
Fjórir af sjö nýjum leikmönnum Chelsea geta ekki tekið þátt í Meistaradeildinni
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea þarf að velja og hafna leikmönnum þegar kemur að því að skrá 25 manna hóp sem getur tekið þátt í Meistaradeild Evrópu.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea þarf að velja og hafna leikmönnum þegar kemur að því að skrá 25 manna hóp sem getur tekið þátt í Meistaradeild Evrópu.
Félagsskiptaglugginn í Evrópu lokaði í kvöld og eins og við var að búast var af nægu að taka. Stærstu fréttirnar eru þær að Chelsea náði að öllum líkindum að ganga frá kaupum á argentínska miðjumanninn Enzo Fernandez á metfé og Arsenal fékk Evrópumeistarann Jorginho frá nágrönnum sínum í Chelsea.
Austurríski knattspyrnumaðurinn Marcel Sabitzer er genginn til liðs við Manchester United á láni frá Þýskalandsmeisturum Bayern München.
Nýliðar Nottingham Forest hafa fengið markvörðinn Keylor Navas á láni frá franska stórveldinu Paris Saint-Germain.
Blackburn er á leið í 16-liða úrslit enska FA-bikarsins í knattspyrnu eftir 1-0 sigur gegn Birmingham í framlengdum leik þar sem sjálfsmark skildi á milli liðanna.
Newcastle er á leið í úrslit enska deildarbikarsins eftir 2-1 sigur gegn Southampton í kvöld. Newcastle vann 1-0 sigur í fyrri leik liðanna og liðið vann einvígið því samanlagt 3-1.
Ítalski knattspyrnumaðurinn Jorginho er genginn til liðs við Arsenal frá Chelsea fyrir tólf milljónir punda, eða rúma tvo milljarða íslenskra króna.
Úkraínumaðurinn Mykhailo Mudryk, nýja stjarnan í liði Chelsea, neyddist til að biðjast afsökunar á TikTok-myndbandi sem birtist síðasta sumar, þar sem hann fór með línur úr rapplagi og notaði N-orðið.
Nú er orðið ljóst að danski miðjumaðurinn Christian Eriksen mun ekki spila með Manchester United næstu mánuðina en búist er við því að hann verði frá keppni fram í lok apríl eða byrjun maí vegna ökklameiðsla.
Sean Dyche, nýráðinn knattspyrnustjóri Everton, lofaði að láta leikmenn liðsins svitna og miðað við fyrstu æfinguna undir hans stjórn ætlar hann að standa við loforðið.
Jóhann Berg Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við Burnley til eins árs með möguleika á árs framlengingu.
Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, er að ganga frá kaupunum á ítalska miðjumanninum Jorginho frá Chelsea.
Búið er að draga í 5. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. West Ham United heimsækir Old Trafford og mætir Manchester United. Þá gæti Tottenham Hotspur farið til Wales fari svo að Wrexham vinni Sheffield United en liðin gerðu 3-3 jafntefli um helgina og þurfa því að mætast aftur.
Leeds United heldur áfram að versla nær eingöngu Bandaríkjamenn í leikmannahóp sín og á því varð engin breyting í kvöld þegar Weston McKennie gekk í raðir félagsins á láni frá Juventus á Ítalíu.
West Ham United vann C-deildarlið Derby County 2-0 í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld. Hamrarnir mæta Manchester United á Old Trafford í næstu umferð.
Chelsea er ekki hætt að kaupa leikmenn í þessum félagsskiptaglugga því samkvæmt nýjust fréttum af Brúnni þá hefur enska úrvalsdeildarfélagið boðið 120 milljónir evra í Enzo Fernandez hjá Benfica.
Portúgalski landsliðsmaðurinn Joao Cancelo er á leið til Bayern München á láni frá Manchester City.
Sean Dyche hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Everton. Hann tekur við liðinu af Frank Lampard sem var rekinn í síðustu viku.
Fabinho þótti heppinn að sleppa við rautt spjald í leik Brighton og Liverpool í ensku bikarkeppninni í gær.
„Kostnaður vegna samninga við Premier League hefur hækkað, veiking krónunnar hefur mjög neikvæð áhrif og annar kostnaður til dæmis aðföng, laun, útsendingarkostnaður og fleira hefur hækkað.“
Andy Robertson var niðurlútur eftir að Liverpool féll út úr ensku bikarkeppninni fyrir Brighton í gær.
Hinn 81 árs gamli Sir Alex Ferguson er einn sigursælasti knattspyrnustjóri allra tíma. Það virðist sem honum hafi fundist leikur Manchester United og Reading heldur leiðinlegur en Skotinn virtist sofna þegar myndavélinni var beint að honum.
Leikur Wrexham og Sheffield United er líklega skemmtilegasti leikurinn sem spilaður var í 32-liða úrslitum enska bikarsins um helgina.
Enski sóknarmaðurinn Anthony Gordon er genginn til liðs við Newcastle United frá Everton.
Dagný Brynjarsdóttir hóf leik Wolves og West Ham United í ensku bikarkeppninni á varamannabekknum. Hún kom inn af bekknum þegar 25 mínútur lifðu leiks og staðan var enn markalaus, leiknum lauk með 2-0 sigri Hamranna.
Brighton og Liverpool mætast í annað sinn á skömmum tíma. Síðast unnu Mávarnir frá suðurströndinni þriggja marka sigur.
Englandsmeistarar Chelsea vilja ólmir fá Katie McCabe, leikmann Arsenal í sínar raðir. Skytturnar, sem eru í harðri baráttu við Chelsea um titilinn í ár, neita að selja.
Hinn 19 ára gamli Malo Gusto er búinn að skrifa undir samning við Chelsea. Hann mun þó ekki ganga í raðir Lundúnafélagsins fyrr en í sumar.
Christian Eriksen yfirgaf Old Trafford, heimavöll Manchester United, á hækjum eftir sigurinn á B-deildarliði Reading í ensku bikarkeppninni í gærkvöld. Eriksen var í byrjunarliði Man United en var tekinn af velli skömmu eftir glannalega tæklingu Andy Carroll.
„Við fengum fjöldann allan af færum. Við ræddum um það í hálfleik að vera þolinmæðir og þá myndi fyrsta markið koma,“ sagði Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, eftir 3-1 sigur liðsins á B-deildarliði Reading í 4. umferð ensku bikarkeppninnar, FA Cup.