Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos Um 110 skjálftar mældust í gær við kvikuganginn í Sundhnúksgígaröðinni. Það er umtalsverð fjölgun skjálfta en í síðustu viku voru þeir sextíu til níutíu á sólarhring. Innlent 19. ágúst 2024 10:11
Aukning í skjálftavirkni heldur áfram Áframhaldandi aukning er í skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðinni líkt og verið hefur síðustu daga. Innlent 19. ágúst 2024 07:40
Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Öllu starfsfólki Marine Collagen í Grindavík hefur verið sagt upp störfum. Í janúargosinu opnaðist stór sprunga á lóð fyrirtækisins en húsnæðið hafði verið óstarfhæft alveg síðan 10. nóvember. Viðskipti innlent 18. ágúst 2024 13:30
Reykur í hrauni ekki eldgos Reykur sést stíga upp úr hrauni á vefmyndavél RÚV á fjallinu Þorbirni. Veðurstofan segir eldgos ekki hafið heldur að líklega sé um vatnsgufu að ræða. Innlent 18. ágúst 2024 09:16
Mesta rúmmálið sem hefur safnast frá því að gosin hófust Enn er óbreytt staða á Reykjanesi og líklegt að annað hvort eldgos eða kvikuinnskot geti hafist á hverri stundu. Meiri virkni er í dag en í gær en ekkert stórt stökk að sögn Minneyjar Sigurðardóttur náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Enn safnast kvika undir Svartsengi. Innlent 17. ágúst 2024 22:09
Fylgjast náið með barnafjölskyldum í Grindavík Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir þá sem dvelja næturlangt í Grindavík mjög meðvitaða um þá hættu sem steðjar að. Barnaverndaryfirvöld fylgist með þeim fjölskyldum sem dvelji með börn í bænum. Landris og kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða undir Svartsengi en engin skjálftavirkni mælist enn. Innlent 17. ágúst 2024 13:09
Kvikusöfnun og landris enn á sama hraða Landris og kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða undir Svartsengi. Skjálftavirkni er sömuleiðis stöðug, þar sem 60-90 skjálftar mælast á sólarhring. Innlent 16. ágúst 2024 14:57
„Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðina fer vaxandi og hefur verið töluverð síðasta sólarhringinn. Fagstjóri á Veðurstofu Íslands mælir eindregið gegn því að fólk gisti í húsum í norðurhluta bæjarins, líkt og einhverjir hafa verið að gera. Innlent 15. ágúst 2024 11:44
Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Hafsteinn Sævarsson hafði ekki búið lengi í Grindavík þegar hörmungarnar dundu yfir í nóvember í fyrra. Hann og konan hans keyptu sér eign þar í júlí í fyrra og ætluðu að búa sér til framtíðarheimili í Grindavík. Í dag búa þau í Þorlákshöfn en greiða enn af húsnæði í Grindavík sem þau geta ekki selt Þórkötlu nema með milljónatapi. Innlent 15. ágúst 2024 08:33
Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru „Það er bara svo sem sama, mest lítið að frétta,” segir vakthafandi náttúrrvársérfræðingur sem líkt og fleiri á von á því að gos geti hafist hvað úr hverju á Reykjanesskaga. Innlent 14. ágúst 2024 22:27
Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mælir eindregið gegn því að fólk dvelji í Grindavík nú þegar búist er við að gos hefjist á hverri stundu. Óásættanleg hætta er talin fyrir hendi í hluta bæjarins en dvalið hefur verið í um 24 húsum síðustu nætur og dæmi um að barnafólk sé í Grindavík. Innlent 14. ágúst 2024 19:23
„Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Kvikumagnið undir Svartsengi er orðið meira en fyrir síðasta eldgos og gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast. Töluvert hefur verið um skjálfta á svæðinu í dag og telja þeir nú hátt í hundrað á sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir að gos gæti í raun byrjað hvenær sem er en líka teygst fram í september. Innlent 13. ágúst 2024 21:25
Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Náttúruvársérfræðingur segir litlar líkur á að gos hefjist innan bæjarmarka Grindavíkur. Starfsmenn Veðurstofunnar eru nú í biðstöðu og bíða eftir kvikuhlaupi eða eldgosi sem gæti hafist hvenær sem er. Innlent 13. ágúst 2024 12:16
Stærra eldgos væntanlegt Búast má við stærra eldgosi á Reykjanesi á næstu dögum miðað við kvikusöfnun, að sögn eldfjallafræðings. Mjög ólíklegt er að kvika komi upp innan bæjarmarka. Innlent 12. ágúst 2024 11:36
Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Grindvíkingum sem hafa selt hús sín fasteignafélaginu Þórkötlu stendur til boða að gera leigusamning um húsnæðið eða svokallaða hollvinasamninga. Nú hefur verið gengið frá kaupum á fasteignum 93 prósent þeirra sem sóttu um þau. Innlent 12. ágúst 2024 10:13
Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Um þrjú hundruð smáskjálftar hafa mælst á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesi frá því á mánudag og heldur skjálftavirknin áfram að aukast. Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi er sögð svipuð og síðustu daga. Innlent 9. ágúst 2024 12:36
Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Nefndarmaður í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík segir eðlilegt að verja hundruðum milljóna til að verja innviði í bænum þrátt fyrir yfirvofandi eldgos. Það sé eðlilegt framhald af fyrri aðgerðum á borð við uppsetningu varnargarða. Innlent 8. ágúst 2024 20:01
Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Slökkviliðsmenn æfðu sig í að kæla hraun með nýjum kröftugum dælum frá Bretlandi við Svartsengi í dag. Vatni er meðal annars dælt úr Bláa lóninu á margföldum krafti á við dælur slökkviliðsins. Innlent 8. ágúst 2024 19:41
Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, Grindavíkurnefnd hefur kynnt aðgerðaáætlun vegna viðgerða á innviðum innan þéttbýlis Grindavíkur. Aðgerðirnar miða að því að tryggja virkni og öryggi innviða, þar á meðal á gatnakerfi, lögnum og opnum svæðum. Innlent 8. ágúst 2024 16:04
Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Óbreytt staða er enn á Reykjanesskaga þar sem áfram eru taldar auknar líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu dögum. Skjálftavirkni fer áfram rólega vaxandi og mældist á sjötta tug jarðskjálfta í nótt. Innlent 7. ágúst 2024 08:05
Skjálftavirkni meiri en landris hægara Skjálftavirkni á Reykjanesi hefur aukist en hægt á landrisi. Enn eru taldar líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á svæðinu á næstu dögum. Innlent 6. ágúst 2024 11:36
Allar vefmyndavélarnar á einum stað Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst, það níunda i röð gosa á Reykjanesskaga undanfarin ár. Innlent 2. ágúst 2024 16:48
Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Auknar líkur eru á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Reykjanesskaga á næstu dögum, að mati náttúruvásérfræðinga hjá Veðurstofunni. Fjöldi daglegra skjálfta á Sundhnúksgígaröðinni fer hægt vaxandi. Innlent 2. ágúst 2024 13:37
Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkaði um 1.172 frá því í nóvember í fyrra þar til í lok júnímánaðar, þegar íbúar bæjarins töldu 2.570 manns. Innlent 1. ágúst 2024 10:25
Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Jarðfræðingar við Háskóla Íslands sem stóðu að rannsókn um sigdalinn í Grindavík segja tímabært að fylgja eftir reglum um byggingar við misgengi og sprungur og segja mikilvægt að kortleggja þannig svæði á landsvísu. Innlent 31. júlí 2024 12:13
Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent tilkynningu til fjölmiðla þar sem hann ítrekar meðal annars að Grindavík sé ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Innlent 31. júlí 2024 08:40
Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Klukkan 21:11 í kvöld varð skjálfti á Reykjanestá að stærð 3. Nokkrir minni skjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Innlent 30. júlí 2024 22:57
„Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Prófessor í eldfjallafræði segir mestar líkur á að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði á sama stað og síðustu gos á svæðinu. Ólíklega muni gjósa inni í Grindavík og því sé skammur viðbragðstími ekki endilega áhyggjuefni. Innlent 30. júlí 2024 19:32
Gæti gosið á næstu dögum Spenna heldur áfram að aukast á Reykjanesi en nú hafa rúmlega 16 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi. Veðurstofa Íslands varar við því að kvikuhlaup án eldgoss nægi til að skapa hættu og valda tjóni í Grindavík en því fylgi jarðskjálftar og sprungur. Innlent 30. júlí 2024 11:58
Ný líkön sýna umfang hraunsins Fyrirtækið Loftmyndir ehf. hefur mælt rúmmál og flatarmál hraunsins við Grindavík og birti í gær myndir á síðu sinni á Facebook þar sem hægt er að sjá flæði og magn hraunsins. Innlent 26. júlí 2024 11:22