Neyðaraðgerð bjargaði lífi Massa Brasilíumaðurinn Felipe Massa hefur verið vakinn úr dái, en honum hefur verið haldið meira og minna sofandi síðan hann lenti í óhappi í tímatökum í Búdapest á laugardag. Sérstakur blaðamannafundur var haldin á AEK spítalanum í Búdapest í kvöld. Formúla 1 27. júlí 2009 21:41
Massa braggast hægt og rólega Læknar sem sjá um Felipe Massa á spítla í Búdapest eftir slys tímatökum á laugardaginn segja að líðan hans sé stöðug og fyrstu merki um að hann nái fullri heilsu séu jákvæð. Þó sé enn of snemmt að fullyrða stöðu hans. Formúla 1 27. júlí 2009 11:10
Hamilton: Átti ekki von á sigri Lewis Hamilton frá Bretlandi vann nokkuð öruggan sigur í Formúlu 1 mótinu í Búdapest í dag. Hann varð á undan Kimi Raikkönen á Ferrari og Mark Webber á Red Bull. Formúla 1 26. júlí 2009 15:24
Hamilton vonast til að ná forystu Heimsmeistarinn Lewis Hamilton er fjórði á ráslínu fyrir kappaksturinn í Búdapest í dag. Hann kveðst vonast eftir að ná forystu, þar sem hann er með KERS búnað í bílnum sem gefur honum 80 auka hestöfl umfram þrjá fremstu ökumennina. Formúla 1 26. júlí 2009 08:57
Skýring á slysi Massa og breytt ráslína Í ljósi þess að Felipe Massa keppir ekki vegna þess að hann höfuðkúpubrotnaði í tímatökunni í gær, þá hefur staða manna breyst á ráslínunni. Formúla 1 26. júlí 2009 07:01
Massa reyndist höfuðkúpubrotinn eftir slys Brasilíumaðurinn Felipe Massa liggur á gjörgæsludeild á spítala í Búdapest eftir slys í tímatökum í dag. Hann skall harkalega á varnarvegg eftir að aðskotahlutur skaust í hjálm hans og rotaði hann. Formúla 1 25. júlí 2009 17:11
Óttast var um líf Massa eftir óhapp Tímatakan fyrir kappaksturinn í Ungverjalandi tók á sig dramatíska mynd þegar Felipe Massa keyrði beint útaf á varnarvegg eftir að hafa fengið brot úr öðrum bíl í hjálminn á fullri ferð. Formúla 1 25. júlí 2009 14:13
Hamilton fljótastur á lokaæfingunni Lewis Hamilton hélt uppteknum hætti frá æfingum í gær og náði besta tíma á lokaæfingu keppnisliða í Búdapest í morgun fyrir tímatökuna, sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.45 í dag. Formúla 1 25. júlí 2009 10:13
McLaren í fyrsta og öðru sæti Heimsmeistarinn Lewis Hamilton var með besta tíma á seinni æfingu keppnisliða á Búdapest brautinni í dag og félagi hans Heikki Kovalainen var aðeins 47/1000 á eftir honum. Kovalainen var sneggstur á fyrri æfingunni. Formúla 1 24. júlí 2009 13:32
Alonso: Button enn líklegasti meistarinn Fernando Alonso telur að Jenson Button sé enn líklegasti Formúlu 1 meistarinn í ár, þó Red Bull liðið hafi unnið tvö síðustu mót. Button er með 20 stiga forskot á Sebastian Vettel og Mark Webber sem voru í fyrsta og öðru sæti í síðustu mótum. Formúla 1 24. júlí 2009 11:17
Kovalainen stal senunni í Búdapest Finninn Heikki Kovalainen á McLaren náði besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Búdapest í morgun. Hann náði tímanum í síðasta mögulega hringnum eftir 90 mínútna æfingatíma á brautinni. Formúla 1 24. júlí 2009 09:38
Mark Webber áfram hjá Red Bull Ástralinn Mark Webber hefur skrifað undir samning við Red Bull um áframhaldandi veru hjá liðinu 2010. Þetta var tilkynnt í dag í Ungverjalandi, en Formúlu 1 verður þar um helgina. Formúla 1 23. júlí 2009 14:33
Dauðaslys rætt í Rásmarkinu Hið hörmulega dauðaslys í Bretlandi um síðustu helgi verður rætt í Rásmarkinu á Stöð 2 Sport í kvöld. Henry Surtees lést í slysinu, en Kristján Einar Kristjánsson ók með honum í Formúlu 3 í fyrra. Formúla 1 23. júlí 2009 08:22
Brawn bjartsýnn á gott gengi Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Brawn liðsins segir að bíll liðsins hafi verið endurbættur frá síðsta móti og liðið ætli sér stóra hluti í Ungverjalandi um næstu helgi. Brawn liðið er með forystu í stigakeppni ökumanna og bílasmiða. Formúla 1 22. júlí 2009 11:13
Pressan ekki Ferrari stjóranum ofviða Stefano Domenicali er ekki að kikna undan álaginu þó Ferrari hafi ekki gengið sem skyldi á þessu keppnistímabili og Red Bull og Brawn berjist um titilinn. Formúla 1 22. júlí 2009 08:51
Bretar í sjokki vegna kappakstursslyss Breskir áhugamenn um kappakstur og ökumenn í ýmsum mótaröðum í kappakstri Í Bretlandi eru í sjokki vegna dauðaslyss Henry Surtees á sunnudaginn. Hann lést eftir að dekk úr öðrum bíl sem keyrði á vegg lenti í höfði hans í miðri keppni. Formúla 1 21. júlí 2009 09:08
Vatanen ósáttur við forseta FIA Finninn Ari Vatnane sem býður sig fram til forseta FIA í október er ósáttur við framgöngu Max Mosley forseta FIA í síðustu viku. Þá sendi Mosley bréf frá sér til aðildarfélaga FIA og lýsti yfir stuðningi við Jean Todt, sem einnig ætlar að bjóða sig fram til forseta. Formúla 1 20. júlí 2009 09:56
Sonur frægs ökumanns fórst í kappakstri Sviplegt slys varð í Formúlu 2 keppni í Bretlandi í dag, þegar sonur frægs ökumanns lést í keppni. Henry Surtees, 18 ára sonur John Surtees lést eftir að hjól af öðrum bíl skall í höfði hans og hann rotaðist. Bíll hans endasentist á vegg og hann lést af sárum sínum á spítala. Formúla 1 19. júlí 2009 21:33
Ökumönnum Red Bull frjálst að kljást Þó mikið sé undir hjá Red Bull keppnisliðinu sem hefur unnið tvö síðustu Formúlu 1 mót, þá segir Christian Horner að Mark Webber og Sebastian Vettel sem frjálst að keppa af fullri hörku við hvorn annan. Liðið á góða möguleika á titlum í ár, eftir gott gengi. Formúla 1 17. júlí 2009 09:11
Jean Todt býður sig fram til forseta FIA Frakkinn knái Jean Todt hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta FIA í október, en þá verður kjörið milli hans og Ari Vatanen og fleiri ef einhverjir bjóða sig fram. Formúla 1 16. júlí 2009 13:41
Bourdais rekinn frá Torro Rosso Franski ökumaðurinn Sebastian Bourdais hefur verið sagt upp hjá Torro Rosso með formlegum hættum. Liðið tilkynnti þetta í dag. Formúla 1 16. júlí 2009 11:00
Alonso eygir enn Ferrari sæti 2010 Ferrari vill ná í Fernando Alonso fyrir árið 2010 og skipta honum út fyrir Kimi Raikkönen sem hefur ekki unnið mót síðan í Barcelona 2008. Svo mæla fróðir menn hjá Autosport stærsta Formúlu 1 riti heims, en Toyota hefur boðið Raikkönen starf á næsta ári og Brawn liðið hefur líika borið víurnar í hann. Formúla 1 16. júlí 2009 08:21
Max Mosley hættir sem forseti FIA Max Mosley sem verið hefur forseti FIA í 16 ár hyggst ekki bjóða sig fram enn eitt kjörtímabilið, en kosið verður í október. Hann sendi öllum aðildarfélögum FIA skeyti þess efnis í dag. Formúla 1 15. júlí 2009 10:54
Ecclestone heppinn að halda starfinu Stjórnarmaður CVC sem á og rekur sjónvarps og mótaréttinn á Formúlu 1 segir að Bernie Ecclestone sé heppinn að hafa haldið starfinu, eftir ummæli þar sem hann mærði atorku Hitlers í liðinni viku. Sir Martin Sorell segir að í öllum öðrum fyrirtækjum hefði Ecclestone verið látinn fara Formúla 1 15. júlí 2009 10:21
Barrichello runninn reiðin vegna taps Brasilíunaðurinn Rubens Barrichello var æfur út í Brawn liðið eftir kappaksturinn á Nurburgring á sunnudaginn. Taldi að liðið hefði klúðrað málum, þannig að hann tapaðiu af sigurmöguleikanum. Formúla 1 15. júlí 2009 08:38
Webber með titanium efni í fætinum Framkvæmarstjóri Red Bull, Christian Horner er mjög dagfarsprúður maður og stýrir liði sem hefur unnið tvö mót í röð og samfagnaði Mark Webber innilega. Formúla 1 14. júlí 2009 06:45
Webber stoltur af fyrsta sigrinum Ástralinn Mark Webber vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 með Red Bull, sem varð í fyrsta og öðru sæti, en Sebastian Vettel fylgdi í kjölfar Webbers. Webber fótbrotnaði illa og axlarbrotnaði í vetur, en með strangri endurhæfingu gat hann stigið um borð í Formúlu 1 bíl í upphafi tímabilsins. Formúla 1 13. júlí 2009 10:20
Webber og Vettel í fyrsta og öðru sæti Red Bull liðið vann glæsilegan tvöfaldan sigur á Nurburgring Formúlu 1 brautinni í dag: Mark Webber vann sinn fyrsta Formúlu 1 sigur á ferlinum og saman rúlluðu hann og Vetttel Brawn liðinu upp í þessu móti. Formúla 1 12. júlí 2009 15:12
Webber vonast eftir fyrsta sigrinum Fjórir fremstu ökumenn í stigamótinu í Formúlu 1 ræsa af stað í þýska kappaksturinn í hádeginu í dag og eru fremstu menn á ráslínu. Mark Webber er fremstur og Rubens Barrichello við hliði hans. Fyrir aftan eru Jenson Button og Sebastian Vettel, en þessir kappar berjast um titilinn og beint fyrir aftan verður Lewis Hamilton, núverandi meistari. Spáð er regnskúum á meðan keppni stendur, en svipað veður hristi upp í tímatökunni í gær. Formúla 1 12. júlí 2009 10:26
Webber fljótastur í ævintýralegri tímatöku Ástralinn Mark Webber var fljótastur allra í skrautegri og spennandi tímatöku á Nurburgring brautinni í Þýsklandi í dag. Veðurguðirnir stríddu ökumönnum, sem þurftu að taka mikilvægar ákvarðnir undir miklu álagi. En toppmennirnir í titilslagnum eru í fyrstu fjórum sætunum á ráslínu. Formúla 1 11. júlí 2009 13:10