Telja Trump hafa hindrað rannsókn á leyniskjölum Bandaríska dómsmálaráðuneytið og alríkislögreglan eru sögð hafa safnað nýjum sönnunargögnum sem benda til þess að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafi reynt að leggja stein í götu rannsóknar á leyniskjölum sem fundust á heimili hans í fyrra. Erlent 3. apríl 2023 15:10
Trump hyggst ávarpa stuðningsmenn sína eftir þingfestingu Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður í baráttuhug en hann flýgur til New York í dag. Þar mun hann verða dreginn fyrir dómara á morgun og látinn svara ákærum í tengslum við mútugreiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels. Erlent 3. apríl 2023 08:00
Trump ekki settur í handjárn Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti verður ekki settur í handjárn þegar hann verður leiddur fyrir ákærudómstól í New York í vikunni. Viðbúnaður verður mikill og gert er ráð fyrir því að tugir leynilögreglumanna taki á móti Trump. Erlent 1. apríl 2023 07:59
Keppinautar Trump fylkja sér að baki honum eftir ákæru Leiðtogar Repúblikanaflokksins og helstu keppinautar Donalds Trump um útnenfningu flokksins fyrir forsetakosningar næsta árs fylktu sér að baki honum eftir að hann var ákærður í gær. Búist er við því að Trump gefi sig fram við yfirvöld í New York í næstu viku. Erlent 31. mars 2023 09:12
Selenskí sagður uggandi vegna forsetakosninganna vestanhafs Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur áhyggjur af því að mögulegar breytingar á hinu pólitíska landslagi Vestanhafs muni hafa áhrif á gang stríðsins í Úkraínu. „Bandaríki skilja að ef þeir hætta að aðstoða okkur þá vinnum við ekki,“ sagði forsetinn í viðtali við AP. Erlent 29. mars 2023 08:07
Trump með 25 prósent forskot á DeSantis á landsvísu Donald Trump mælist nú með 50 prósenta fylgi á landsvísu en Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, með 24 prósent. DeSantis farnast hins vegar betur í Iowa og New Hampshire, þar sem fyrst verður gengið til atkvæða í forkosningum forsetakosninganna. Erlent 28. mars 2023 08:16
Trump hóf kosningabaráttuna með kór uppreisnarmanna Fyrsti fjöldafundur kosningabaráttu Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hófst með söng kórs stuðningsmanna hans sem voru fangelsaðir fyrir að ráðast á þinghúsið fyrir tveimur árum. Trump eyddi stórum hluta fundarins í að níða saksóknara sem rannsaka hann. Erlent 26. mars 2023 10:14
Varar við „dauða og eyðileggingu“ verði hann ákærður Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, varaði í nótt því að „dauði og eyðilegging“ gæti fylgt því ef hann yrði handtekinn. Í sömu færslu kallaði Trump saksóknarann sem talinn er líklegur til að ákæra hann „úrkynjaðan geðsjúkling“ sem hataði Bandaríkin. Erlent 24. mars 2023 16:29
„Myndi 100 prósent láta svæðin aftur í hendur Úkraínu“ Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, segir orð sín um stríðið í Úkraínu hafa verið misskilin og að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé sannarlega stríðsglæpamaður. Erlent 23. mars 2023 07:13
Trump sagður spenntur fyrir því að vera handjárnaður Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera spenntur fyrir því að birtast handjárnaður í dómsal ef svo fer að hann verður handtekinn fyrir þátt sinn í því að hafa greitt klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels mútur. Erlent 22. mars 2023 08:07
Búa sig undir ákæru á hendur Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verður mögulega ákærður í dag eða á næstu dögum, fyrir brot á lögum um kosningar. Hann yrði fyrsti fyrrverandi forseti til að verða ákærður en Trump hefur sjálfur kallað eftir umfangsmiklum mótælum og Repúblikanar hafa brugðist reiðir við fregnunum. Erlent 21. mars 2023 14:01
Trump segir að hann verði handtekinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að hann verði handtekinn á þriðjudaginn. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 18. mars 2023 12:40
„Hvert einasta kyssti á mér rassinn“ Ný bók sem inniheldur bréf sem þjóðhöfðingjar og aðrir þekktir einstaklingar sendu Donald Trump áður eða eftir að hann varð forseti, mun sýna fram á að allir „kysstu á honum rassinn“, eins og hann komst að orði í samtali við Breitbart News í gær. Erlent 15. mars 2023 07:49
Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu. Erlent 14. mars 2023 19:58
Gæti reynst erfitt að lögsækja Trump Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trumps um árabil, mun bera vini fyrir sérstökum ákærudómstól í New York í dag. Trump sjálfum hefur einnig verið boðið að bera vitni fyrir þessum sama dómi vegna greiðslu hans til fyrrverandi klámmyndaleikkonu í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 13. mars 2023 13:44
DeSantis sagður ræða um framboð bak við tjöldin Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er sagður ræða um að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna á bak við tjöldin. Hann er nú á ferðalagi um ríki sem greiða fyrst atkvæði í forvali Repúblikanaflokksins og verið er að smyrja fjáröflunarvél hans. Erlent 10. mars 2023 16:20
Repúblikanar og lögregla gagnrýna Carlson og Fox News Öldungadeildarþingmenn úr röðum Repúblikanaflokksins og lögregluyfirvöld í Washington D.C. hafa gagnrýnt Fox News harðlega fyrir að birta myndskeið frá árásinni á þinghúsið, þar sem atburðir eru teknir úr öllu samhengi. Erlent 8. mars 2023 12:18
Freista þess að takmarka réttinn til þungunarrofs við sex vikur Þingmenn Repúblikanaflokksins í báðum deildum ríkisþings Flórída hafa lagt fram frumvörp sem miða að því að takmarka rétt kvenna til þungunarrofs við sex vikur í stað fimmtán. Erlent 8. mars 2023 08:18
Murdoch viðurkennir að ýtt hafi verið undir lygar um kosningarnar Rupert Murdoch, ástralski auðjöfurinn sem á og rekur fjölmiðla um heiminn allan, viðurkenndi við vitnaleiðslur að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, þeirrar vinsælustu í Bandaríkjunum, ýttu undir lygar Donalds Trump, fyrrverandi forseta um kosningarnar 2020. Murdoch viðurkenndi einnig að hafa ekki reynt að grípa inn í. Erlent 1. mars 2023 07:01
Lögðu til ákærur í máli Trumps í Georgíu: „Þetta er ekki stuttur listi“ Ákærudómstóll í Georgíu sem rannsakað hefur Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og bandamenn hans vegna afskipta þeirra af framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur lagt til að nokkrir sem að málinu koma verði ákærðir. Erlent 22. febrúar 2023 10:24
Bandarískur auðmaður býður sig fram til forseta Bandaríski auðmaðurinn Vivek Ramaswamy hefur tilkynnt um framboð sitt til að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum sem fram fara í Bandaríkjunum á næsta ári. Innlent 22. febrúar 2023 07:03
Haley fer fram gegn Trump Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, lýsti því yfir í morgun að hún ætli í forsetaframboð. Hún er sú fyrsta sem lýsir yfir framboði eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti, lýsti því yfir í nóvember í fyrra að hann ætlaði að gera aðra atlögu að Hvíta húsinu. Erlent 14. febrúar 2023 14:02
Haley sögð munu tilkynna um forsetaframboð 15. febrúar Nikki Haley, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, er sögð munu tilkynna um framboð sitt til forseta 15. febrúar næstkomandi. Erlent 2. febrúar 2023 06:58
Trump og lögmaður hans dæmdir til greiða milljón dala í sektir Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur skipað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og einum lögmanna hans að greiða sameiginlega nærri milljón Bandaríkjadala í sektir fyrir tilhæfulausa málsókn þar sem Hillary Clinton, landsnefnd Demókrataflokksins og aðrir meintir óvinir Trump voru sakaðir um umfangsmikið samsæri gegn honum. Erlent 20. janúar 2023 07:35
Trump vill komast aftur á Facebook Donald Trump vill komast aftur á Facebook eftir að hafa verið bannaður á miðlinum í kjölfar innrásarinnar í bandaríska þinghúsið í janúar árið 2021. Talið er að hann vilji komast þangað til þess að koma kosningaherferð sinni á flug en hann hefur tilkynnt um framboð sitt til forseta Bandaríkjanna árið 2024. Erlent 18. janúar 2023 23:24
Ákveða á næstu vikum hvort Trump verði ákærður Ákærudómstóll í Georgíu sem rannsakað hefur Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna afskipta hans af framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur lokið störfum. Ekki er ljóst hvort Trump verði ákærður en ákveða á seinna í mánuðinum hvort opinbera eigi skýrslu ákærudómstólsins eða ekki. Erlent 9. janúar 2023 19:49
Erfið vika í vændum hjá Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, stendur frammi fyrir erfiðri viku. Þingnefnd mun mögulega leggja til að hann verði ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra og skattaskýrslur hans verða mögulega opinberaðar. Erlent 19. desember 2022 15:48
De Santis með forskot á Trump Ný skoðanakönnun í Bandaríkjunum bendir til þess að Ron DeSantis, ríkisstjóri í Florída hafi nú verulegt forskot á Donald Trump, fyrrverandi forseta, í kapphlaupinu um útnefningu Repúblikana fyrir næstu forsetakosningar sem fram fara að ári. Erlent 14. desember 2022 07:19
Uppljóstrun Musks reyndist rýr í roðinu Elon Musk og blaðamaðurinn Matt Taibbi tístu um helgina um gögn frá Twitter sem fjölluðu um þá ákvörðun þáverandi forsvarsmanna fyrirtækisins um að banna frétt um Hunter Biden, son Joe Biden, núverandi forseta Bandaríkjanna. Erlent 5. desember 2022 12:51
Dómarar veita Trump enn eitt höggið Áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í dómsmálinu gegn honum vegna leynilegu skjalanna í Mar-a-Lago. Þrír alríkisdómarar sem skipa áfrýjunardómstólinn gagnrýndu einnig dómara sem úrskurðaði áður Trump í vil en sá dómari var skipaður í embætti af Trump. Erlent 2. desember 2022 11:24