Evrópu­sam­bandið

Evrópu­sam­bandið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og full­veldi

Það var þrá og von okkar Íslendinga að búa „langt frá heimsins vígaslóð“. Seinni heimsstyrjöldin færði okkur heim sanninn um að sú vígaslóð var ekki umflúin. Í kjölfarið höfum við gengið til samstarfs við aðrar þjóðir með aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu til að leggja okkar af mörkum til friðar og um leið til að verja frelsi okkar og fullveldi. Síðan höfum við eflt efnahagssamstarf með aðild að EFTA og EES.

Skoðun
Fréttamynd

Helstu samsæriskenningarnar um Evrópu­sam­bandið

Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst til að ákveða framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðdraganda stórra sögulegra ákvarðana kraumar gjarnan óvissa og kvíði í samfélaginu og upplýsingaóreiða fer á flug.

Lífið
Fréttamynd

Sér­staða Ís­lands úti­lokar að líkindum aðild að ESB

Um samningsmarkmið í hugsanlegum aðildarviðræðum við ESB verður að tala opið og skýrt um sjávarútvegsmálin. Dæmi um skort á þessu er að finna í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar - það er fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna - á tillögu utanríkisráðherra um að haldið verði þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.

Umræðan
Fréttamynd

Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir

Framkvæmdastjóri Krónunnar segir margt við nýja umbúðareglugerð Evrópusambandsins ekki henta íslenskum markaði. Verslunin hafi lengi reynt að nýta svokallaðar áfyllingarlausnir en neytendur ekki tekið vel í þær. Hún vonar að lausn finnist fyrir Íslendinga ef EFTA-ríkin innleiða reglugerðina. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bændur segja nei

95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild.

Innlent
Fréttamynd

„Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“

Utanríkisráðherra segist ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, ef ekki fáist undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. 

Innlent
Fréttamynd

For­skot Já-hliðarinnar mælist minna

Forskot Já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið mælist 4,4 prósentustig í nýrri könnun Maskínu. Það mældist 6,2 prósentustig í júní. Breytingin er þó innan skekkjumarka.

Innlent
Fréttamynd

„Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður til viðtals í Ísland í dag strax að loknum kvöldfréttum Sýnar þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan verður til umræðu. Viðtalið verður aðgengilegt öllum landsmönnum.

Innlent
Fréttamynd

Ekki hægt að gefa „neinn af­slátt af raun­vaxta­stiginu“ við þessar að­stæður

Við núverandi aðstæður getur peningastefnunefnd Seðlabankans ekki „gefið neinn afslátt“ af raunvaxtastiginu ef það á að takast á ná verðbólgunni niður í markmið, að mati sérfræðinga Acro verðbréfa. Þeir telja að nefndin sé því „nauðbeygð“ til að hækka vextina á næsta fundi og vara við því að verðbólgan geti farið upp í sex prósent síðar á árinu.

Innherji
Fréttamynd

Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka

Utanríkisráðherra Spánar segir að allir þeir sem fóru ólöglega inn í spænsku borgina Ceuta í Marokkó verði sendir til baka. Enginn þeirra hafi komist til meginlands Spánar og engin ógn steðji að Schengen-landamærasamstarfi Evrópuríkja.

Erlent
Fréttamynd

Hver á að hafa síðasta orðið um mál­efni Ís­lands?

Ef vilji stuðningsmanna aðildar stæði til þess að gefa rétta mynd af skiptingu valdheimilda Sambandsins og aðildarríkjanna væri þeim rétt og skylt að lýsa fyrst þeim ákvæðum þar sem ESB fer með endanlegt löggjafarvald, ræða síðan sameiginlegar valdheimildir og loks hvar aðildarríkin ein fara með valdið til lagasetningar.

Umræðan
Fréttamynd

Muni hlusta og taka væntingar, þrár og á­hyggjur til greina

Forsætisráðherra vill að þjóðin komi sameinuð út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst, sama hvernig fer. Hún hefur skipulagt ferð um landið í þeim tilgangi að hlusta á væntingar, þrár og áhyggjur fólks í sambandi við atkvæðagreiðsluna.

Innlent
Fréttamynd

Höggdeyfir fyrir hverja?

Algeng rök fyrir því að halda í íslensku krónuna eru þau að hún virki sem mikilvægur höggdeyfir: að fljótandi gengi auðveldi hagkerfinu að laga sig að efnahagsáföllum; án sjálfstæðrar myntar þyrfti aðlögunin að fara fram með sársaukafyllri hætti gegnum ríkisfjármál og vinnumarkað.

Skoðun
Fréttamynd

Ósk­hyggja að vona að af­gerandi svar fáist þann 29. ágúst

Það er óskhyggja að vonast til að afgerandi stuðningur með eða á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið fáist upp úr kjörkössunum þann 29. ágúst. Þetta segir prófessor í stjórnmálafræði. Sagan í seinni tíð sýni að afar mjótt verði á munum þegar atkvæði verða talin.

Innlent
Fréttamynd

Sam­einumst undir regn­boganum: Jafn­rétti, inngilding og stolt

Í ágústmánuði ár hvert gerist eitthvað einstakt í Reykjavík þegar borgin breytir um svip og verður staður þar sem hátíðahöld og samstaða fara hönd í hönd. Göturnar fyllast af litadýrð, tónlist og gleði en einnig sterkri samkennd. Það er þetta sem er svo einstakt við Hinsegin daga í Reykjavík. Hinsegin dagar eru ekki aðeins hátíð hinsegin samfélagsins heldur einnig gildanna sem eru Íslendingum svo kær: víðsýni, virðingar, reisnar og frelsis til að vera maður sjálfur. Þannig endurspegla Hinsegin dagar það samfélag sem svo mörg leggja sig fram við að byggja upp og vernda.

Skoðun
Fréttamynd

ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir ís­lenskan sjávar­út­veg

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins vill finna „skapandi lausnir“ fyrir báðar hliðar í hugsanlegum aðildarviðræðum vegna sérstöðu Íslands í sjávarútvegi og landbúnaði. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir samt að „skapandi lausnir“ séu ekki endilega það sama og varanlegar undanþágur. 

Innlent
Fréttamynd

„Evrópu­sam­bandið er ekki konfektkassi“

„Evrópusambandið er ekki konfektkassi þar sem við getum farið og valið okkur bestu molana og sagt nei við hinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún segir vegferð ríkisstjórnarflokkanna dapurlega og að ESB-umræðan sé fyrst og fremst ætluð til að breiða yfir stöðu efnahagsmála.

Innlent
Fréttamynd

51 prósent sé nóg

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekkert geta fullyrt um hvort að Ísland fái undanþágur í mögulegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ísland yrði stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins og fara þurfi inn í viðræðurnar, sem eigi að kosta um tvo milljarða, með stolti. Segi 51 prósent kjósenda nei verði niðurstaðan virt.

Innlent
Fréttamynd

Ekki á dag­skrá að opna bók­haldið

Lítið sem ekkert eftirlit er með fjármögnun þeirra félagasamtaka sem heyja nú kosningabaráttu í kringum atkvæðagreiðslu 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sem þau eru ekki skilgreind stjórnmálasamtök er ekkert þak á fjárframlögum til samtakanna og ekki þarf að birta bókhald þeirra opinberlega. 

Innlent
Fréttamynd

„Sá spyr sem ekki veit“

„Ég er döpur yfir því hve hatrömm orðaskipti maður hefur séð og ómakleg. Það kemur mér rosalega á óvart hvað lýðræðinu er sýnd mikil lítilsvirðing. Við erum búin að berjast í hundrað ár fyrir fullveldinu okkar og síðan fáum við lýðveldið okkar 1944. Fyrst og síðast byggir það á svipuðu þegar við erum að kjósa okkur valdhafa, í þetta skipti erum við að gefa þjóðinni kost á að segja já eða nei við samningaviðræðum.“ 

Innlent