Þjálfari karlaliðsins biðst afsökunar á að hafa klappað fyrir Rubiales Luis de la Fuente, þjálfari spænska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur beðist afsökunar á því að hafa klappað fyrir ræðu Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins, þar sem hann sagðist ekki ætla að segja af sér í kjölfar þess að hafa kysst Jenni Hermoso gegn hennar vilja. Fótbolti 1. september 2023 18:01
„Upp úr riðlinum, takk!“ Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir leikmenn liðsins ekki komna í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar til þess eins að taka þátt. Spennan sé mikil fyrir verkefninu. Fótbolti 1. september 2023 17:15
Nýjustu tíðindi gætu haft slæm áhrif á skipti Gravenberch til Liverpool Upp hafa komið vandamál varðandi möguleg félagsskipti portúgalska miðjumannsins Joao Palhinha frá Fulham til Bayern Munchen, vandamál sem geta haft áhrif til hins verra fyrir Liverpool sem er að reyna ganga frá félagsskiptum Ryan Gravenberch frá Bayern Munchen. Enski boltinn 1. september 2023 16:21
„Búnir að blása af Tenerife-ferðir“ Oliver Sigurjónsson, leikmaður karlaliðs Breiðabliks í fótbolta er virkilega spenntur fyrir komandi verkefni liðsins í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu en í dag fengu Blikar að vita hvaða liðum þeir myndu mæta í riðlakeppninni. Oliver segir Blika ekki mæta í þessa keppni bara til að taka þátt, þeir ætla sér stig. Fótbolti 1. september 2023 15:00
Sverrir Ingi dregur sig úr landsliðshópi Íslands Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur þurft að draga sig úr landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir komandi verkefni liðsins í undankeppni EM 2024 vegna meiðsla. Fótbolti 1. september 2023 14:49
Skælbrosandi Gylfi Þór mættur til æfinga: „Gríðarlega erfiður tími“ Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby deilir í dag myndum af æfingu liðsins þar sem sjá má nýjustu viðbæturnar í leikmannahópnum, þá Gylfa Þór Sigurðsson og Marc Muniesa. Fótbolti 1. september 2023 14:35
Þórður mun þjálfa þrjú landslið Íslands Þórður Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari U16 og U17 landsliða kvenna. Samhliða því mun hann þjálfa U23 lið kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ. Fótbolti 1. september 2023 14:00
Veltir fyrir sér hvort Southgate sé of trúr sínum uppáhalds mönnum Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, tilkynnti á fimmtudag hópinn sem mætir Úkraínu og Skotlandi síðar í þessum mánuði. Southgate er trúr sínum mönnum og velur leikmenn sem hafa lítið sem ekkert spilað sem og einn sem spilar nú í Sádi-Arabíu. Fótbolti 1. september 2023 13:31
Altay fyllir skarð Henderson á Old Trafford Markvörðurinn Altay Bayındır er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Hann skrifar undir samning til ársins 2027 með möguleika á árs framlengingu. Enski boltinn 1. september 2023 12:31
Breiðablik í sögulegum B-riðli í Evrópu Breiðablik dróst í riðil með Gent, Maccabi Tel Aviv og Zorya Luhansk í B-riðil riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu en dregið var nú rétt í þessu í Mónakó. Fótbolti 1. september 2023 12:00
Riðlar Evrópudeildarinnar: Liverpool til Frakklands | Brighton fær verðugt verkefni Dregið var í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta núna í morgun en lið úr ensku úrvalsdeildinni á borð við Liverpool, West Ham United og Brighton voru í pottinum ásamt öðrum vel þekktum liðum úr Evrópuboltanum. Sevilla er ríkjandi Evrópudeildarmeistari eftir sigur gegn Roma í úrslitaleik síðasta tímabils. Fótbolti 1. september 2023 11:36
Englandsmeistararnir staðfesta Nunes og selja Palmer til Chelsea Englandsmeistarar Manchester City hafa staðfest kaupin á miðjumanninum Matheus Nunes. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið. Þá er hinn ungi Cole Palmer genginn í raðir Chelsea. Enski boltinn 1. september 2023 11:30
Tileinkaði andstæðingunum í úrslitaleik HM verðlaunin Sarina Wiegman, þjálfari Englands, var í gærkvöld valin þjálfari ársins í kvennaflokki af UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu. Hún tileinkaði spænska kvennalandsliðinu, liðið sem hafði betur gegn Englandi í úrslitum HM, verðlaunin sín. Fótbolti 1. september 2023 11:01
Erlendir fjölmiðlar fjalla um vistaskipti Gylfa Þórs Fjöldi erlendra fjölmiðla hefur fjallað um vistaskipti knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar. Hann er nýjasti leikmaður Íslendinganýlendunnar Lyngby sem spilar í dönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 1. september 2023 10:01
Fyrsta sinn sem allar Norðurlandaþjóðir eiga lið í riðlakeppni Í fyrsta skipti í sögunni eiga allar Norðurlandaþjóðirnar Ísland, Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Færeyjar öll knattspyrnulið sem munu keppa í riðlakeppni Evrópukeppna. Þetta varð ljóst í gær þegar Breiðablik tryggði sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 1. september 2023 09:30
„Þá kemur auðvitað leiðinlega svarið: Það er FH á sunnudaginn“ „Það sem við ætluðum að passa upp á að láta ekki spennustigið, láta ekki viðburðinn ná stjórn á okkur. Ætluðum að reyna halda í helstu gildin okkar, þora að halda boltanum, þora að koma framarlega, þora að spila sóknarleik. Ekki að lenda í því að fara verja forystuna,“ sagði Óskar Hrafn um leikskipuleg gærkvöldsins. Fótbolti 1. september 2023 09:01
Heimsmeistarinn Bonmatí og markaprinsinn Håland best að mati UEFA Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, tilkynnti í gærkvöld hverjir væru leikmenn og þjálfarar ársins að mati sambandsins. Fótbolti 1. september 2023 08:30
Allir leikir Íslands í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport Allir leikir íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu á árinu verða í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Fyrstu leikirnir verða 8. september gegn Lúxemborg ytra og svo 11. september gegn Bosníu og Hersegóvínu á Laugardalsvelli. Fótbolti 1. september 2023 08:01
Laugardalsvöllur eini möguleiki Blika hér á landi Breiðablik komst í gær í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Er þetta í fyrsta skipti sem karlalið frá Íslandi kemst svo langt í Evrópukeppni. Þó mikil gleði fylgi slíkum árangri þá fylgja því líka ýmis vandamál, til að mynda hvar skal spila leikina? Fótbolti 1. september 2023 07:31
Man United selur Henderson og fær vinstri bakvörð frá Tottenham Það hefur verið nóg um að vera á skrifstofu enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United í kvöld en félagið seldi leikmann sem og það virðist hafa fundið vinstri bakvörð. Enski boltinn 31. ágúst 2023 23:31
Orri Steinn pollrólegur þegar í ljós kom að FCK myndi mæta Man Utd: „Ég sver það“ Orri Steinn Óskarsson, framherji Danmerkurmeistara FC Kaupmannahafnar og nýliða í íslenska landsliðinu, mætti í útvarpsþáttinn „Veislan með Gústa B“ fyrr í dag. Á sama tíma var dregið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og þar kom í ljós að FCK mætir liðinu sem Orri Steinn heldur með í enska boltanum, Manchester United. Fótbolti 31. ágúst 2023 23:00
Þórir Jóhann lánaður til Þýskalands Knattspyrnumaðurinn Þórir Jóhann Helgason hefur verið lánaður frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Lecce til Eintracht Braunschweig í þýsku B-deildinni. Fótbolti 31. ágúst 2023 22:00
Gravenberch á leið til Liverpool fyrir rúman fimm og hálfan milljarð Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch er á leið til enska úrvalalsdeildarliðsins Liverpool frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Hann kostar Liverpool 40 milljónir evra eða 5,7 milljarða íslenskra króna. Enski boltinn 31. ágúst 2023 21:45
Valgeir Lunddal í Evrópudeildina á meðan Hákon Arnar fer í Sambandsdeildina Í kvöld kom í ljós hvaða lið komust í riðlakeppni Evrópu- og Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu. Fyrr í kvöld tryggði Breiðablik sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar en nú er öllum leikjum kvöldsins lokið. Fótbolti 31. ágúst 2023 21:31
Andrea Mist: Maður gerir bara það sem maður er góður í Andrea Mist Pálsdóttir var maður leiksins í kvöld þegar Stjarnan vann FH í fyrstu umferð umspils Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Leikar enduðu 3-2 fyrir Stjörnuna og koma Andrea að öllum mörkunum, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Fótbolti 31. ágúst 2023 21:00
„Settum tóninn strax í upphafi leiks“ Amanda Jacobsen Andradóttir lék á als oddi í framlínu Vals þegar liðið skellti Þór/KA með sex mörkum gegn engu í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Samherjar Amöndu nutu góðs af spilamennsku hennar en hún lagði upp fjögur marka Valsliðsins eftir að hafa brotið ísinn með fyrsta marki leiksins. Fótbolti 31. ágúst 2023 20:45
Enn að átta sig á afrekinu: „Maður lagði bara allt í sölurnar í dag“ Viktor Karl Einarsson, markaskorari Breiðabliks í leiknum mikilvæga í kvöld gegn Struga í Sambandsdeild Evrópu, segir tilfinninguna sem fylgir því að hafa tryggt sér sæti í riðlakeppni í Evrópukeppni fyrst íslenskra karlaliða í fótbolta vera ólýsanlega. Fótbolti 31. ágúst 2023 20:30
Fjölnir galopnaði toppbaráttuna Fjölnir opnaði toppbaráttu Lengjudeildar karla í knattspyrnu upp á gátt með 4-2 sigri á toppliði Aftureldingar í kvöld. Þróttur Reykjavík lyfti sér upp úr fallsæti með 5-0 sigri á Grindavík. Íslenski boltinn 31. ágúst 2023 20:16
Fyrirliði Breiðabliks eftir afrek kvöldsins: „Hugrekki, trú og barnaháttur hefur skilað okkur hingað“ „Ótrúlega stoltur, þetta er búið að vera vegferð sem við hófum fyrir þremur árum, eiginlega fjórum. Hugrakkir og barnalegir í Þrándheimi, skíttöpuðum þar. Það í raun lagði fyrsta steininn að þessu,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, eftir að liðið tryggði sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 31. ágúst 2023 19:55
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - FH 3-2 | Stjörnukonur sýndu fagmennsku í sigri Annað af heitustu liðum deildarinnar, Stjarnan, hélt góðu gengi sínu áfram í fyrstu umferð umspils hluta Bestu deildar kvenna í kvöld þegar liðið lagði FH 3-2 á heimavelli. Stjarnan var hárbeitt fram á við ásamt því að sýna afar þéttan og góðan varnarleik til að sigla sigrinum heim og halda pressunni annað sæti deildarinnar. FH náði í sárabótarmörk í lokin en komust ekki nógu langt. Íslenski boltinn 31. ágúst 2023 19:54