Segja reglurnar allt of harkalegar og að starfsfólk óttist að verða gert að blórabögglum Framkvæmdastjóri Tékklands bifreiðaskoðunar segir nýjar reglur um ástandsskoðun ökutækja ganga allt of langt. Starfsfólk óttist að verða gert að blórabögglum og kvíði breytingunum. Innlent 17. desember 2021 19:30
Mun erfiðara verði að koma bílnum í gegnum skoðun Mun erfiðara verður að koma ökutækjum í gegnum skoðun á næsta ári eftir að reglugerð um ástand þeirra verður hert til muna og vanrækslugjöld hækkuð. Þá verða ríkari kröfur gerðar til skoðanastöðva en áður. Innlent 16. desember 2021 21:00
Toyota ætlar að kynna 30 rafbíla fyrir árið 2030 Toyota kynnti í gær áform sín um framleiðslu rafbíla til næstu ára. Toyota og Lexus ætla að kynna 30 nýja rafbíla á næstu átta árum. Stefnt er að því að árið 2030 verði sala á rafbílum komin í 3,5 milljónir rafbíla á ári. Bílar 15. desember 2021 07:00
Myndband: Cybertruck á prófunarbraut Tesla Frumgerð af Tesla Cybertruck sást á prófunarbraut við verksmiðju Tesla í Fermont, Kaliforníu. Bíllinn á myndbandinu virðist vera talsvert nær því að vera endanleg útgáfa en sá sem var kynntur upprunalega árið 2019. Bílar 13. desember 2021 07:01
Vélmenni til bjargar og fólk hættir að sleppa við sektir Með fjölgun hraðamyndavéla á Íslandi var lögreglan á stundum hætt að geta annað því að senda út hraðasektir til ökumanna en nú horfir málið til betri vegar. Með nýjum þjarki ætti fólk núna að geta fengið sektina í heimabanka eftir svo mikið sem korter og þær ættu allar að skila sér. Innlent 12. desember 2021 22:31
Samfélagsbíllinn Undanfarið hefur verið umræða um ívilnanir á rafbíla og hvort ekki þurfi að endurskoða þær með auknum fjölda rafbíla á götum landsins. Það er mikilvægt að rifja aðeins upp af hverju ríkið er yfirleitt að ívilna þessum tækjum og hvað ríkið fær í raun fyrir peninginn. Skoðun 11. desember 2021 17:30
Myndir af nýjum Mini leka á netið Myndum af næstu kynslóð hins goðsagnakennda Mini hlaðbaks hefur verið lekið á netið. Þær birtust upprunalega í kínverskum fjölmiðlum en eru nú komnar í talsverða dreifingu á samfélagsmiðlum. Bílar 11. desember 2021 07:01
Audi hefur staðfest að arftaki R8 verði hreinn rafbíll Audi hefur staðdest að arftaki R8 ofurbílsins verði hreinn rafbíll. Yfirmaður vörumarkaðssetningar hjá Audi Sport, Linda Kurz, sagði í samtali við Roadshow að nýi R bíllinn myndi ekki notast við brunahreyfil. Bílar 10. desember 2021 07:01
Bjarni boðar nýtt álagningakerfi á græn ökutæki Fjármálaráðherra segir nauðsynlegt að innleiða nýtt álagningarkerfi fyrir bifreiðar sem ekki væru drifnar áfram af jarðefnaeldsneyti. Fyrstu skrefin verði vonandi stigin á næsta eða þarnæsta ári. Ríkissjóður geti ekki verið án tekna af umferðinni til að standa undir viðhaldi og uppbyggingu innviða hennar. Neytendur 9. desember 2021 13:18
Kia EV6 valinn jepplingur ársins hjá Top Gear Kia EV6 rafbíllinn hefur verið valinn jepplingur ársins hjá bílatímaritinu heimsfræga Top Gear. Kia EV6 hefur fengið góðar viðtökur síðan hann kom á markað fyrir stuttu og er þetta enn ein viðurkenningin sem bíllinn fær. Bílar 8. desember 2021 07:00
Nagladekkjafrumvarpið ógurlega – um hvað snýst það eiginlega? Ég og fleiri þingmenn höfum lagt fram lagafrumvarp þar sem stigin eru varfærnisleg skref til að sporna gegn óþarfri notkun á nagladekkjum í þéttbýli. Hér eru nokkur atriði sem rétt er að hafa í huga þegar fjallað er um málið. Skoðun 7. desember 2021 08:02
Gjöld á borgarbúa gætu verið stóra lausnin Um 40% ökutækja í Reykjavík eru á negldum dekkjum en þegar minnst lét voru þau rúm 20%. Nú vill Samfylkingin snúa þróuninni við með gjaldtöku. Innlent 6. desember 2021 22:00
Polestar birtir kitlumynd af Polestar 3 Polestar 3 er rafmagnsjeppi sem frumsýndur verður árið 2022. Polestar 3 er fyrsti jeppi framleiðandans og fyrsti bíll þess sem verður framleiddur í Bandaríkjunum í Charlestone, Suður-Karólínu. Bílar 6. desember 2021 07:00
Hyundai með flestar nýskráningar í nóvember Flest nýskráð ökutæki í nóvember voru af Hyundai gerð. Nýskráð voru 194 ökutæki af Hyundai gerð í nóvember. Það er annar mánuðurinn í röð sem Hyundai er á toppnum. Næst á eftir Hyundai kemur Kia með 95 nýskráningar og svo Toyota í þriðja sæti með 91 nýskráningu. Þetta kemur fram í tölum á veg Samgöngustofu. Bílar 5. desember 2021 07:01
Frumherji endurskoðar eignarhaldið Orri Hlöðversson, framkvæmdastjóri Frumherja, og Andri Gunnarsson stjórnarformaður keyptu á dögunum út aðra hluthafa félagsins. Viðskipti innlent 3. desember 2021 14:23
Rafbíllinn MG ZS EV Luxury með 440 km drægni BL við Sævarhöfða kynnir á morgun laugardag, 4. desember milli kl. 12 og 16, uppfærðan og útlitsbreyttan MG ZS EV Luxury með 72 kWh rafhlöðu með uppgefinni 440 km drægni samkvæmt WLTP mælingum í blönduðum akstri. MG ZS EV er fimm manna fólksbíll sem hjá BL kostar 5.490 þúsundir króna. Bílar 3. desember 2021 07:01
Tíminn og veðrið þurfa að vinna saman til að laga svæðið þar sem Top Gear spændi upp sandinn Ekki virðist hafa tekist nógu vel til við að endurheimta ásýnd svæðisins við Hjörleifshöfða þar sem sandspyrnukeppni á vegum breska bílaþáttarins Top Gear fór fram, þrátt fyrir tilraunir til að lagfæra ummerkin. Tíminn og náttúruöflin munu þurfa að klára verkið, en óvíst er hveru langan tíma það mun taka. Innlent 2. desember 2021 13:12
Umdeildur Íslandsþáttur Top Gear endaði á æsilegum kappakstri að barmi Rauðuskálar Íslandsþáttur breska bílaþáttanna ofurvinsælu Top Gear, sem tekinn var upp hér á landi í sumar var sýndur um liðna helgi í Bretlandi. Í þættinum má meðal annars sjá umdeildan utanvegaakstur á Hjörleifshöfða, auk þess sem að þátturinn fjallar að stórum hluta um æsilegan kappakstur um óbyggðir Íslands sem endar á barmi Rauðuskálar. Innlent 1. desember 2021 20:06
Hennessey ætlar að setja sex hjóla rafbíl á markað árið 2026 Hennessey ætlar að halda áfram að eltast við hraða met líkt og með Venom F5 bíl sínum. Fyrsti rafbíll framleiðandans verður sex hjóla rafbíll sem mun skarta 2400 hestöflum og um 390 milljón króna verðmiða. Bílar 1. desember 2021 07:01
Hinn goðsagnakenndi Sir Frank Williams er látinn Frank Williams, stofnandi og fyrrum eigandi Williams liðsins í Formúlu 1 lést í gærmorgun 79 ára að aldri. Hann hafði verið lagður inn á sjúkrahús á föstudag. Bílar 29. nóvember 2021 07:01
Nýr Kia Niro kemur haustið 2022 Fyrstu myndir af nýrri kynslóð Kia Niro hafa litið dagsins ljós. Hann verður frumsýndur á bílasýningunni í Seoul sem er að hefjast. Bílar 27. nóvember 2021 07:00
Héraðsdómur segir málsmeðferð kærunefndarinnar „verulegum annmörkum háð“ Málsmeðferð kærunefndar útboðsmála, þegar hún tók fyrir mál Ísorku gegn Orku náttúrunnar og Reykjavíkurborg, var „verulegum annmörkum háð“. Þetta segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem ógilti úrskurð nefndarinnar. Innlent 26. nóvember 2021 08:46
Myndband: Model Y spyrnir við Mustang Mach-E GT Báðir bílar fara úr kyrrstöðu í 100 km/klst á um 3,5 sekúndum. Spyrnan ætti því að vera afar spennandi. Myndband má finna í fréttinni. Bílar 26. nóvember 2021 07:01
Myndband: Nýr Polestar 5 væntanlegur árið 2024 Þróun Polestar 5 heldur áfram. Polestar ætlar að halda sig að mestu leyti við hönnunina sem birtist á hugmyndabílnum, the Precept. Myndband af hönnun bílsins má sjá í fréttinni. Bíllinn er væntanlegur á markað árið 2024. Bílar 24. nóvember 2021 07:01
Munu opna 156 götuhleðslur á ný eftir ógildingu úrskurðar Orka náttúrunnar mun síðar í vikunni opna 156 götuhleðslur á ný eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur felldi úr gildi úrskurð kærunefndar útboðsmála fyrr í dag. Viðskipti innlent 23. nóvember 2021 14:34
Scania vinnur verðlaun fyrir sjálfbærni flutningabíla Scania hefur unnið fjölda verðlauna fyrir sjálfbærni flutningabíla sinna á undanförnum misserum. Nú hefur Scania 25 P BEV flutningabíllinn tryggt bílaframleiðandanum enn ein verðlaunin með því að vinna sjálfbærniverðlaunin á Sty 2022 verðlaunahátíðinni á Ítalíu. Bílar 22. nóvember 2021 07:00
Hundruð Teslu-eigenda sátu fastir vegna bilunar í smáforriti Bilun í smáforriti rafbílaframleiðandans Teslu varð til þess að hundruð Teslu-eigenda gátu ekki startað bílum sínum í gær. Erlent 20. nóvember 2021 18:45
FÍB gagnrýnir milljarða arðgreiðslu Sjóvár Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, gagnrýnir tryggingarfélagið Sjóvá í grein sem birt var á vefsíðu félagsins í gær. Framkvæmdastjóri FÍB segir ljóst að gríðarlegur hagnaður tryggingafélagsins sé ekki að skila sér til viðskiptavina. Viðskipti innlent 20. nóvember 2021 14:45
Askja frumsýnir Kia EV6 og EQS frá Mercedes-EQ Bílaumboðið Askja stendur fyrir sérstakri þriggja daga frumsýningu. Frumsýningin byrjaði með miðnæturopnun í gærkvöldi. Kynntir verða tveir spennandi 100% rafbílar sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu, Kia EV6 og EQS frá Mercedes-EQ. Bílar 19. nóvember 2021 07:01
Polestar kemur til Íslands Bílaumboðið Brimborg er orðinn opinber umboðsaðili fyrir Polestar rafbíla á Íslandi. Polestar sýningarsalurinn mun opna 25. nóvember í Reykjavík. Bílar 17. nóvember 2021 07:00