Missti auga í F1-árekstri en má nú keyra á ný Maria de Villota, fyrrum æfingaökumaður í formúlu eitt, hefur fengið leyfi til þess að setjast á bak við stýrið á ný. Hún missti hægri augað í slysi í júlí í fyrra þegar hún var að prufa Marussia-formúlubíl í Cambridgeshire. Formúla 1 27. febrúar 2013 23:00
Alonso fljótastur á þriðja degi æfinganna Fernando Alonso á Ferrari varð fljótastur um Barcelona-brautina á þriðja degi æfinganna þar í gær. Öll liðin óku marga hringi og einbeittu sér síðdegis að keppnisaðstæðum. Formúla 1 22. febrúar 2013 06:00
Kubica fékk ekki keppnissæti í DTM Pólski ökuþórinn Robert Kubica var hafnað af Mercedes-bílaframleiðandanum á dögnunum þegar hann fékk ekki úthlutað keppnissæti í DTM-mótaröðinni í ár. Ungstirnið Daniel Juncadella var valinn í hans stað. Formúla 1 21. febrúar 2013 09:15
Perez fljótastur á öðrum degi McLaren-nýliðinn Sergio Perez ók hraðast um brautina í Barcelona í dag. Hann, heimsmeistarinn Sebastian Vettel, Lewis Hamilton, Kimi Raikkönen og Fernando Alonso höfðu skipst á að setja besta tíma allan daginn. Formúla 1 20. febrúar 2013 17:46
Rosberg fljótastur í Mercedes-bíl í Barcelona Nico Rosberg var örlítið fljótari umhverfis brautina í Barcelona þegar Formúlu 1-liðin hófu aðra æfingalotuna á undirbúningstímabilinu í gær. Hann var 7 þúsundustu úr sekúndu fljótari en Kimi Raikkönen á Lotus. Formúla 1 20. febrúar 2013 06:00
Sutil prófar Force India í Barcelona Adrian Sutil mun snúa aftur í Formúlu 1 í vikunni því Force India-liðið hefur staðfest að þýski ofbeldismaðurinn muni fá að spreyta sig á æfingum keppnisliðanna í Barcelona. Formúla 1 19. febrúar 2013 22:45
Williams frumsýndi í Barcelona Williams F1 frumsýndi keppnisbíl sinn fyrir árið 2013 í Barcelona í dag áður en önnur æfingalota undirbúningstímabilsins hófst þar í morgun. FW25-bíllinn er uppfærð útgáfa af bíl síðasta árs enda hefur reglunum ekki verið breytt mikið milli ára. Formúla 1 19. febrúar 2013 17:30
Grosjean sótti tíma hjá sálfræðingi Lotus-ökuþórinn Romain Grosjean heimsótti sálfræðing reglulega í haust til þess að reyna að koma í veg fyrir heimskupör sín á brautinni. Honum var til að mynda bannað að keppa í Ítalíu eftir slys í upphafi belgíska kappakstursins í september. Formúla 1 14. febrúar 2013 06:00
De la Rosa vill vera formaður GPDA áfram Pedro de la Rosa, tilraunaökuþór Ferrari-liðsins, vill vera formaður samtaka Grand Prix-ökumanna (GPDA) áfram árið 2013. Formúla 1 13. febrúar 2013 08:00
Häkkinen: Hamilton að taka mikla áhættu Mika Häkkinen, tvöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og fyrrum ökuþór McLaren-liðsins, segir að Lewis Hamilton hafi tekið mikla áhættu þegar hann skipti frá McLaren til Mercedes-liðsins í vetur. Formúla 1 13. febrúar 2013 06:00
Whitmarsh: Of margir kaupa sér keppnissæti Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren-liðsins í Formúlu 1, hefur sagt suma keppnisökuþórana í Formúlu 1 alls ekki nógu góða og segir þá kaupa sér keppnissæti frekar en að eiga þau skilið. Formúla 1 12. febrúar 2013 20:15
Ólíklegt að Scorpion Racing fái að vera með Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, hefur hafnað umsókn Scorpion Racing-liðsins um að fá að keppa í Formúlu 1 í ár. Scorpion Racing vilja kaupa þrotabú HRT-liðins og keppa í formúlunni. Formúla 1 11. febrúar 2013 20:00
Lotus á toppnum eftir fyrstu æfingar Kimi Raikkönen, ökuþór Lotus-liðsins í Formúlu 1, varð fljótastur á æfingum dagsins í Jerez í dag. Þetta var síðasti æfingadagurinn í Jerez af fjórum. Formúla 1 8. febrúar 2013 17:25
Völdu versta ökuþór síðustu 20 ára Lesendur veftímaritsins Autosport hafa valið versta Formúlu 1 ökuþór síðastliðna 20 ára. Fyrir valinu varð Japaninn Takachiho "Taki" Inoue sem keppti í átján mótum árin 1994 og 1995 með ömurlegum árangri. Formúla 1 7. febrúar 2013 19:30
Massa á Ferrari langfljótastur í Jerez Felipe Massa setti besti tíma ársins á Jerez-brautinni í dag þegar hann ók hringinn 0,4 sekúndum hraðar en Romain Grosjean gerði í gær og heilli sekúndu hraðar en Jenson Button gerði fyrir tveimur dögum. Mun fleiri hringir voru eknir í dag en í gær. Formúla 1 7. febrúar 2013 18:15
Grosjean fljótastur á öðrum degi æfinga í Jerez Dagurinn í Jerez á Spáni var kaldur þegar Romain Grosjean setti besta tímann í Lotus E21-bíl sínum í dag. Hann ók 0,6 sekúndum hraðar en Jenson Button gerði í gær. Formúla 1 6. febrúar 2013 17:57
Nítján mót staðfest í Formúlu 1 2013 Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, hefur nú staðfest að aðeins 19 mót verða á dagskrá Formúlu 1 árið 2013. Ecclestone hefur undanfarnar vikur reynt að finna tuttugasta mótshaldarann en það hefur ekki gengið. Formúla 1 6. febrúar 2013 06:00
Caterham og Marussia frumsýndu keppnisbílana Botnliðin tvö, Caterham og Marussia, frumsýndu keppnisbíla sína á Jerez-brautinni í dag áður en fyrstu æfingar undirbúningstímabilsins hófust þar í morgun. Bæði lið fylgja sömu línum og þau notuðu í fyrra. Formúla 1 5. febrúar 2013 19:30
Button fljótastur á fyrstu æfingum ársins McLaren-liðið í Formúlu 1 hóf undirbúningstímabilið á toppnum því Jenson Button ók langhraðast um Jerez-brautina á Spáni í dag. Hann fór 0,8 sekúndum hraðar en Mark Webber á Red Bull-bíl. Formúla 1 5. febrúar 2013 16:47
Newey segir frumsýningar gamaldags Adrian Newey, yfirhönnuður Red Bull-liðsins í Formúlu 1 og einhver sigursælasti hönnuður í mótorsporti allra tíma, segir frumsýningar á nútíma Formúlu 1-bílum vera úrelltar. Formúla 1 5. febrúar 2013 06:00
Mercedes og Toro Rosso frumsýndu Mercedes-liðið í Formúlu 1 frumsýndi keppnisbíl sinn í Jerez á Spáni í dag. Á morgun hefjast þar fyrstu æfingar keppnistímabilið sem framundan er. Formúla 1 4. febrúar 2013 20:30
Red Bull frumsýndi RB9-bílinn Red Bull-liðið í Formúlu 1 frumsýndi keppnisbíl sinn sem liðið hyggist nota árið 2013 í dag. Þeir Sebastian Vettel og Mark Webber munu aka fyrir Red Bull í sumar. Formúla 1 3. febrúar 2013 14:13
Ferrari og Force India frumsýndu í dag Ferrari-liðið svipti hulunni af nýja keppnisbíl liðsins sem þeir Fernando Alonso og Felipe Massa munu aka í sumar. Bílinn kalla þeir F138 og er hann þróaður út frá hönnun bílsins sem notaður var í fyrra. Formúla 1 1. febrúar 2013 21:30
McLaren frumsýndi nýjan keppnisbíl McLaren-liðið í Formúlu 1 hefur frumsýnt keppnisbíl sinn fyrir árið 2013 sem þeir kalla MP4-28. Þeir Jenson Button og Sergio Perez munu aka bílnum, sem eins og nýi Lotus-bíllinn, svipar mjög til forvera síns. Formúla 1 31. janúar 2013 23:00
Nürburgring á dagskrá 7. júlí Samningar hafa tekist með Bernie Ecclestone og mótshöldurum í Nürburg í Þýskalandi þar sem Nürburgring-kappakstursbrautina er að finna. Fyrr í vikunni sagði Ecclestone samninga um kappakstur þar í sumar hafa strandað. Formúla 1 31. janúar 2013 20:30
Vill verða betri ökuþór Einn efnilegasti kappakstursökuþór Íslendinga er Hinrik Wöhler, tvítugur handboltamaður í Víkingi. Hann stefnir langt í mótorsportinu og dreymir um að spreyta sig í gókarti gegn þeim bestu í Evrópu. Formúla 1 30. janúar 2013 06:00
Lotus frumsýndi E21-bílinn í gær Lotus-liðið í Formúlu 1 frumsýndi keppnisbíl sinn fyrir árið 2013 á vefnum í gærkvöldi. Bíllinn er byggður á bíl síðasta árs sem reyndist liðinu mjög áreiðanlegur. Formúla 1 29. janúar 2013 18:00
Þýski kappaksturinn í uppnámi Þýski kappaksturinn í ár mun ekki fara fram á Nürburgring eins og til stóð því samningar hafa ekki náðst milli mótshaldara og Formúlu 1. Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, hefur gefið samninga upp á bátinn. Formúla 1 28. janúar 2013 22:00
Alonso verður ekki með í Jerez Fernando Alonso, stjörnuökuþór Ferrari-liðsins, mun ekki taka þátt í fyrstu æfingum undirbúningstímabilsins í Jerez á Spáni í byrjun febrúar. Felipe Massa og nýráðinn tilraunaökuþór liðsins, Pedro de la Rosa, verða í eldlínunni. Formúla 1 25. janúar 2013 06:00
Glock og Kubica reynsluóku fyrir DTM Þjóðverjinn Timo Glock hafði BMW M3 DTM-bíl til reynslu í Barcelona í dag en sagði á dögunum skilið við Formúlu 1. Glock fær ekki að aka fyrir Marussia í Formúlu 1 í ár og viðraði strax áhuga sinn á þýska götubílakappakstrinum. Formúla 1 24. janúar 2013 22:45