Fyrrverandi leikmaður Man United gjaldþrota Wes Brown, fyrrverandi varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, hefur lýst yfir gjaldþroti. Hann lagði skóna á hilluna árið 2018 eftir að hafa spilað með Kerala Blasters á Indlandi. Enski boltinn 21. apríl 2023 09:00
Paratici segir starfi sínu hjá Tottenham lausu Fabio Paratici, yfirmaður knattspyrnumála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham Hotspur, hefur sagt starfi sínu lausu. Enski boltinn 21. apríl 2023 08:31
Borgarstjóri Manchester færði Páfanum áhugaverða gjöf Andy Burnham, borgarstjóri Manchester-svæðisins í Englandi, færði Francis Páfa áhugaverða gjöf þegar hann heimsótti Vatíkanið á dögunum. Enski boltinn 21. apríl 2023 07:31
„Erfitt að vinna fótboltaleik þegar þú gerir svona mistök“ Erik ten Hag, stjóri Man Utd, segir sitt lið ekki geta kennt neinu öðru en sjálfum sér um hvernig leikurinn gegn Sevilla í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gærkvöldi spilaðist. Fótbolti 21. apríl 2023 07:01
Dramatík þegar Rómverjar komust í undanúrslitin AS Roma, Sevilla, Juventus og Bayer Leverkusen eru liðin sem munu skipa undanúrslit Evrópudeildarinnar í ar. Fótbolti 20. apríl 2023 21:58
Víkingsbanarnir úr leik og West Ham örugglega í undanúrslitin Lech Poznan er úr leik í Sambandsdeild Evrópu þrátt fyrir frækinn útisigur á Fiorentina í 8-liða úrslitum keppninnar í kvöld. Fótbolti 20. apríl 2023 21:22
Man Utd úr leik eftir martraðar frammistöðu á Spáni Manchester United er úr leik í Evrópudeildinni eftir stórtap gegn Sevilla á Spáni í kvöld. Fótbolti 20. apríl 2023 21:00
Juventus fær stigin aftur og fer upp um fjögur sæti Ítalska stórliðið Juventus skaust upp í þriðja sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag þó ekki sé leikið í deildinni í dag. Fótbolti 20. apríl 2023 18:15
Mörkunum rigndi á fyrsta degi sumars í Fossvoginum Víkingur Reykjavík, Grindavík, Þór Akureyri og Fylkir tryggðu sér í dag farseðilinn í 16 liða úrslit Mjólkubikars karla í fóbolta. Fótbolti 20. apríl 2023 17:45
Njarðvík og FH verða í pottinum Njarðvík og FH tryggðu sér í dag sæti í 16 liða úrslitum Mjólkubikars karla í fótbolta. Fótbolti 20. apríl 2023 16:02
Gylfi Þór staddur á Íslandi eftir tvö ár í farbanni Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta er staddur hér á landi en hann var á dögunum leystur úr farbanni eftir að saksóknaraembættið í Manchester ákvað að kæra hann ekki vegna meints kynferðisbrots hans. Fótbolti 20. apríl 2023 12:43
Saliba ekki með og Zinchenko tæpur Arsenal verður áfram án William Saliba þegar liðið mætir Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla á Emirates á morgun. Þá er ólíklegt að Oleksandr Zinchenko verði með þegar topplið deildarinnar leiðir saman hesta sína við botnliðið. Fótbolti 20. apríl 2023 11:43
HM í hættu hjá fyrirliða enska landsliðsins Leah Williamson, fyrirliði Arsenal og enska kvennalandsliðsins í fótbolta, fór meidd af velli þegra Arsenal laut í lægra haldi fyrir Manchester United í toppslag ensku efstu deildarinnar í gærkvöldi. Fótbolti 20. apríl 2023 11:12
Besta spáin 2023: Nýir leikmenn þurfa að falla eins og flís við rass Eins og svo oft áður er erfitt að lesa í lið ÍBV áður en flautað er til leiks á Íslandsmótinu. Erlendir leikmenn koma seint til móts við liðið og þá er erfitt að átta sig á hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið. Íslenski boltinn 20. apríl 2023 10:01
Mörk Meistaradeildarinnar: Håland nálgast fimmtíu og markasúpa á San Siro Alls voru átta mörk skoruð í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær, miðvikudag. Bayern München og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli á meðean Inter og Benfica gerðu 3-3 jafntefli. Fótbolti 20. apríl 2023 09:00
Rashford fór með til Andalúsíu Marcus Rashford ferðaðist með Manchester United til Andalúsíu þar sem liðið mætir Sevilla í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Einvígið er í járnum eftir 2-2 jafntefli á Old Trafford. Enski boltinn 20. apríl 2023 08:00
Skrásetur frasann „Wagatha Christie“ eftir að hafa tapað fleiri hundruð milljónum Rebekah Vardy, eiginkona knattspyrnumannsins Jamie Vardy, hefur fengið frasann eða orðatiltækið „Wagatha Christie“ skrásettan sem vörumerki. Vardy tapaði meiðyrðamáli sínu gegn Coleen Rooney, eiginkonu fyrrverandi knattspyrnumannsins Wayne Rooney. Fótbolti 20. apríl 2023 07:02
„Við erum uppgefnir“ Pep Guardiola var ánægður með þá staðreynd að Manhester City væri komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þriðja árið í röð en hann hefur miklar áhyggjur af leikjaálaginu næstu vikurnar. Fótbolti 19. apríl 2023 23:30
Þróttur sparkaði fyrrum nágrönnum sínum úr leik | Hádramatík hjá Stjörnunni Öllum leikjum kvöldsins í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu er nú lokið. Þróttur Reykjavík lagði Fram í Úlfarsárdal, Valur „marði“ neðri deildarlið RB, Stjarnan og Keflavík fóru áfram eftir framlengda leiki. Íslenski boltinn 19. apríl 2023 23:01
Inter mætir nágrönnum sínum í AC Milan í undanúrslitum Inter Milan stöðvaði Evrópuævintýri Benfica og tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 3-3 jafntefli á San Siro í kvöld. Inter vann fyrri leik liðanna í Portúgal 2-0 og einvígið því 5-3. Fótbolti 19. apríl 2023 21:40
Manchester City í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu Bayern München þurfti kraftaverk til að komast áfram eftir 3-0 tap í fyrri leik liðsins gegn Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það gekk ekki eftir en leik kvöldsins lauk með 1-1 jafntefli. Fótbolti 19. apríl 2023 21:25
Russo hetja Man United gegn Skyttunum Alessia Russo skoraði eina mark leiksins þegar Manchester United vann Arsenal 1-0 í leik sem gæti skipt sköpum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 19. apríl 2023 20:35
Breiðablik, KA, KR og Leiknir Reykjavík í sextán liða úrslit Breiðablik, KR og KA fóru nokkuð örugglega áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Þá vann Leiknir Reykjavík dramatískan sigur. Íslenski boltinn 19. apríl 2023 20:02
Selma Sól á toppnum í Noregi | Willum Þór brenndi af vítaspyrnu Landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir og stöllur hennar í Rosenborg tróna um þessar mundir á toppi norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Willum Þór Willumsson brenndi af vítaspyrnu í Hollandi en það kom ekki að sök. Fótbolti 19. apríl 2023 19:00
Sonur Marcelos valdi Spán fram yfir Brasilíu Sonur Marcelos, fyrrverandi fyrirliða Real Madrid, hefur verið valinn í spænska U-15 ára landsliðið í fyrsta sinn þrátt fyrir að faðir hans hafi spilað 58 leiki fyrir brasilíska landsliðið á sínum tíma. Fótbolti 19. apríl 2023 16:30
Þvertekur fyrir fullyrðingar íslenskra miðla um meiðsli sín Danski sóknarmaðurinn Jannik Pohl, leikmaður Bestu deildar liðs Fram gefur lítið fyrir fréttaflutning íslenskra fjölmiðla af meiðslum sínum og ætlar sér að vera mættur aftur inn á knattspyrnuvöllinn eftir tvo mánuði. Fótbolti 19. apríl 2023 15:01
Miðvarðasveit Man City möguleg lausn á vandræðum í Meistaradeildinni Enn eitt vorið virðist sem Pep Guardiola hafi fundið hina fullkomnu blöndu þegar kemur að því hvað þarf að gera til að vinna Meistaradeild Evrópu. Það er þangað til eitthvað klikkar. Enski boltinn 19. apríl 2023 13:00
Ísland lenti í riðli með sigursælasta liðinu Ísland dróst í riðil með Grikklandi, Noregi og Spáni í lokakeppni Evrópumóts U19-landsliða karla í fótbolta en dregið var í dag. Fótbolti 19. apríl 2023 12:16
Sjáðu stórkostlegan sprett Rafaels Leao og tvennu Rodrygos Fjögur mörk voru skoruð í leikjunum tveimur í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Fótbolti 19. apríl 2023 12:14
Sonur nýs landsliðsþjálfara þakkar fyrir miðana og er spenntur að koma hingað til lands Bendik Hareida, sonur nýráðins þjálfara karlalandsliðs Íslands í fótbolta, þakkar KSÍ fyrir miða á landsleiki sumarsins í færslu á samfélagsmiðlum. Fótbolti 19. apríl 2023 11:30