

Forsetakosningar í Bandaríkjunum
Forsetakosningar í Bandaríkjunum fóru fram 5. nóvember 2024 þar sem Repúblikaninn Donald Trump hafði betur gegn Demókratanum Kamölu Harris.


*Skv. New York Times

Býður sig fram eftir „baráttu við djúpríkið“ á Íslandi
Jeffrey Ross Gunter, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, hefur tilkynnt að hann sækist eftir því að verða frambjóðandi Repúblikanaflokksins til öldundadeildar Bandaríkjaþings fyrir hönd Nevada í þingkosningum sem fram fara samhliða forsetakosningum í landinu á næsta ári.

Ætlar áfram að einblína á kosningarnar 2020
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, ætlar að nýta nýjustu ákæruna gegn sér til að halda því áfram fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Hann er ákærður fyrir að reyna að snúa úrslitum kosninganna en ráðgjafar hans hafa hvatt hann til að leggja síðustu kosningar á hilluna.

Trump lýsir yfir sakleysi sínu
Donald Trump hefur lýst yfir sakleysi sínu vegna ákæru á hendur honum vegna meintra tilrauna hans til þess að hnekkja úrslitum í bandarísku forsetakosningunum 2020. Fyrirtaka í máli hans fór fram í Washington D.C í kvöld.

Sérfræðingar efast um tjáningarfrelsisvörn Trumps
Verjendur Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, segja nýjustu ákæruna gegn honum fara gegn rétti hans til tjáningarfrelsis. Saksóknarar segja hins vegar að ákæran snúist ekki eingöngu um hvað Trump sagði um forsetakosningarnar 2020 heldur um hvað hann gerði.

Farið yfir ákæruna gegn Trump: „Sakborningurinn tapaði kosningunum 2020“
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var í gær ákærður fyrir viðleitni hans og tilraunir til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Trump tapaði fyrir Joe Biden en hefur ítrekað haldið því ranglega fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur.

Trump ákærður fyrir að reyna að hnekkja úrslitum
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið ákærður í fjórum liðum vegna tilrauna sinna til þess að hnekkja úrslitum í bandarísku forsetakosningunum árið 2020.

Bað eigin sjóð um sextíu milljóna endurgreiðslu
Kosningasjóður Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur farið fram á að sextíu milljónir dala sem veittar voru til pólitískrar aðgerðanefndar (PAC) Trumps sem kallast Save Amcerica, verði endurgreiddar. Krafan þykir benda til þess að Trump eigi í fjárhagskröggum.

Færast nær því að ákæra Biden fyrir embættisbrot
Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa færst nær því að hefja rannsókn á því hvort tilefni finnist til að ákæra Joe Biden, forseta, fyrir embættisbrot. Donald Trump, fyrrverandi forseti sem var tvisvar ákærður fyrir embættisbrot, vill ólmur að Biden verði einnig ákærður.

Fangelsi fyrir barsmíðar með fánastöng
Vörubílstjóri sem barði lögregluþjón með fánastöng í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 hefur verið dæmdur til rúmlega fjögurra ára vistar í alríkisfangelsi. Maðurinn játaði að hafa ráðist á lögregluþjón með hættulegu vopni.

Ákæra sextán Repúblikana í Michigan
Ríkissaksóknari Michigan í Bandaríkjunum ákærði í gær sextán Repúblikana sem reyndu að gera sjálfa sig að kjörmönnum í forsetakosningunum 2020. Þannig vildu þeir snúa tapi Donalds Trump í Michigan í sigur.

Trump með stöðu sakbornings, aftur
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir Jack Smith, sérstakan rannsakenda Dómsmálaráðuneytisins, hafa tilkynnt sér að hann hafi stöðu sakbornings í enn einu málinu. Þetta mál snýr að viðleitni Trumps til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði gegn Joe Biden, núverandi forseta, og gefur tilkynningin til kynna að Trump verði ákærður.

Sagði SARS-CoV-2 hannaða til að leggjast þyngra á hvíta og svarta
Nánir ættingjar forsetaframbjóðandans Robert Kennedy Jr. hafa fordæmt ummæli sem hann lét falla um helgina þess efnis að svo virtist sem SARS-CoV-2 veirunni hefði verið breytt til að leggjast þyngra á hvítt og svart fólk en gyðinga og Kínverja.

Uppsagnir og óhófleg eyðsla í kosningabaráttu DeSantis
Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og forsetaframbjóðandi, hefur þegar þurft að segja upp starfsfólki í kosningaherferð sinni, en upplýsingar gefa í skyn að óhóflega mikið fjármagn hafi farið í framboð hans miðað við hve stutt baráttan er komin.

Vill fresta réttarhöldum fram yfir kosningar
Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa farið fram á að réttarhöldum yfir honum vegna leynilegra skjala sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu verði frestað þar til eftir forsetakosningarnar í nóvember á næsta ári. Þeir segja óréttlátt að rétta yfir Trump á þessu ári, þar sem Trump verði upptekinn við kosningabaráttu og vegna annarra sakamála sem að honum beinast.

CNN birtir upptöku af Trump ræða leynileg skjöl um árás á Íran
CNN hefur komist yfir og birt upptöku þar sem Donald Trump heyrist ræða um leynileg skjöl sem hann hefur undir höndum og viðurkennir að hafa ekki aflétt leynd af.

Gagnrýnandi Trump býður sig fram gegn honum
Will Hurd, fyrrverandi fulltrúadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas, skilaði inn formlegu framboði í forvali flokksins fyrir forsetakosningar næsta árs í dag. Hurd skaut föstum skotum að Donald Trump þegar hann tilkynnti um framboðið.

Segist hafa sýnt blaðaúrklippu en ekki leyniskjal
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist ekki hafa sýnt tveimur rithöfundum leynilegt skjal, heldur hafi það verið blaðaúrklippa. Á upptöku segir Trump að skjalið sé leynilegt og er það eitt þeirra sem hann hefur verið ákærður fyrir að taka með sér úr Hvíta húsinu.

Hafnaði ráðleggingum og laug að ráðgjöfum um leyniskjölin
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafnaði ítrekaðri viðleitni lögmanna hans og ráðgjafa til að reyna að fá hann til að skila gögnum og leynilegum skjölum. Ítrekað var reynt að fá Trump til að gera samkomulag við Dómsmálaráðuneytið til að forðast ákærur, en forsetinn fyrrverandi vildi ekki heyra slíkt.

Vígreift afmælisbarn sakar Biden um spillingu og að grafa undan lýðræðinu
„Það var verið að ákæra mig. Dásamlegur afmælisdagur,“ sagði Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína við gólfklúbb sinn í New Jersey í gær, eftir að hann var ákærður fyrir óvarlega meðferð leyniskjala.

Umdeildur dómari sem Trump tilnefndi stýrir réttarhöldunum
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mætir fyrir dómara í fyrsta sinn eftir að hann var ákærður í leyniskjalamálinu svokallaða. Þar tekur á móti honum umdeildur dómari sem hann sjálfur tilnefndi og hefur áður tekið ákvarðanir honum í vil.

Lögregluyfirvöld segjast geta höndlað allt að 50 þúsund mótmælendur
Mikill viðbúnaður er í Miami þar sem Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti mun mæta fyrir dóm í dag. Lögregla hefur unnið að því að fullvissa íbúa um að hún sé fær um að takast á við ástandið og allt að 50 þúsund mótmælendur.

Soros felur syni sínum stjórn á viðskiptaveldinu
Milljarðamæringurinn George Soros ætlar að láta yngri syni sínum eftir stjórn á viðskiptaveldi sínu. Hægrihreyfingar um allan heim haf gert Soros að sérstakri grýlu en sonurinn segist „pólitískari“ en faðir sinn.

Vara við hættulegri orðræðu stuðningsmanna Trump
Sérfræðingar eru uggandi vegna orðræðu stuðningsmanna Trump í kjölfar þess að ákærur voru gefnar út á hendur honum í tengslum við leyniskjöl sem hann tók úr Hvíta húsinu, faldi á heimili sínu í Flórída og neitaði að afhenda þegar eftir því var leitað.

Ákæran sé ein versta valdníðslan í sögu landsins
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir ákæru á hendur sér vegna þess að hann hélt opinberum gögnum með ólöglegum hætti og hindraði framgang réttvísinnar, munu fara í sögubækurnar sem ein versta valdníðslan í sögu Bandaríkjanna.

Viðurkenndi á upptöku að gögnin væru leynileg
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, viðurkenndi á upptöku að hann hefði ekki svipt leyndinni af skjölum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu. Þá viðurkenndi hann einnig að hann gæti ekki svipt hulunni af þeim lengur, þar sem hann væri ekki enn forseti.

Keppinautar Trump koma honum enn til varnar eftir ákæru
Nokkrir mótframbjóðendur Donalds Trump sem keppa við hann um að verða forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins tóku undir gagnrýni hans á dómsmálayfirvöld eftir að hann var ákærður vegna leyniskjala sem hann hélt eftir. Ákæran er söguleg en kemur ekki í veg fyrir að Trump geti boðið sig fram til forseta.

Trump ákærður vegna leyniskjala
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, greinir frá því á samfélagsmiðlum að hann hafi verið ákærður vegna leyniskjala sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu þegar hann lét af embætti.

Líkurnar á að Trump verði ákærður vegna leyniskjalanna aukast
Alríkissaksóknarar hafa tjáð lögmönnum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að hann sé viðfangsefni rannsóknar þeirra á leyniskjölum sem Trump hafði með sér úr Hvíta húsinu þegar hann lét af embætti. Þetta er sagt benda til þess að Trump verði líklega ákærður.

Pence segir óbeinum orðum að Trump sé vanhæfur
„Sjötti janúar var sorgardagur í sögu þjóðar okkar. En þökk sé hugrekki löggæsluyfirvalda náðist að kveða ofbeldið niður og hefja þingfund á ný. Sama dag ógnuðu kæruleysisleg orð Trump forseta fjölskyldu minni og öllum í þinghúsinu.“

Lögmenn Trump funduðu um gagnamálið í dómsmálaráðuneytinu
Þrír lögmenn Donald Trump áttu tveggja tíma fund í dómsmálaráðuneytinu í Washington í gær til að ræða framgöngu sérstaks saksóknara við rannsókn á meðhöndlun forsetans fyrrverandi á leynilegum gögnum.