

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Landsréttur hefur dæmt Sjúkratryggingar Íslands til þess að greiða konu 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna stórkostlegs gáleysis læknis. Sá fjarlægði vinstri eggjastokk konunnar án þess að hún veitti samþykki fyrir.
Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja Fjarðarkaupsmálinu svokallaða til Landsréttar. Fyrir tæpum mánuði síðan sakfelldi Héraðsdómur Reykjaness þrjá unga menn og stúlku fyrir sína þætti í manndrápi á 27 ára gömlum pólskum karlmanni við Fjarðarkaup í Hafnarfirði í apríl síðastliðnum.
Landsréttur hefur staðfest úrskurð um gæsluvarðhald Eddu Bjarkar Arnardóttur. Dómsmálaráðherra segir í yfirlýsingu að ráðherra og ráðuneyti hennar hafi enga að komu að málinu. Ríkissaksóknari hafi tekið allar ákvarðanir í málinu og að þær séu allar samkvæmt lögum.
Fræðagarður, stéttarfélag blaðamannsins Björns Þorlákssonar, hefur óskað eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna máls sem Björn höfðaði gegn Kjara-og mannauðssýslu ríkisins.
Edda Björk Arnardóttir hefur verið flutt úr fangelsinu á Hólmsheiði og verður flutt til Noregs.
Miklar líkur eru á að Lífeyrissjóður verzlunarmanna áfrýi dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem ógilti í gær breytingar á lífeyrisréttindum hjá sjóðnum eftir aldri. Þetta segir lögmaður sjóðsins. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir nokkra lífeyrissjóði en nú er verið er að reikna kostnaðinn út yrði þetta endanlega niðurstaða.
Formaður Lögmannafélags Íslands segir að þó einhverjum kunni að mislíka niðurstaða norskra dómstóla um að faðir barna Eddu Bjarkar Arnardóttur skuli fara með forsjá þeirra, þýði það ekki að borgararnir eigi að taka lögin í sínar hendur.
Maður sem er grunaður um hrottafengna árás gegn fyrrverandi kærustu sinni er ákærður fyrir að reyna að verða henni að bana. Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar sem var kveðinn upp í gær um gæsluvarðhald á hendur manninum.
Í morgun voru sagðar fréttir af því að hópur fólks hefði safnast saman við fangelsið á Hólmsheiði og ætlaði að sögn að koma í veg fyrir flutning konu til Noregs „með öllum tiltækum ráðum.“
Landsréttur hefur enn ekki skilað úrskurði sínum í máli Eddu Bjarkar Arnardóttur. Lögmaður hennar, Jóhannes Karl Sveinsson, kærði niðurstöðu héraðsdóms um gæsluvarðhald hennar til Landsréttar fyrr í vikunni.
„Við erum farin. Flugvélin er farin og Edda er enn á Hólmsheiði,“ segir Ragnheiður Arnardóttir, systir Eddu Bjarkar Arnardóttur. Um sautján bílar lokuðu aðkomunni að fangelsinu í nótt.
„Það er ekkert að frétta, við erum ennþá hérna. Lögfræðingurinn hennar hefur ekki heyrt í neinum,“ segir Ragnheiður Arnardóttir, systir Eddu Bjarkar Arnardóttir, sem fékk þau skilaboð í gær að til stæði að flytja hana til Noregs í nótt.
Vinir og vandamenn Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem til stendur að flytja til Noregs í nótt, hafa fjölmennt við fangelsið á Hólmsheiði til þess að vekja athygli á máli hennar. Systir hennar segir þau munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma í veg fyrir að Edda Björk verði flutt úr fangelsinu.
Til stendur að afhenda Eddu Björk Arnardóttur norskum yfirvöldum í nótt. Hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í fyrradag en Landsréttur hefur ekki enn staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis.
Stjórn Lífeyrissjóð verslunarmanna segir viðbúið að dómi héraðsdóms um ólögmæti eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri, verði áfrýjað.
Karlmaður sem á langan sakaferill að baki hefur hlotið sextíu daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir fíkniefnabrot sem hann framdi í fangelsinu Litla-Hrauni.
Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Eddu Bjarkar Arnardóttur, skilaði í gærkvöldi greinargerð til Landsréttar en þangað áfrýjaði hann niðurstöðu héraðsdóms um gæsluvarðhald Eddu Bjarkar hér á landi. Staðfesti Landsréttur úrskurðinn verður hún flutt til Noregs innan fimm daga samkvæmt lögum.
Diljá Mist Einarsdóttir hefur lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra um handtöku og afhendingu íslenskra ríkisborgara. Tilefnið er mál Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem var handtekin í gær og til stendur að afhenda norskum yfirvöldum.
Hussein Hussein óttast hvað verði um hann þegar fjölskyldan hans fer til Grikklands á laugardag. Hann er í hjólastól og þarf mikla aðstoð við dagleg verk. Honum hefur ekki verið tryggð fullnægjandi aðstoð við brottför fjölskyldu sinnar sem hingað til hefur séð um alla aðstoð við hann.
Lögreglan hefur lokið rannsókn á máli sem varðar kynferðisbrot, líkamsárás, frelsissviptingu, og rán sem eiga að hafa átt sér stað í Kópavogi í ágúst á þessu ári.
Tómas A. Tómasson Flokki fólksins beindi fyrirspurn til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra þar sem hann vildi fá að vita eitt og annað um handtöku Eddu Bjarkar Arnardóttur, en forræðisdeila hennar hefur verið mjög í fréttum undanfarna daga.
Karlmaður hlaut í vikunni sextíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundin til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna líkamsárásar gegn konu.
Þingkona Flokks fólksins og eiginmaður hennar hafa stefnt sýslumanninum vegna fyrndra vaxta sem þau þurftu að greiða í tengslum við uppboð á heimili þeirra árið 2017. Málið á uppruna sinn að rekja til Hrunsins árið 2008. Ásthildur Lóa segir málið mikið réttlætismál og að sýslumaður hafi brotið á jafnræði. Það hafi ekki allir greitt þessa fyrndu vexti.
Málskotsbeiðni manns sem hefur verið sakfelldur fyrir að kveikja í eigin veitingastað í Reykjanesbæ árið 2020 hefur verið hafnað. Mál hans verður því ekki tekið fyrir í Hæstarétti. Landsréttur staðfesti í haust dóm héraðsdóms í málinu, þar sem manninum er gert að sæta tveggja ára og þriggja mánaða fangelsisvist.
Edda Björk Arnardóttir segir að hún hafi ekki gefið sig fram til lögreglu svo hægt sé að framselja hana til Noregs vegna þess að ekki sé komin dagsetning á réttarhöld sem þar eiga að fara fram í máli hennar. Handtökuskipun var gefin út í máli hennar og lýst eftir henni í vikunni. Íslenskir dómstólar hafa samþykkt handtökuskipun og fallist á framsal.
Maður fær ekki fullar slysabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í umferðarslysi árið 2017. Segir í dómnum að maðurinn hafi í aðdraganda slyssins varið löngum tíma með ökumanni bílsins, sem hafi neytt áfengis í aðdragandanum, og gerst sekur um stórkostlegt gáleysi með því að stíga upp í bílinn vitandi að ökumaðurinn væri drukkinn.
Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða fyrrverandi skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu 23,6 milljónir króna í skaða- og miskbætur vegna ólögmætrar niðurlagningar ráðherra á embætti hans.
Sakborningar í stóra kókaínmálinu svokallaða fengu vægari dómara í Landsrétti í dag en þeir höfðu fengið í héraðsdómi. Þyngsta refsingin var stytt úr tíu árum í níu
Landsréttur hefur fallist á kröfu Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um heimild til að taka strokusýni úr munni manns, sem grunaður er um kynferðisbrot. Hann er sagður hafa keypt áfengi fyrir andlega fatlaða konu, sem er alkóhólisti í þokkabót, og viljað fá borgað með kynlífi.
Karlmanni frá Litháen sem hlaut þungan dóm fyrir fíkniefnaframleiðslu hér á landi árið 2021 verður vísað úr landi. Hann má ekki snúa aftur til Íslands næstu fjórtán árin.