Finnland

Finnland

Höfuðborg: Helsinki. Mannfjöldi: 5,6 milljónir (2025). Flatarmál: 338.455 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Engir flökkudrónar fundist í Finn­landi

Finnsk yfirvöld segja að engir flökkudrónar hafi fundist eftir að almannavarnatilkynning var gefin út til íbúa Helsinki í nótt um að halda kyrru fyrir innandyra. Forsætisráðherrann segir viðbrögð yfirvalda ekki hafa verið ýkt miðað við tilefnið.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Euro­vision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla

Eurovison, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fer fram 70. skiptið í ár en keppnin verður haldin í höfuðborg Austurríkis, Vín, og hefst á þriðjudaginn, þann 12. maí.  Tölurnar sýna greinilega að lög þess árs ná ekki til áhorfenda á sama stigi og undanfarin ár en spilunartölur Eurovision á Spotify hafa nánast helmingast.

Tónlist
Fréttamynd

Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífs­mark

Þjóðskrá Finnlands íhugar nú að skrá látna á þriðja þúsund manns sem eru hundrað ára eða eldri nema öldungarnir gefi sig fram og sanni að þeir séu á lífi. Einstaklingarnir á lista stofnunarinnar hafa ekkert látið á sér kræla í skrám hennar undanfarin fimm ár.

Erlent
Fréttamynd

„Við erum ekki hrædd“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney forsætisráðherra Kanada fyrir forystuna sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði um tómarúm sem fylla hefði þurft.

Innlent
Fréttamynd

Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur

Dómstóll í Helsinki sýknaði karlmann á fertugsaldri sem sat um Sönnu Marin, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands. Maðurinn var talinn hafa verið ósakhæfur þegar hann framdi flest brotin. Honum var ekki gerð refsing.

Erlent
Fréttamynd

Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“

Forsætisráðherra Bretlands segist munu ræða við Bandaríkjastjórn um fyrirhugaða Grænlandstolla. Leiðtogar Evrópu stilla nú saman strengi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði tolla gegn átta NATO-ríkjum vegna þess að þau sendu mannskap til Grænlands í hernaðaræfingu. 

Erlent
Fréttamynd

Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna

Þúsundir grunnskólabarna í Helsinki fá áskrift að vikublaði um teiknimyndapersónuna Andrés Önd ókeypis á næstunni. Tilgangurinn er að kanna hvort aðgangur að lesefni hafi áhrif á áhuga barna á lestri sem fer dvínandi í Finnlandi eins og víðar annars staðar.

Erlent
Fréttamynd

„Sannur Finni“ fær hæli í Rúss­landi

Rússnesk stjórnvöld hafa veitt fyrrverandi þingmanni fjarhægriflokksins Sannra Finna hæli á grundvelli meintra pólitískra ofsókn sem hann sæti í heimalandi sínu. Hann var rekinn úr flokknum fyrir fimm árum vegna rasískra skrifa á netinu.

Erlent
Fréttamynd

For­dæmir barna­skap „skáeygðra“ sannra Finna

Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, er ekki hlátur í huga yfir stuðningsyfirlýsingum samherja hans í ríkisstjórn við fegurðardrottningu á samfélagsmiðlum. Forsætisráðherrann segir sanna Finna sýna af sér barnaskap með því að birta af sér myndir þar sem þeir gera sig „skáeygða“.

Lífið
Fréttamynd

Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðar­drottninguna

Finnsk fegurðardrottning, sem var svipt titlinum Ungfrú Finnland í gær vegna rasískrar hegðunar, hefur fengið stuðning frá tveimur finnskum stjórnmálamönnum úr hægriflokknum Sönnum Finnum. Annar birti mynd af sér að gera sig skáeygðan og hinn lýsti því yfir að honum þætti miskunnar- og húmorslaust að svipta hana titlinum.

Lífið
Fréttamynd

Vöruðu við því að Banda­ríkin gætu svikið Úkraínu og Evrópu

Ráðamenn í Evrópu bera lítið traust til erindreka Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í tengslum við viðræður Bandaríkjamanna við Rússa um mögulegan frið í Evrópu. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, varaði aðra þjóðarleiðtoga og embættismenn í Evrópu við því á dögunum að ráðamenn í Bandaríkjunum gætu á endanum svikið Úkraínu og Evrópu.

Erlent