Dvergflóðhestur í baði

Dvergflóðhestakálfur sem nýverið fæddist í Berlínardýragarði var í fyrsta sinn baðaður í vikunni. Dvergflóðhestar verja ekki jafn miklum tíma í vatni og stóru frændur þeirra en þurfa samt sem áður að baða sig inn á milli til að viðhalda raka í viðkvæmri húðinni. Kálfurinn stækkar og dafnar og er orðinn tíu kíló. Hann er þó fjarri þeim tvö hundruð kílóum sem fullorðnir dvergflóðhestar vega. Tegundin er í útrýmingarhættu en um 2.500 dýr lifa villt í Vestur Afríku.

47
00:55

Vinsælt í flokknum Fréttir