Sagður hafa stöðvað stuðningsyfirlýsingu Forsvarsmenn bandaríska miðilsins Washington Post tilkynntu í gær að miðillinn myndi ekki lýsa yfir stuðningi við forsetaframbjóðenda og er það í fyrsta sinn í 36 ár. Auðjöfurinn Jeff Bezos, einn ríkustu manna heims og eigandi miðilsins, er sagður hafa bannað ritstjórn WP að lýsa yfir stuðningi við Kamölu Harris, eins og til stóð. Erlent 26. október 2024 13:24
Óttast umsátur og ofbeldi við kjörstaði Allt er í járnum í Bandaríkjunum nú þegar rúm vika er í forsetakosningar þar ytra. Borgarfulltrúi segir söguna sýna að Trump fái oft meira fylgi en kannanir gefi til kynna. Óttast er að umsátursástand myndist við kjörstaði vegna ólgu í tengslum við kosningarnar. Erlent 26. október 2024 13:01
Íranar segja skaðann „takmarkaðan“ eftir árásir næturinnar Klerkastjórn Íran er þegar byrjuð að gera lítið úr árásum Ísrael á landið í nótt. Þær eru sagðar hafa beinst gegn hernaðarskotmörkum í landinu og segja ráðamenn í Íran að skaðinn hafi verið „takmarkaður“. Ísraelar segja árásunum lokið og að þær hafi verið gerðar á loftvarnarkerfi, eldflaugaverksmiðjur og önnur skotmörk. Erlent 26. október 2024 07:29
Víðfrægur rappari grunaður um að ráða launmorðingja Lil Durk, Grammy-verðlaunahafi og bandarískur rappari, var handtekinn í gær grunaður um að hafa ráðið launmorðingja til að ráða keppinaut sinn af dögunum. Erlent 25. október 2024 23:25
Enn allt í járnum skömmu fyrir kjördag Kamala Harris og Donald Trump mælast enn hnífjöfn í könnunum en einungis ein og hálf vika er í forsetakosningarnar vestanhafs. Viðleitni Harris til að ná til kjósenda á hægri væng bandarískra stjórnmála er sögð fara í taugarnar á hluta stuðningsmanna hennar. Erlent 25. október 2024 15:06
Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti Tæpt ár er liðið síðan leikarinn Matthew Perry lést skyndilega 54 ára gamall. Fjölskylda hans tjáði sig um andlátið í fyrsta skipti en þau hafa stofnað styrktarsjóð fyrir einstaklinga með fíknisjúkdóma. Lífið 25. október 2024 15:00
Musk sagður í reglulegum samskiptum við Pútín Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur átt í reglulegum samskiptum við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á undanförnum árum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa rætt um persónuleg málefni, viðskiptatengd mál og alþjóðleg deilumál. Erlent 25. október 2024 09:44
Baráttan um Bandaríkin: „Hann veit hvað hann er að gera“ „Hann veit hvað hann er að gera, að mínu mati. Og þess vegna heldur hann sínu,“ sagði Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra í Washington, um Donald Trump í Baráttunni um Bandaríkin í vikunni. Erlent 25. október 2024 07:52
Leggur til að Menendez bræðrunum verði sleppt á reynslulausn Saksóknari í Los Angeles, George Gascón, hefur mælt með því að Menendez bræðurnir, Eric og Lyle, verði dæmdir á ný. Eins og er afplána bræðurnir lífstíðarfangelsi án möguleika á skilorði fyrir að hafa myrt foreldra sína árið 1989. Saksóknari mælir með því að þeim verði sleppt úr fangelsi á reynslulausn. Erlent 24. október 2024 23:27
Segir spjallþjarka bera ábyrgð á sjálfsvígi sonar hennar Móðir fjórtán ára drengs sem svipti sig lífi hefur höfðað mál gegn spjallþjarkafyrirtæki og segir þjarka fyrirtækisins bera ábyrgð á dauða hans. Sewell Setzer þriðji hafði um mánaða skeið talað við þjarka sem líkjast á persónunni Daenerys Targaryen, úr Game of Thrones. Erlent 24. október 2024 14:03
Vísaði skjalamálinu frá og á lista yfir mögulega dómsmálaráðherra Alríkisdómarinn Aileen Cannon er á lista framboðs Donalds Trump yfir mögulega dómsmálaráðherra, vinni hann sigur í forsetakosningunum í nóvember. Það er sami dómari og vísaði skjalamálinu svokallaða frá í sumar. Cannon hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að vernda Trump sem skipaði hana í embætti á síðustu dögum forsetatíðar sinnar árið 2020. Erlent 24. október 2024 10:44
Tarsan-leikari látinn Bandaríski leikarinn Ron Ely, sem þekktastur er fyrir að hafa túlkað Tarsan í samnefndum sjónvarpsþáttum undir lok sjöunda áratugarins, er látinn, 86 ára að aldri. Lífið 24. október 2024 08:02
Segir Trump fasista sem dáist að einræðisherrum Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrataflokksins, svaraði því játandi í gær þegar hún var spurð að því hvort Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og forsetaefni Repúblikana, væri fasisti. Erlent 24. október 2024 07:50
Starfsmenn Boeing hafna 35 prósent launahækkun Starfsmenn Boeing, sem nú hafa verið í verkfalli í rúman mánuð, hafa hafnað nýjasta tilboði flugvélaframleiðandans sem hljóðaði upp á 35 prósent launahækkun á fjórum árum. Erlent 24. október 2024 07:04
Staðfesta flutninga hermanna frá Norður-Kóreu til Rússlands Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir hermenn frá Norður-Kóreu hafa verið senda til Rússlands. Þar eigi þeir að aðstoða Rússa við stríðið gegn Úkraínu en óljóst sé með hvaða hætti. Erlent 23. október 2024 13:29
Sakar Verkamannaflokkinn um afskipti af kosningunum Framboð Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kvartað til kosningayfirvalda í Bandaríkjunum vegna meintra afskipta Breta af kosningabaráttunni vestanhafs. Erlent 23. október 2024 07:13
Bein útsending: Nýjustu tíðindi af baráttunni vestan hafs Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður og Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra í Washington og sérfræðingur í utanríkismálum, ræða stöðuna í kosningabaráttunni vestanhafs og hvaða áhrif úrslitin munu hafa á Bandaríkin og umheiminn. Erlent 22. október 2024 13:54
Michael Newman látinn Baywatch-stjarnan Michael Newman er látinn 68 ára að aldri. Hann hafði glímt við Parkinsons frá árinu 2006. Lífið 22. október 2024 13:53
Fjölmiðlar lengi í vanda með Trump: „Þetta er ekki eðlilegt“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, hóf langa ræðu sína í Latrobe í Pennsylvaníu um helgina á því að ræða stærð typpis golfkappans Arnold Palmer. Sagði hann aðra golfara hafa verið slegna þegar þeir fóru með Palmer í sturtu. Erlent 22. október 2024 10:21
Weinstein greindur með krabbamein Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein hefur verið greindur með krabbamein, nánar tiltekið langvinnt kyrningahvítblæði. Erlent 22. október 2024 08:35
Krefjast þess að Rússar sendi hermenn Kim heim Utanríkisráðherra Suður-Kóreu kallaði sendiherra Rússlands þar í landi á teppið í morgun. Kim Hong Kyun krafðist þess við Georgy Zinoviev að hermenn frá Norður-Kóreu yrðu sendir frá Rússlandi. Erlent 21. október 2024 13:01
Efast um lögmæti milljóna dala gjafa Musks til kjósenda Auðjöfurinn Elon Musk hefur heitið því að gefa einum skráðum kjósenda í svokölluðum sveifluríkjum í Bandaríkjunum milljón dali á degi hverjum fram að kosningum. Sérfræðingar segja þetta mögulega ólöglegt og ríkisstjóri Pennsylvaínu hefur kallað eftir því að málið verði rannsakað. Erlent 21. október 2024 10:35
Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta. Erlent 21. október 2024 07:03
Lawrence ólétt í annað sinn Óskarsverðlaunahafinn Jennifer Lawrence hefur tilkynnt að hún sé ólétt af sínu öðru barni. Lífið 21. október 2024 00:00
Aftur rafmagnslaust á Kúbu Kúba varð rafmagnslaus í annað sinn á rúmum sólahring í dag. Tilkynnt var um það í gærkvöldi að landið væri allt rafmagnslaust vegna bilunar í einu stærsta orkuveri landsins. Í frétt á Guardian segir að rafmagnskerfið hafi svo hrunið í annað sinn eftir að yfirvöld voru byrjuð að koma rafmagni aftur á. Erlent 19. október 2024 13:36
Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ „Skekkjumörkin eru yfirleitt í kringum tvö og hálft til þrjú og hálft prósent, þannig að þetta er allt innan skekkjumarka,“ sagði Friðjón R. Friðjónsson, sérlegur áhugamaður um bandarísk stjórnmál, í Baráttunni um Bandaríkin í vikunni. Erlent 19. október 2024 09:01
Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Elon Musk, einn auðugasti maður heims, bar í gær upp gamlar og ósannar samsæriskenningar um kosningasvik í forsetakosningunum 2020. Það gerði hann á kosningafundi fyrir Donald Trump í Pennsylvaníu og gaf hann meðal annars til kynna að kosningavélar Dominion Voting Systems hefðu verið notuð til kosningasvika. Erlent 18. október 2024 14:21
Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur hvatt Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, til að horfa fram á við og taka næstu skref í átt að vopnahléi á Gasa, í kjölfar fregna af því að Ísraelsher hefði banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas. Erlent 18. október 2024 07:31
Mál umdeilda skákborðsins ætlar engan endi að taka Landsréttur hefur sent mál sem varðar eftirlíkingu af skákborði sem Bobby Fischer og Boris Spasskí notuðu þegar þeir tefldu í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972 aftur í hérað. Innlent 17. október 2024 22:11
„Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Tvær B-2 sprengjuflugvélar voru í nótt notaðar til að varpa sprengjum á neðanjarðarbyrgi Húta í Jemen. Sprengjuflugvélarnar búa yfir tækni sem gerir erfitt að sjá þær á ratsjám og eru meðal háþróuðustu herflugvéla heims. Erlent 17. október 2024 11:35