Schumacher leggur stýrið á hilluna Ökuþórinn Michael Schumacher hefur tilkynnt að hann muni leggja stýrið á hilluna í enda tímabilsins. Það verður í annað sinn sem Schumi hættir og að þessu sinni er ákvörðunin endanleg. Formúla 1 4. október 2012 09:30
Suzuka hefur framkallað stórkostleg mót Formúla 1-sirkusinn keppir næst á Suzuka-brautinni í Japan um komandi helgi. Brautin er talin vera ein sú erfiðasta fyrir ökumenn í Formúlu 1 og hefur kappaksturinn þar af leiðandi framkallað mörg undraverð og dramatísk augnablik í sögu Formúlunnar. Formúla 1 3. október 2012 17:00
Grikkir merkja 30 milljón evrur fyrir kappakstursbraut Samsteypustjórnin í Grikklandi hefur eyrnamerkt 30 milljón evrur kappakstursbraut sem þeir hyggjast byggja. Vonir eru bundnar við að geta einn daginn haldið grískan kappakstur á brautinni. Formúla 1 3. október 2012 15:00
Sauber kannar Schumacher fyrir næstu vertíð Ákveði Michael Schumacher ekki að draga sé í hlé öðru sinni á ferlinum í lok ársins gæti vel farið svo að hann aki fyrir Sauber-liðið á næsta ári. Yfirmenn Sauber segjast vera að athuga þennan möguleika. Formúla 1 2. október 2012 19:15
Button refsað í Japan McLaren-ökuþórinn Jenson Button mun ræsa fimm sætum aftar í japanska kappakstrinum um næstu helgi en tími hans í tímatökum segir til um. McLaren þurfti að skipta um gírkassa í bíl Buttons og er honum því refsað. Formúla 1 2. október 2012 15:30
Alain Prost ók Formúlubíl í fyrsta sinn í 16 ár Formúlu 1 goðsögnin og fjórfaldi heimsmeistarinn Alain Prost ók Formúlu 1-bifreið í fyrsta sinn síðan 1996 í dag. Prost sagði tækifærið hafa verið frábært. Formúla 1 30. september 2012 21:30
Lewis Hamilton yfirgefur McLaren fyrir Mercedes árið 2013 Breski McLaren-ökuþórinn Lewis Hamilton mun aka fyrir Mercedes-liðið í Formúlu 1 á næsta ári. Sergio Perez mun taka sæti Hamilton hjá McLaren. Formúla 1 28. september 2012 12:47
Senna brann á bakinu í Singapúr Bruno Senna, ökuþór Williams-liðsins í Formúlu 1, er með brunasár á bakinu eftir kappaksturinn í Singapúr um síðustu helgi. Williams-liðið hefur staðfest að vitlausra tenginga í sæti Senna hafi orsakað brunann, ekki KERS-bilun sem kom upp í bílnum um leið. Formúla 1 27. september 2012 16:45
Útlitið ekki bjart fyrir franskan kappakstur Það bendir allt til þess að Frakkar verði enn að bíða þess að geta haldið mót í Formúlu 1 á ný því ný ríkisstjórn sósíalista hefur sagst ekki ælta að veita ríkisfjármagn til mótshaldsins. Formúla 1 27. september 2012 14:30
Hamilton segist hafa verið í góðum málum Lewis Hamilton hjá McLaren segist aðeins hafa verið "á rúntinum" áður en gírkassinn í McLaren-bílnum bilaði í singapúrska kappakstrinum í gær. Gríkassavandræðin komu honum í opna skjöldu. Formúla 1 24. september 2012 06:00
Schumacher refsað fyrir árekstur Michael Schumacher, ökumaður Mercedes-liðsins í Formúlu 1, verður gert að ræsa tíu sætum aftar á ráslínu í Japan vegna árekstursins sem hann olli í kappakstrinum í Singapúr í dag. Formúla 1 23. september 2012 20:23
Vettel sigurvegari í Singapúr en Hamilton í vandræðum Þýski heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull-bíl vann Formúlu 1 kappaksturinn í Singapúr í dag. Kappaksturinn var gríðarleg vonbrigði fyrir Lewis Hamilton á McLaren-bíl en lenti í vandræðum með gírkassann og þurfti að draga sig í hlé. Formúla 1 23. september 2012 14:23
Lewis Hamilton á ráspól í Singapúr McLaren-ökuþórinn Lewis Hamilton ræsir fremstur í singapúrska kappakstrinum á morgun. Hann ók hraðast um götubrautina í Singapúr í tímatökum í dag. Pastor Maldonado á Williams var næst fljótastur. Formúla 1 22. september 2012 14:16
Citroen hinn franski og Ford hinn breski háðu stríð í Wales Það var spenna innan hópsins, þegar nokkrir áhugamenn um rallý drifu sig til Wales á Englandi dagana 13. – 16. september, til að fylgjast með 80 ára afmæli breska rallsins, en það var fyrst haldið árið 1932. Maður sér ekki alveg fyrir sér aksturskeppnir á Íslandi árið 1932 þegar fjöldi bíla á Íslandi var einungis um 1500 talsins og enginn af þeim notaður til keppnishalds. Formúla 1 21. september 2012 17:45
Perez rólegur þrátt fyrir mikið lof Sergio Perez, ökumaður Sauber-liðsins í Formúlu 1, er rólegur yfir framtíðinni og einbeitir sér að singapúrska kappakstrinum um helgina. Perez hefur veirð orðaður við Ferrari og McLaren síðan hann ók síðast. Formúla 1 20. september 2012 18:00
Hamilton talinn líklegastur í Singapúr McLaren-ökuþórinn Lewis Hamilton er talinn líklegastur til að sækja sigur í singapúrska kappakstrinum um helgina. Hamilton hefur verið gríðarlega sterkur um borð í McLaren-bílnum í undanförnum mótum. Formúla 1 20. september 2012 15:30
Kappaksturslæknirinn Sid Watkins látinn Sid Watkins, frumkvöðull í öryggismálum í kappakstri, lést í gærkvöldi 84 ára að aldri. Hann var lykilmaður í að gera Formúlu 1-kappaksturinn eins öryggan og hann er í dag. Formúla 1 13. september 2012 18:30
Kubica vann fyrsta mót endurkomunnar Pólski ökuþórinn Robert Kubica vann sigur í sínu fyrsta móti eftir að hafa lent í lífshættulegu slysi fyrir rúmu einu og hálfu ári. Kubica keppti í ítölsku landsrally í dag. Formúla 1 9. september 2012 20:58
Hamilton vann ítalska kappaksturinn - Alonso enn efstur í titilslagnum Lewis Hamilton var fyrstur yfir endalínuna á Ítalíu í dag þegar Formúla 1 keppti á Monza-brautinni. Allt leit út fyrir að McLaren-liðið myndi raða báðum bílum sínum í tvö efstu sætin. Jenson Button var á góðri leið með að landa öðru sæti þegar bílinn bilaði. Formúla 1 9. september 2012 13:47
Hamilton á ráspól og Button annar í Monza Lewis Hamilton á McLaren mun ræsa fremstur í ítalska kappakstrinum á brautinni í Monza á morgun. Liðsfélagi hans, Jenson Button, mun ræsa annar í kappakstrinum. Alonso klúðraði síðasta tímatökuhringnum og ræsir aðeins tíundi. Formúla 1 8. september 2012 13:20
Schumacher og Hamilton fljótastir á æfingum í Monza Mercedes knúnir bílar voru fljótastir á æfingum dagsins fyrir ítalska kappaksturinn í Monza í dag. Michael Schumacher, sem ekur fyrir Mercedes-liðið, var fljótastur á æfingum morgunsins og Lewis Hamilton, á McLaren-bíl, var fljótastur á æfingunum í hádeginu. Formúla 1 7. september 2012 13:47
Hamilton leysir Schumacher af hjá Mercedes, segir Jordan Michael Schumacher mun hætta í Formúlu 1 í annað sinn á ferlinum í lok ársins og Lewis Hamilton mun taka sæti hans hjá Mercedes. Þetta segir Eddie Jordan eftir að hafa kannað málið sálfur. Formúla 1 5. september 2012 18:00
Button vonsvikin með trúnaðarbrest Hamiltons Jenson Button, liðsmaður McLaren-liðsins í Formúlu 1, segist vera mjög vonsvikin með að liðsfélagi hans, Lewis Hamilton, hafi birt mynd af leynilegum upplýsingum McLaren-liðsins á Twitter í kjölfar tímatökunnar á laugardag. Formúla 1 4. september 2012 22:30
D'Ambrosio ekur fyrir Lotus á Monza Belgíski ökuþórinn Jerome d'Ambrosio mun aka í stað Romain Grosjean í ítalska kappakstrinum um komandi helgi. Grosjean var bannað að keppa á Ítalíu vegna slyssins sem hann var valdur af í upphafi belgíska kappakstursins á sunnudaginn. Formúla 1 4. september 2012 20:30
Grosjean bannað að keppa á Ítalíu Romain Grosjean, ökumaður Lotus í Formúlu 1, hefur hlotið eins móts bann fyrir að vera valdur af hörðum árekstri í upphafi belgíska kappakstursins í dag. Fernando Alonso, Lewis Hamilton og Sergio Perez, auk Grosjean, komust ekki í gegnum fyrstu beygju í kappakstrinum. Formúla 1 2. september 2012 16:38
Maldonado refsað - Raikkönen ræsir þriðji Pastor Maldonado, ökumaður Williams liðsins í Formúlu 1, hefur hlotið þriggja sæta refsingu fyrir að hindra Nico Hulkenberg í fyrstu lotu tímatökunnar í dag fyrir belgíska kappaksturinn. Maldonado ræsir því sjötti í kappakstrinum á morgun. Formúla 1 1. september 2012 20:29
Button á ráspól í Belgíu í fyrsta sinn fyrir McLaren Breski ökuþórinn Jenson Button mun ræsa fremstur í belgíska kappakstrinum á morgun. Tímatökunni lauk rétt í þessu og skilaði hún óvanalegum niðurstöðum. Formúla 1 1. september 2012 13:20
Hamilton vill ekki hjálp frá Button Lewis Hamilton, ökumaður McLaren-liðsins í Formúlu 1, vill ekki að liðið beiti liðsskipunum svo Jenson Button hjálpi honum í titilbaráttunni. McLaren hefur sagt það mögulegt að Button verði gert að hjálpa til í stað þess að sækja titilinn sjálfur. Formúla 1 31. ágúst 2012 21:30