Handtekinn í Varsjá með þýfi úr Leifsstöð Karlmaður, sem handtekinn var á flugvellinum í pólsku höfuðborginni á Þorláksmessu vegna þjófnaðar úr flugstöðinni þar, reyndist einnig vera með þýfi úr Leifsstöð í fórum sínum. Innlent 28. desember 2019 08:48
Farþegaþota fórst í Kasakstan Að minnsta kosti fjórtán fórust þegar farþegaþota með 98 innanborðs brotlenti við Almaty-flugvöllinn í suðausturhluta Kasakstan í nótt. Erlent 27. desember 2019 06:19
Mikil tækifæri framundan á Grænlandi fyrir verktaka Spennandi tímar fara í hönd á Grænlandi með mikilli uppbyggingu. Framkvæmdastjóri Ístaks segir að þar séu framundan stór verkefni, sem fyrirtækið vilji taka þátt í. Viðskipti innlent 26. desember 2019 21:38
Níu flug frá landinu í dag Þetta er veruleg aukning frá síðustu árum en lengi vel var ekkert millilandaflug frá landinu á jóladag. Innlent 25. desember 2019 12:42
Forstjóri Boeing rekinn Stjórn bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing hefur ákveðið að skipta um forstjóra. Viðskipti erlent 23. desember 2019 14:55
Gera ráð fyrir 7,6 prósent fækkun farþega á næsta ári Heildarfjöldi komufararfarþega verði tæpar 2,6 milljónir sem er 1,4% samdráttur frá í fyrra. Innlent 23. desember 2019 13:00
Hallgerður langbrók ekki lengur í innanlandsfluginu Air Iceland Connect hefur leigt eina af Bombardier Q400-vélum sínum úr landi, TF-FXB, sem gekk undir heitinu Hallgerður langbrók, og er hún farin til Afríku. Viðskipti innlent 23. desember 2019 11:30
WOW Air leigir húsnæði fyrir væntanlega söluskrifstofu í Washington WOW Air hefur tekið húsnæði á leigu í Washingtonborg í Bandaríkjunum og merkt það félaginu. Til stendur að opna þar söluskrifstofu þegar félagið mun hefja flug á milli Washington og Keflavíkur. Þetta staðfestir Gunnar Steinn Pálsson, almannatengill félagsins. Viðskipti innlent 23. desember 2019 11:01
Vilja að aðgerðahópurinn vinni hratt Samgönguráðherra og ferðamálaráðherra hafa undirritað viljayfirlýsingu um frekari uppbyggingu á Akureyrarflugvelli. Aðgerðahópur hefur verið stofnaður sem á að vinna tillögur að uppbyggingu. Innlent 22. desember 2019 22:00
Boeing lenti geimfari sem hlekktist á Jómfrúarflug Starliner-geimferju Boeing gekk ekki sem skyldi en fyrirtækinu tókst þó að lenda henni aftur í heilu lagi. Viðskipti erlent 22. desember 2019 14:41
Borga tíu milljarða fyrir Icelandair hótelin Gert er ráð fyrir því að gengið verði frá sölu Icelandair Group á Icelandair Hotels til dótturfélags malasíska félagsins Berjaya Land Berhad í lok febrúar árið 2020 en ekki árslok 2019 líkt og áður var stefnt að. Viðskipti innlent 20. desember 2019 20:00
Segir Play reyna að sækja fjármagn á gaddfreðnum markaði Illa hefur gengið að koma nýjum flugfélögum á koppinn hér á landi. Greinandi segir algjört frost á fjármálamarkaði og afar erfitt að sækja fé í rekstur. Viðskipti innlent 20. desember 2019 19:12
Nýtt geimfar Boeing náði ekki réttri sporbraut Starliner, nýtt geimfar Boeing, sem Bandaríkin ætla að nota til að flytja geimfara út í geim, náði ekki réttri sporbraut í fyrstu ferð farsins til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Erlent 20. desember 2019 13:42
Icelandair Cargo semur við FedEx og TNT Icelandair Cargo hefur gert samning við FedEx og TNT um flutninga á öllum þeirra vörum til og frá Íslandi. Viðskipti innlent 20. desember 2019 09:24
Forstjóri Icelandair segir að fljótlega þurfi að ákveða arftaka Boeing 757 Icelandair stefnir að ákvörðun um þotukaup fljótlega á nýju ári. Einn möguleikinn sem félagið skoðar er að skipta alfarið yfir í Airbus-þotur. Viðskipti innlent 19. desember 2019 21:39
Taldir hafa látið undan þrýstingi að koma vélinni sem missti olíuþrýsting í rekstur Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að flugvirkjar og yfirmenn á viðhaldssviði Air Iceland Connect hafi látið undan þrýstingi við að koma flugvél félagsins, sem missti olíuþrýsting á hægri hreyfli skömmu eftir flugtak á Reykjavíkurflugvelli á síðasta ári, í rekstur og ekki fylgt því verklagi sem þeim bar að fylgja. Innlent 19. desember 2019 18:30
Starfsmenn Play búnir að fá borgað Aðstandendur flugfélagsins Play eru búin að greiða starfsmönnum sínum laun fyrir nóvembermánuð. Viðskipti innlent 19. desember 2019 17:45
Hættir við hótel í hjarta Nuuk vegna mótmæla Aðaleigandi Icelandair Hotels, malasíska hótelkeðjan Berjaya Corporation Berhad, hefur fallið frá áformum sínum um að reisa lúxushótel víð Nýlenduhöfn í Nuuk. Ástæðan er hávær mótmæli gegn staðsetningunni. Viðskipti erlent 18. desember 2019 16:38
Býst við að Maxarnir fljúgi í maímánuði og jafnvel fyrr Forstjóri Icelandair segist fastlega gera ráð fyrir að MAX-vélarnar fljúgi á ný í maímánuði í vor og jafnvel fyrr. Icelandair er þó jafnframt viðbúið frekari kyrrsetningu. Viðskipti innlent 17. desember 2019 22:18
Skipa aðgerðarhóp um Akureyrarflugvöll Sigurður Ingi Jóhansson samgönguráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra munu skipa aðgerðahóp sem falið verður að setja fram tillögur um hvernig megi byggja Akureyrarflugvöll upp sem aðra gátt fyrir ferðamenn inn í landið. Innlent 17. desember 2019 20:19
Spænsk kona tekin með kókaín í Leifsstöð: „Þetta er algjör sprenging“ Sjö eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum í sjö aðskildum málum fyrir smygl á hörðum fíkniefnum til landsins. Embættið hefur aldrei lagt hald á eins mikið af sterkum efnum og í ár, eða 63 kíló. Innlent 17. desember 2019 19:15
Leyfum flugvelli að blómstra á nýjum stað Það er stefna Viðreisnar að finna miðstöð innanlandsflugs á höfuðborgarsvæðinu nýjan stað. Það er því gleðilegt samkomulag sem borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag, sem felur í sér rannsóknir á möguleikum á byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni og er vonandi fyrsta skrefið í því að flytja flugvöllinn. Skoðun 17. desember 2019 18:00
Bein útsending: Hart tekist á um flugvallarmálið í borgarstjórn Samkomulag um rannsóknir á möguleikum á byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni er á meðal umræðuefna á fundi borgarstjórnar sem hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 14. Innlent 17. desember 2019 14:25
Lækkun í Kauphöllinni: Icelandair segist reikna með MAX vélum í rekstur í maí Icelandair gerir nú ráð fyrir því að Boeing 737 MAX flugvélar verði komnar í rekstur í maí 2020. Áður hafði verið gert ráð fyrir vélunum í flugáætlun félagsins í byrjun mars. Viðskipti innlent 17. desember 2019 10:10
Boeing mun stöðva framleiðslu 737 MAX tímabundið Fregnirnar koma í kjölfar þess að bandarísk flugmálayfirvöld gáfu það út í síðustu viku þarlendum flugfélögum yrði ekki leyft að taka umræddar vélar aftur í notkun fyrr en á næsta ári. Viðskipti erlent 16. desember 2019 21:39
Isavia gerir stóran samning við breskt fyrirtæki vegna stækkunar flugvallarins Isavia hefur gert langtímasamning við breska byggingar- og ráðgjafafyrirtækið Mace um verkefnaumsjón og verkeftirlit vegna fyrirhugaðra framkvæmda við stækkun Keflavíkurflugvallar. Viðskipti innlent 16. desember 2019 15:19
Lendir í Keflavík vegna reyks um borð Flugvél frá bandaríska flugfélaginu Delta hefur verið stefnt að Keflavíkurflugvelli. Innlent 16. desember 2019 07:37
Michelle Ballarin fór af landi brott í morgun Bandaríska athafnakonan Michelle Ballarin fór af landi brott í morgun en hún hefur verið hér síðustu daga og unnið að endurreisn WOW Air. Innlent 15. desember 2019 12:46
Flugvél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak vegna bilunar Flugvél Icelandair sem verið var að fljúga til Boston var snúið við skömmu eftir flugtak í kvöld. Engin hætta var á ferð. Innlent 14. desember 2019 21:04
Þarf að fljúga frá Reykjavík til Keflavíkur til að afferma búnað C130 Hercules-flugvél danska flughersins þarf að fljúga frá Reykjavíkurflugvelli til Keflavíkurflugvallar, áður en haldið er norður í land, þar sem ekki er hægt að afferma búnað um borð í vélinni í Reykjavík. Innlent 12. desember 2019 12:58