Drápsleikir dátanna Ekki hefur það farið sérstaklega hátt í fjölmiðlum, en undanfarna daga hafa nokkur hundruð manns leikið sér í stríðsleik hér á landi. Settar hafa verið á svið sem "raunverulegastar aðstæður“ svo dátarnir venjist því sem best hvernig er að drepa aðra dáta. Líklega hafa þó margir þeirra nokkra reynslu í því. Til að kóróna stráksskapinn heitir þessi leikur Norðurvíkingur, en byssuleikurinn hefur verið haldinn reglulega hér á landi frá árinu 1991. Kostnaður íslenska ríkisins í ár nemur 30 milljónum króna. Bakþankar 7. júní 2011 07:00
Upp námu menn Íslendingar eru uppnámsfús þjóð. Okkur finnst við varla lifa til fulls nema hjartslátturinn dynji í líkingu við það þegar gripharður gæðingur skeiðar í ásamóði. Við fögnum hverju tækifæri til að geta fundið taugarnar titra og hér er fátt eitt af því sem í boði hefur verið undanfarin ár: Olíusamráð, Icesave, heiðurslaun Alþingis, tvöföldun Reykjanesbrautar, barnýgir kettir, glerhjúpurinn utan á Hörpu, greiðslukortasamráð, Finnur Ingólfsson, meintur dauði norðlensks hunds, fuglaflensa, kennaraskortur, gosframleiðandasamráð, staðgöngumæðrun… Bakþankar 6. júní 2011 07:00
Halló, tómatsósa! Einu sinni voru tveir tómatar að labba yfir götu. Þá kom bíll og keyrði á annan þeirra. Þá sagði hinn: „Halló, tómatsósa!“ Bakþankar 3. júní 2011 09:00
Kæra 7 ára barn, hertu þig Hvernig varð það að viðtekinni hugmynd að börn sem hafa áhuga á að stunda íþróttir stefni almennt á að verða afreksíþróttafólk eða atvinnumenn? Þau skuli öll skara fram úr – með góðu eða illu. Bakþankar 2. júní 2011 06:00
Sósíalistar dauðans Um þarsíðustu helgi fóru fram héraðskosningar hér á Spáni og eins og jafnan þegar kosningar fara fram varð ég margs vísari um meðbræður mína. Bakþankar 1. júní 2011 06:00
Svaka gott siðferði Það er viss fegurð í rusli úti við veginn og reykjandi ökumanni ökumanni í umferðinni með gluggana uppi árið 2011. Það sem er á skjön fangar augað og hrífur - nú eða stuðar. Sum erum við sérstaklega veik fyrir misfellum og þyrstir hreinlega í þær í einsleitu umhverfi. Fögnum illa hirtum grasbletti í Garðabæ og skoppandi silíkonbrjóstum í Árnagarði. Allt í stíl getur verið óbærilega leiðinlegt. Þess vegna líður mér hvergi betur en á Hlemmi eða í biðröð eftir Lottó. Bakþankar 30. maí 2011 06:00
Vor og hús Það fer óneitanlega pínulítið í taugarnar á mér þegar Íslendingar dæsa og stynja af aðdáun á útlensku náttúrufari. Bakþankar 28. maí 2011 07:00
Skammaryrðið stelpa Fyrir löngu sætti ég mig við það að fyrir mörgum eru íþróttir og karlmennska tengd órjúfanlegum böndum. Ég hef nefnilega fylgst með fótbolta frá því að ég var lítil. Allt frá þeim tíma hef ég þurft að glíma við þá skoðun að íþróttir séu fyrir karla, sérstaklega fótbolti. Þegar ég var sex ára og fór með pabba á völlinn var ég ekki spurð að því hver væri bestur í liðinu – heldur hver væri sætastur. Þó að við pabbi reyndum í sameiningu að koma fólki í skilning um að ég hefði vit á þessu til jafns við önnur börn gekk það ekki alltaf. Bakþankar 27. maí 2011 08:00
Verk í vinnslu Ákveðinn hóp fólks mætti kalla forfallna dyttara. Þá sem dunda við að dytta að einhverju öllum stundum og fellur aldrei verk úr hendi. Bakþankar 26. maí 2011 07:00
Hver sængaði hjá hverjum? Tvö nöfn eru á allra vörum í Bretlandi um þessar mundir; annars vegar nafn heimsfrægs bresks leikara sem hélt framhjá eiginkonu sinni með sömu vændiskonu og sögð er hafa þjónustað Wayne Rooney; hins vegar nafn fótboltahetju sem hélt framhjá konu sinni með þátttakanda úr Big Brother raunveruleikaþættinum. En hverjar eru þessar breysku stjörnur? Bakþankar 25. maí 2011 06:00
Fréttir úr sortanum Ógæfu Íslands verður allt að vopni, æpti ég upp yfir mig í gær þegar ég horfði á fréttir úr sortanum á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni. „Fyrst hrunið með tilheyrandi kaupmáttarrýrnun, Bakþankar 24. maí 2011 06:00
Réttlæti siðaðra þjóða Undanfarnar vikur hefur athygli heimsbyggðarinnar beinst að Úganda, litlu ríki í Austur-Afríku sem miðað við smæð hefur verið furðu oft í fréttum frá því ég komst til vits á ára. Bakþankar 23. maí 2011 11:00
Hinn hreini tónn Vídalín og Laxness voru í Hörpu um helgina. Oft hef ég ekið framhjá þessum glerkletti, hugsað um sögu byggingarinnar og glímt við andstæðar kenndir hrifningar og harms. Ég gekk svo með elskunni minni yfir fallega trébrú og á Hörputorg. Fólksmergðin var eins og á þjóðhátíð. Litir og form glerhnullunganna heilluðu. Forskálinn, almenningurinn, kom á óvart vegna stærðar. Bakþankar 17. maí 2011 00:00
Varnagli á pung Ég er því fegin að eldast. Ég geri ekki lítið úr fórnunum; tannskemmd sem ég kom auga á um daginn og hef ekki enn tímt að láta gera við (ég veit þetta hljómar ekki smart), afar sérstakt útlit þegar ég vakna á morgnana og lít í spegil, nokkrar tegundir af lyfjum (sem ég man aldrei hvort ég er búin að taka eða ekki því minnisleysi er líka farið að gera vart við sig). Bakþankar 16. maí 2011 09:30
Húsið okkar hún Harpa Ég var ein af þeim sem áttu ekki til orð yfir öllum þeim milljörðum sem kostnaður við byggingu Hörpunnar fór fram úr áætlun. Fussaði og sveiaði yfir bruðli og flottræfilshætti og fór í fýlu í hvert sinn sem ég keyrði framhjá byggingarsvæðinu við höfnina. „Réttast hefði verið að jafna kumbaldann við jörðu," tautaði ég með sjálfri mér. Gegnum árin hef ég ekki verið tíður gestur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og einungis nokkrum sinnum farið í Óperuna, þá í ódýrustu sæti uppi undir rjáfri. Bakþankar 12. maí 2011 06:00
"Cheated by Iceland" Gljáfægðir liðu búðargluggarnir hjá, fullir af handgerðu súkkulaði og hátískufatnaði. Fyrirhafnarlaus fegurð geislaði af farðalitlum andlitum Parísar-skvísanna. Eftir bökkum Signu stikuðu franskir herramenn svo ábúðarfullir á svip að um huga þeirra hlutu að fara hugsanir samboðnar Descartes þótt umbúðirnar jöfnuðust á við Olivier Martinez. Þar sem ég sat í aftursæti leigubíls sem ók mér frá aðallestarstöð Parísarborgar á hótelið sem ég hugðist dvelja á eina helgi hríslaðist um mig eftirvænting sem aðeins yfirvofandi „croissant"-át og biðin eftir kampavíni geta framkallað. Ekkert gat raskað fullkomleika helgarinnar sem fram undan var. Eða næstum ekkert. Bakþankar 11. maí 2011 07:00
Tandurhrein blekking Á dögunum sótti ég námskeið ásamt norrænum kollegum mínum í New York. Meðal staða sem við heimsóttum í ferðinni var Scandinavian House, stofnun sem vinnur að framgangi norrænnar menningar vestra. Bakþankar 10. maí 2011 07:00
Glötuð æska Körfuboltamaðurinn Derrick Rose var í vikunni valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar. Rose er yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að hljóta þennan heiður, en hann er aðeins 22 ára gamall – fæddur í oktbóber árið 1988. Bakþankar 7. maí 2011 08:00
Geðdeild Akureyrar aðeins með 10 pláss á legudeild fyrir sjúklinga með alvarlegan geðrænan vanda Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun
Stefnubreyting Miðflokksins gegn hagsmunum bænda Þórarinn Ingi Pétursson,Þuríður Lillý Sigurðardóttir,Jóhann Friðrik Friðriksson,Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson,Stefán Vagn Stefánsson,Halla Signý Kristjánsdóttir Skoðun
Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun