Leikgerðin að verða til Gísli Örn Garðarsson segir leikgerð sína eftir Tillsammans óðum vera að skýrast. Leikhópurinn og aðrir sem að uppsetningunni koma dvöldust úti á landi í síðustu viku, við æfingar og annað samspil. Gísli segir dvölina hafa borið mikinn árangur. Bíó og sjónvarp 20. ágúst 2007 07:30
Ágúst gerir draugamynd á Grettisgötu „Þetta er bara kvikmynd sem ég ætla að gera og kemst vonandi á koppinn snemma á næsta ári,“ segir Ágúst Guðmundsson, kvikmyndaleikstjórinn góðkunni, en hann leggur nú lokahönd á handrit sem heitir Ófeigur gengur aftur. Bíó og sjónvarp 20. ágúst 2007 06:00
Kynlíf fyrir opnum tjöldum „Kynlíf hefur svo mikla möguleika sem tjáningarform sem hafa alls ekki verið nýttir að neinu viti í alvarlegum kvikmyndum,“ segir John Cameron Mitchell leikstjóri myndarinnar Shortbus sem er sýnd hér á Bíódögum Græna ljóssins. Bíó og sjónvarp 20. ágúst 2007 05:30
Íslendingar í Edinborg Gríðarlegur fjöldi fólks sækir Edinborgarhátíðina, sem nú stendur yfir, á ári hverju. Í ár eru Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Ólafsson í þeim hópi, auk þess sem leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir tekur þátt í tveimur sýningum á hátíðinni. Bíó og sjónvarp 20. ágúst 2007 04:00
Jamie Foxx í The Soloist Leikarinn Jamie Foxx hefur tekið að sér hlutverk í kvikmyndinni The Soloist. Fjallar hún um heimilislausa tónlistarmanninn og geðklofann Nathaniel Antony Ayers sem dreymir um að halda tónleika í Walt Disney-tónleikahöllinni. Bíó og sjónvarp 20. ágúst 2007 01:15
The Bridge - þrjár stjörnur Heimildarmyndin The Bridge fjallar um sjálfsvíg á Golden Gate-brúnni við San Fransisco. Brúin er sá staður í heiminum þar sem flestir binda enda á líf sitt. Á um það bil tveggja vikna fresti stekkur einhver fram af brúnni út í nær öruggan dauða. Bíó og sjónvarp 20. ágúst 2007 00:01
Verst leikna ástarsamband kvikmyndasögunnar Ástarsamband Padme Amidala og Anakin Skywalker í nýju Stjörnustríðsmyndunum var valið það minnst sannfærandi í kvikmyndasögunni. Bíó og sjónvarp 19. ágúst 2007 15:12
Killer Joe aftur á svið Sýningum á Killer Joe verður haldið áfram á Litla sviði Borgarleikhússins í byrjun september og er miðasala þegar hafin á vef leikhússins. Sýningin hlaut mikla athygli og lof bæði gagnrýnenda og áhorfenda í vor, og alls 8 tilnefningar til Grímunnar í júní síðastliðnum. Bíó og sjónvarp 19. ágúst 2007 07:45
Ágústa hjá frönskum harðstjóra Þetta var mjög gaman og ákaflega forvitnilegt,“ segir leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir en hún er snúin aftur heim eftir mánaðardvöl í frönskum trúðaskóla í höfuðborginni París. Bíó og sjónvarp 19. ágúst 2007 04:00
Samadrama fresta enn Vandamál steðja að norska leikstjóranum Niels Gaup sem gerði hina eftirminnilegu mynd Leiðsögumanninn, með Helga Skúlasyni. Hann er nú að ljúka við stóra mynd, Kautokeino-uppreisnina, og ætlaði að frumsýna í apríl en þá varð frestun. Bíó og sjónvarp 18. ágúst 2007 05:45
Erótísk tilraunastarfsemi Heimildarmyndin No Body Is Perfect, sem sýnd er á Bíódögum Græna ljóssins, fjallar um allt það sem fólki dettur í hug að gera við líkama sinn. Bíó og sjónvarp 18. ágúst 2007 04:15
Myndinni frestað Útgáfu heimildarmyndar Martin Scorsese um hljómsveitina The Rolling Stones hefur verið frestað þar til í apríl á næsta ári af markaðsástæðum. Myndin, sem heitir Shine a Light, átti upphaflega að koma út í september og hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Bíó og sjónvarp 15. ágúst 2007 06:00
Nordisk Panorama nálgast Norræna heimildar- og stuttmyndahátíðin, Nordisk Panorama, fer fram í Oulo í Finnlandi í síðustu viku september. Hátíðin fer sem kunnugt er milli nokkurra borga á Norðurlöndunum, var haldin í Árósum í fyrra og þar áður í Bergen. Bíó og sjónvarp 15. ágúst 2007 05:15
Sjálfsvígsbrúin Golden Gate Golden Gate brúin við San Fransisco er sá staður í Bandaríkjunum sem flestir fyrirfara sér. Í annarri hverri viku að meðaltali stekkur einhver fram af. Heimildarmyndin The Bridge, sem verður sýnd á Bíódögum Græna ljóssins sem hefjast í dag, fjallar um sjálfsvígin á brúnni. Bíó og sjónvarp 15. ágúst 2007 04:00
Yfirmaður óskast Mannaskipti verða hjá Nordisk Filmkontakt um næstu áramót þegar ráða á nýjan framkvæmdastjóra samtakanna. Karolina Lidin sem hefur gegnt starfinu um árabil hættir og rennur umsóknarfrestur fyrir starfið út 17. ágúst. Karolina er mjög virt í heimi kynningar, dreifingar og fjármögnunar á heimildar- og stuttmyndum og hefur staðið sig afar vel í starfi. Bíó og sjónvarp 15. ágúst 2007 01:30
Heimildarmynd Sigur Rósar frumsýnd 27. september Heimildamynd um tónleikaferð Sigur Rósar um Ísland í fyrra verður frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík fimmtudaginn 27. september. Tónleikaferðalagið sveitarinnar var allt kvikmyndað og fá aðdáendur nú að njóta afraksturins í mynd um ferðalagið sem hlotið hefur nafnið Sigur Rós - Heima. Bíó og sjónvarp 14. ágúst 2007 12:42
Gael García Bernal í sýningu Gísla Stórstjarnan Gael García Bernal er á meðal þeirra erlendu leikara sem leika í sviðsuppsetningu Gísla Arnar Garðarssonar á kvikmynd Lukas Moodysson, Tillsammans. Bíó og sjónvarp 14. ágúst 2007 05:45
Bergmansþing í kvöld Rannsóknahópurinn Deus ex cinema stendur fyrir málþingi í kvöld sem ber yfirskriftina Guð á hvíta tjaldinu um trúarleg minni í verkum sænska leikstjórans Ingmars Bergman sem lést í júlí og fleiri stórskálda kvikmyndanna. Bíó og sjónvarp 14. ágúst 2007 05:00
Latabæjarsýning fyrir hlaup Gunnar Helgason leikstýrir stuttu Latabæjarleikriti sem sett verður upp fyrir Latabæjarhlaupið en það verður haldið á menningarnótt. Bíó og sjónvarp 14. ágúst 2007 04:15
Ingvar í ævintýradrama fyrir fullorðna Nýlega lauk tökum á stuttmynd sem byggir á Grímsævintýri og heitir hún Harmsaga. Myndin er ævintýradrama fyrir fullorðna með drungalegu ívafi. Valdimar Jóhannsson leikstýrir myndinni og var hún tekin upp í Arnarfirði á Vestfjörðum í síðasta mánuði. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2007 16:37
Stórmynd í uppnámi Eitt stærsta verkefni í norrænum kvikmyndaiðnaði er í uppnámi. Norrænar sjónvarpsstöðvar réðust í það í fyrra að láta gera handrit eftir þríleik sænska rithöfundarins Jan Guillou um þátt norrænna manna í krossferðunum. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2007 06:45
Heima frumsýnd á RIFF Heima, mynd um tónleikaferð hljómsveitarinnar Sigur Rósar um Ísland, verður frumsýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, 27. september næstkomandi. Þetta kemur fram á Soundgenerator.com. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2007 05:45
Mynd fyrir týndu kynslóðina í íslenskri bíómenningu „Bæði bókin og leikverkið eru algjör snilld," segir handritshöfundurinn Ottó Geir Borg sem í félagi við leikstjórann Gunnar Björn Guðmundsson hefur fengið styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands til að gera handrit eftir unglingabók Ólafs Hauks Símonarsonar, Gauragangur. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2007 04:45
Leikstjóri Star Trek til Íslands Miklar líkur eru á því að næsta Star Trek-mynd verði tekin hér á landi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins berjast Saga Film og Pegasus enn um að fá umsjón með tökunum hér á landi. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2007 02:15
Draugar Milos Forman Goya`s Ghost, nýjasta kvikmynd hins tékkneska Milos Forman, verður meðal kvikmynda á Bíódögum Græna ljóssins sem hefjast eftir tæpa viku. Myndin segir frá ævi spænska málarans Francisco Goya og er stjörnum prýdd en meðal leikara eru þau Natalie Portman og Javier Bardem auk Stellan Skarsgaard sem fer með hlutverk Goya. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2007 00:30
Þjóðsögur á mynddiskum Tvíeykið góða úr Stundinni okkar, þau Þóra Sigurðardóttir og Jóhann G. Jóhannsson, hafa nú gefið út DVD-diska sem innihalda þættina Sögurnar okkar. „Þetta eru þættir sem við gerðum fyrir RÚV og voru sýndir í fyrra,“ segir Þóra. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2007 00:15
Umbreytingar líta dagsins ljós Kvikmyndin Transformers eða Umbreytingar var frumsýnd í gær hér á landi en hún þykir ein best heppnaða sumarmyndin. Myndin er byggð á frægum leikföngum frá 7. áratug síðustu aldar sem eiga rætur að rekja til Japans. Bíó og sjónvarp 9. ágúst 2007 05:45
Harris leikstýrir Bandaríski leikarinn Ed Harris hyggst setjast aftur í leikstjórastólinn og að þessu sinni leikstýra alvöru vestra. Bíó og sjónvarp 9. ágúst 2007 03:15
Baltasar Kormákur í Independent Nafn leikarans, leikstjórans og framleiðandans Baltasars Kormáks verður sífellt stærra í hinum alþjóðlega kvikmyndaheimi og í tilefni þess að mynd hans, A Little Trip to Heaven, kom út á DVD í Bretlandi í vikunni var hann í stuttu viðtali við hið virta blað Independent á þriðjudag. Bíó og sjónvarp 9. ágúst 2007 00:30
Casablanca endurgerð á Indlandi Hin margrómaða kvikmynd Casablanca verður endurgerð á Indlandi. Gamla handritið verður þýtt og staðfært að suður-indverskum nútímaveruleika. Bíó og sjónvarp 8. ágúst 2007 17:28