Segir Bandaríkin íhuga að stöðva greiðslur til WHO Bandarísk stjórnvöld íhuga nú að frysta greiðslur sínar til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) vegna þess sem forseti Bandaríkjanna telur vera „kínverska slagsíðu“ í starfsemi stofnunarinnar. Erlent 7. apríl 2020 23:47
Repúblikanar í Wisconsin telja sig hagnast á faraldrinum Þrátt fyrir að kosningum hafi verið frestað í fjölmörgum ríkjum Bandaríkjanna vegna nýju kórónuveirunnar, munu mjög umdeildar kosningar fara fram í Wisconsin í dag. Erlent 7. apríl 2020 13:08
Telur að Trump hafi rekið sig fyrir að sinna skyldu sinni Innri endurskoðandi bandarísku leyniþjónustunnar sem vísaði kvörtun uppljóstrara um framferði Donalds Trump forseta gagnvart Úkraínu til Bandaríkjaþings segir erfitt að álykta ekki að Trump hafi rekið sig fyrir að sinna starfi sínu. Trump hefur ekki gefið neina aðra skýringu á brottrekstrinum en að endurskoðandinn njóti ekki lengur „fyllsta trausts“ hans. Erlent 6. apríl 2020 15:30
Finnst ekki við hæfi að bera andlitsgrímu Tæplega 1.500 manns létust af völdum kórónuveirunnar í Bandaríkjunum í gær. Er þetta mannskæðasti sólarhringurinn frá upphafi faraldursins þar í landi. Erlent 4. apríl 2020 17:43
Trump rekur endurskoðanda sem lét þingið vita af kvörtun uppljóstrara Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að reka eftirlitsaðilann sem lét Bandaríkjaþing vita af því að uppljóstrari innan leyniþjónustunnar hefði kvartað undan samskiptum Trump við forseta Úkraínu. Kvörtunin varð upphafið að atburðarás sem leiddi til þess að Trump var kærður fyrir embættisbrot. Erlent 4. apríl 2020 03:30
Þremur fjórðu Bandaríkjamanna skipað að halda sig heima Ríki Bandaríkjanna eru nú flest hver farin að grípa til aðgerða til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar COVID-19. Erlent 31. mars 2020 22:56
Segir Bandaríkin „í góðri stöðu“ til að takast á við faraldurinn Trump segir minnst tíu fyrirtæki nú vinna hörðum höndum að því að framleiða öndunarvélar. Erlent 30. mars 2020 23:38
Framlengir gildistíma reglna vegna kórónuveiru út apríl Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að framlengja gildistíma aðgerða og reglna, sem ætlaðar eru til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar, út apríl. Erlent 30. mars 2020 06:46
Trump hættur við að setja New York í sóttkví Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki lengur að íhuga að setja New York-ríki í sóttkví. Þegar það var til skoðunar mætti það harðri gagnrýni. Ríkisstjóri ríkisins kallaði hugmyndina „fráleita.“ Erlent 29. mars 2020 07:30
Trump íhugar að setja New York í sóttkví Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við blaðamenn að hann væri að íhuga að setja New York ríki í sóttkví. Erlent 28. mars 2020 17:45
Yfir hundrað þúsund staðfest smit í Bandaríkjunum Bandaríkin tróna á toppi listans yfir þau lönd þar sem flest smit hafa greinst. Áður hafa Kína og Ítalía vermt hið óeftirsótta toppsæti. Erlent 28. mars 2020 07:37
Trump efast um þörf fyrir mikinn fjölda öndunarvéla Donald Trump Bandaríkjaforseti og borgarstjórinn í New York eru komnir í hár saman yfir því hversu mikil þörf sé fyrir öndunarvélar í fylkinu. Forsetinn sagðist í sjónvarpsviðtali í gær ekki trúa því að þörfin væri jafn mikil og haldið væri fram. Bill de Blasio borgarstjóri New York sagði í dag að forsetinn þyrfti að horfast í augu við staðreyndir. Erlent 27. mars 2020 15:25
Kína og Bandaríkin taka höndum saman í baráttunni við veiruna Leiðtogar risaveldanna Kína og Bandaríkjanna ræddu saman á símafundi í nótt þar sem faraldur kórónuveiru var að sjálfsögðu aðal umræðuefnið. Erlent 27. mars 2020 08:08
Ná samkomulagi um björgunarpakka Hvíta húsið í Washington og leiðtogar öldungadeildar Bandaríkjaþings komust í nótt að samkomulagi um björgunarpakka sem ætlað er að styðja við bandarískt efnahagslíf á tímum kórónuveirufaraldursins. Erlent 25. mars 2020 06:45
New York kallar eftir hjálp Andrew Cuomo, ríkisstjóri, kallaði í kvöld eftir hjálp frá alríkinu og sagði embættismenn hafa vanmetið faraldurinn. Erlent 24. mars 2020 23:12
Trump talar um að slaka á takmörkunum eftir að mjólkurkúm hans var lokað Sex af sjö ábatasömustu klúbbum og hótelum Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur verið lokað vegna kórónuveirufaraldursins á undanförnum dögum. Forsetinn hefur síðan þá byrjað að ýja að því að slakað verði á samfélagslegum aðgerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar. Erlent 24. mars 2020 12:57
„Ef forsetinn bregst ekki við mun fólk deyja sem annars hefði lifað“ Borgarstjóri New York-borgar, þar sem áhrif kórónuveirunnar í Bandaríkjunum hafa verið hvað mest, segir víðtækan skort á mikilvægum heilbrigðisvörum vera yfirvofandi í New York-ríki. Erlent 22. mars 2020 23:17
Tveir þingmenn smitaðir og aðrir í sóttkví Aðrir þingmenn sem hafa verið í samskiptum við þá tvo eru nú á leið í sóttkví. Erlent 19. mars 2020 08:37
Trump líkir kórónuveirufaraldrinum við stríðsástand Búið er að loka landamærum Kanada og Bandaríkjanna fyrir allri óþarfa umferð vegna kórónuveirunnar. Þá hefur Donald Trump, Bandaríkjaforseti, virkjað neyðarlög vegna faraldursins. Erlent 18. mars 2020 20:23
Trump-liðar reyna að endurskrifa söguna Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og bandamenn hans á Fox og víðar vinna nú hörðum höndum að því að endurskrifa söguna og halda því fram að þeir hafi ávallt tekið Covid-19 heimsfaraldrinum alvarlega. Erlent 18. mars 2020 15:00
Nýr tónn í Trump Frá því nýja kórónuveiran fór að dreifast utan landamæra Kína hefur Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gert lítið úr veirunni og talað gegn ráðleggingum sérfræðinga. Það breyttist í gær. Erlent 17. mars 2020 12:36
Trump bíður eftir niðurstöðu úr sýnatöku vegna kórónuveirunnar Bandaríkjaforseti, Donald Trump, hefur gefið sýni sem nú er rannsakað með tilliti til þess hvort forsetinn hafi smitast af kórónuveirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Fréttir 14. mars 2020 17:25
Neyðarpakki vegna faraldursins samþykktur á Bandaríkjaþingi Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti neyðarpakka vegna kórónuveiruheimsfaraldursins í nótt. Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti yfir neyðarástandi vegna faraldursins í gær og hefur lýst yfir stuðningi við frumvarpið. Erlent 14. mars 2020 12:03
Trump segist alls ekki bera ábyrgð á mistökum Bandaríkjastjórnar í upphafi faraldursins Erlent 13. mars 2020 23:02
Lærir leiklist í gegnum fjarskiptabúnað vegna veirunnar Melkorka Davíðsdóttir Pitt stundar leiklistarnám í New York en vegna kórónuveirunnar mun hún næstu vikurnar, og jafnvel út önnina, stunda námið í gegnum fjarskiptabúnað á Íslandi. Innlent 12. mars 2020 17:00
Brasilískur embættismaður sem hitti Trump sagður smitaður Maðurinn var í föruneyti Bolsonaro Brasilíuforseta sem hitti Trump og fleiri bandaríska embættismenn á Flórída um helgina. Erlent 12. mars 2020 16:22
Markaðir bregðast illa við ferðabanni Trumps Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi um ferðabann frá Evrópu til Bandaríkjanna. Ákvörðunin hefur haft mikil áhrif á markaði víðs vegar um heiminn. Viðskipti erlent 12. mars 2020 12:05
Ferðabann Trump kom evrópskum ráðamönnum að óvörum Evrópusambandið hefur lýst vanþóknun sinni á að Trump Bandaríkjaforseti hafa tekið einhliða ákvörðun um ferðabann vegna kórónuveiru án samráðs við evrópska ráðamenn. Erlent 12. mars 2020 11:29
Hátt í þriðjungur hótelbókanna hverfur vegna ákvörðunar Trump Formaður félags fyrirtækja í hótelrekstri segir stjórnvöld verða að bregðast hratt við. Viðskipti innlent 12. mars 2020 10:45
Bandaríkin: Biden nánast tryggir sér tilnefninguna Velgengni Joe Biden í forvali Demókrataflokksins og slæmt gengi Bernie Sanders, er það helsta sem er til umfjöllunar í fjórða þætti Bandaríkjanna, hlaðvarps fréttastofu um bandarísk stjórnmál. Erlent 12. mars 2020 09:21