía (Toronto) -> 24. júní: -> 1.967 km -> Skotland – Brasilía (Miami) -> 25. júní: -> 1.069 km -> Curacao – Fílabeinsströndin (Philadelphia) -> 26. júní: -> 3.829 km -> Egyptaland – Íran (Seattle) -> 2.686 km -> Jórdanía – Argentína (Dallas) -> 27. júní: -> 1.794 km-> Kólumbía – Portúgal (Miami) -> 28. júní: -> 3.758 km -> Suður-Afríka – Kanada (Los Angeles) -> 29. júní: -> 2.213 km -> Brasilía – Japan (Houston) -> 657 km -> Holland – Marokkó (Monterrey) -> 30. júní: -> 842 km -> Fílabeinsströndin – Noregur (Dallas) -> 1.516 km -> Mexíkó – Ekvador (Mexíkóborg) -> 1. júlí: -> 2.169 km -> England – Kongó (Atlanta) -> 3.399 km -> Bandaríkin – Bosnía (San Francisco) -> 2. júlí: -> 505 km -> Spánn – Austurríki (Los Angeles) -> 1.740 km -> Sviss – Alsír (Vancouver) -> 3. júlí: -> 4.487 km -> Argentína – Grænhöfðaeyjar (Miami) -> 4. júlí: -> 1.547 km -> Kanada – Marokkó (Houston) -> 5. júlí: -> 1.209 km -> Mexíkó – England (Mexíkóborg) -> 6. júlí: -> 3.784 km -> Bandaríkin – Belgía (Seattle) -> 7. júlí: -> 196 km -> Sviss – Kólumbía (Vancouver) -> 9. júlí: -> 4.045 km -> Frakkland – Marokkó (Boston) -> 10. júlí: -> 4.202 km -> Spánn – Belgía (Los Angeles) -> 11. júlí: -> 3.769 km -> Noregur – England (Miami) -> 12. júlí: -> 12.405 km -> Útför Sheikh Hamad bin Khalifa Al Thani (Doha, Katar) -> 14. júlí: -> 11.129 km -> Frakkland – Spánn (Arlington) -> 15. júlí: -> 1.199 km -> England – Argentína (Atlanta) -> Alls: 114.562 kílómetrar Á eftir að bætast við: 18. júlí: -> 957 km -> England – Frakkland (Miami) -> 19. júlí: -> 1.753 km -> Argentína – Spánn (New York)
Flugferðir Gianni Infantino á HM 2026 11. júní: Mexíkó – Suður-Afríka (Mexíkóborg) -> 475 km -> Suður-Kórea – Tékkland (Guadalajara) -> 12. júní: -> 2.103 km -> Bandaríkin – Paragvæ (Los Angeles) -> 13. júní: -> 504 km -> Katar – Sviss (San Francisco) -> 1.323 km -> Ástralía – Tyrkland (Vancouver) -> 14. júní: -> 4.514 km -> FIFA ráðstefna, Miami -> 15. júní: -> 4.398 km Belgía – Egyptaland (Seattle) -> 1.547 km -> Íran – Nýja-Sjáland (Los Angeles) 16. júní: -> 2.198 km -> Argentína – Alsír (Kansas City) -> 17. júní: -> 1.040 km-> Portúgal – Kongó (Houston) -> 18. júní: -> 1.218 km -> Úsbekistan – Kólumbía (Mexíkóborg) -> 3.956 km -> Kanada – Katar (Vancouver) -> 19. júní: -> 6.505 km -> Skotland – Marokkó (Boston) -> 407 km -> Brasilía – Haíti (Philadelphia) -> 20. júní: -> 2.171 km -> Holland – Svíþjóð (Houston) -> 652 km -> Túnis – Japan (Monterrey) -> 21. júní: -> 1.757 km -> Spánn – Sádi-Arabía (Atlanta) -> 951 km -> Úrúgvæ – Grænhöfðaeyjar (Miami) -> 22. júní: -> 1.621 km -> Frakkland – Írak (Philadelphia) -> 137 km -> Noregur – Senegal (New Jersey) -> 10 km -> Bein útsending hjá Fox Studios (New York) 23. júní: -> 270 km -> England – Gana (Boston) -> 686 km -> Panama – Króatía (Toronto) -> 24. júní: -> 1.967 km -> Skotland – Brasilía (Miami) -> 25. júní: -> 1.069 km -> Curacao – Fílabeinsströndin (Philadelphia) -> 26. júní: -> 3.829 km -> Egyptaland – Íran (Seattle) -> 2.686 km -> Jórdanía – Argentína (Dallas) -> 27. júní: -> 1.794 km-> Kólumbía – Portúgal (Miami) -> 28. júní: -> 3.758 km -> Suður-Afríka – Kanada (Los Angeles) -> 29. júní: -> 2.213 km -> Brasilía – Japan (Houston) -> 657 km -> Holland – Marokkó (Monterrey) -> 30. júní: -> 842 km -> Fílabeinsströndin – Noregur (Dallas) -> 1.516 km -> Mexíkó – Ekvador (Mexíkóborg) -> 1. júlí: -> 2.169 km -> England – Kongó (Atlanta) -> 3.399 km -> Bandaríkin – Bosnía (San Francisco) -> 2. júlí: -> 505 km -> Spánn – Austurríki (Los Angeles) -> 1.740 km -> Sviss – Alsír (Vancouver) -> 3. júlí: -> 4.487 km -> Argentína – Grænhöfðaeyjar (Miami) -> 4. júlí: -> 1.547 km -> Kanada – Marokkó (Houston) -> 5. júlí: -> 1.209 km -> Mexíkó – England (Mexíkóborg) -> 6. júlí: -> 3.784 km -> Bandaríkin – Belgía (Seattle) -> 7. júlí: -> 196 km -> Sviss – Kólumbía (Vancouver) -> 9. júlí: -> 4.045 km -> Frakkland – Marokkó (Boston) -> 10. júlí: -> 4.202 km -> Spánn – Belgía (Los Angeles) -> 11. júlí: -> 3.769 km -> Noregur – England (Miami) -> 12. júlí: -> 12.405 km -> Útför Sheikh Hamad bin Khalifa Al Thani (Doha, Katar) -> 14. júlí: -> 11.129 km -> Frakkland – Spánn (Arlington) -> 15. júlí: -> 1.199 km -> England – Argentína (Atlanta) -> Alls: 114.562 kílómetrar Á eftir að bætast við: 18. júlí: -> 957 km -> England – Frakkland (Miami) -> 19. júlí: -> 1.753 km -> Argentína – Spánn (New York)
FIFA Flug HM 2026 í fótbolta Umhverfismál Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjá meira