Hjólað í Hafró - ábyrgðarlaus stofnun Björn Ólafsson skrifar 4. nóvember 2026 17:02 Hafrannsóknarstofnun, Hafró, svarar gagnrýni sárasjaldan. En ákvað að svara að hluta gagnrýni minni fyrir síðustu loðnuvertíð, sem var mér í senn gleðiefni og mikil vonbrigði. Af öllu því sem ég gagnrýni í starfsemi Hafró, svara tveir sviðsstjórar mér þeim hluta sem snýr að mikilvægi loðnu í vistkerfinu, mikilvægasta fiskstofninum í vistkerfi N-Atlantshafsins. Ágreiningurinn snýst ekki aðeins um hvort tekist hafi að byggja upp þorskstofn þrátt fyrir loðnuveiðar. Hann snýst um hvort núverandi veiðiráðgjöf taki nægilegt mið af mikilvægi loðnunnar fyrir vöxt, ástand og nýliðun þorsks og fleiri nytjastofna, þegar loðnustofninn er veikur. Frá Hafró: ” Þann 29. desember 2025 birtist grein á vef visir.is eftir Björn Ólafsson Þar eru ýmsar fullyrðingar settar fram, meðal annars um samspil loðnuveiða og þróun stofnstærðar hjá þorskstofnum í Norður Atlantshafi. Hafrannsóknastofnun fagnar umfjöllun um svona mikilvæg mál sem tengjast meðal annars forsendum sjálfbærrar fiskveiðistjórnunar. Helstu fullyrðingarnar má umorða yfir í eftirtaldar tvær rannsóknaspurningar: (1) Eru veiðar á loðnu að hafa afgerandi áhrif á þróun þorskstofna? (2) Er loðna ofveidd og veiðar að hafa áhrif á stærð annarra nytjastofna?” Svar: “ …….Að framansögðu er ekki hægt að sjá að loðnuveiðar sem slíkar séu að hafa afgerandi áhrif á þróun stofnstærð íslenska þorskstofnsins. Sama má álykta fyrir Barentshaf og Nýfundnalandsmið………… Einnig er ljóst að tekist hefur að byggja upp þorskstofnana við Ísland og í Barentshafi þrátt fyrir umtalsverðar loðnuveiðar . Þá er einnig ljóst að neikvæð þróun stofnstærðar þorsks hafði ekkert beint með loðnuveiðar að gera á Nýfundnalandsmiðum (~1960-1978 og eftir 1990) og í Barentshafi (eftir 2013) .Guðmundur J. Óskarsson og Jónas P. Jónasson skrifa 22. janúar 2026 13:46” Án loðnu; hrun. Í einfaldaðri mynd, má líkja loðnunni við áburð hjá kúabónda. Hann gæti notað minni áburð á túnin, og fengði „kraftminna“ hey. Afleiðingin yrði að kýrnar mjólkuðu minna, jafnvel þó þær ætu meira hey. Þær legðu líklega af líka. Fái þorskurinn ekki næga loðnu, kraftmikla fæðu, þá þroskast hann verr að öllu leyti. Getan til æxlunar minnkar, stærðin minnkar, hann léttist, kynþroska seinkar, sleppir jafnvel hrygningu og náttúrulegur dauði eykst. Þetta skeður þó hann reyni að bæta sér upp fæðuskortinn, með þvi að éta annað sem hann kemst í, þar á meðal eigin stofn, sjálfrán. Hann nær ekki að ná í sömu orkuna og loðnan gefur honum. Samkvæmt stofnstærðarmati frá Hafró, þá er eintalt að reikna út hvað stofninn væri stór (þungur), hefði þorskurinn haldið þeirri þyngd sem hann var í áður: Miðað við 4ja ára fisk og eldri, væri stofninn um 203.000 – tvöhundruð og þrúþúsund tonnum þyngri. Ekkert tillit tekið til samspil fiskistofna. Samkvæmt svari Hafró, hafa loðnuveiðar ekki „afgerandi“ áhrif á stofnstærð þorsks. Við höfum veitt vel yfir 30.000.000 – þrjátíu milljón tonn af loðnu. Reyndar hefði það magn margfaldast í hundruðir milljóna tonna yfir tímabilið. Ég fullyrði að í veiðiráðgjöf Hafró, er hvorki skoðað né gert ráð fyrir þeim miklu áhrifum sem loðnan, dauð eða lifandi, hefur með orkuflutningum sínum í vistkerfið. Veiðiráðgjöfin hefur byggst upp á „eins stofna fræðum“, þar sem kvóti er gefinn út fyrir eina tegund, óháð áhrifum á vistkerfið. Rannsóknir eru að leiða betur og betur í ljós hversu nauðsynlegt er að nálgast veiðiráðgjöf með allt vistkerfið í huga. Nú er borðleggjandi að loðnustofninn hefur verið á undanhaldi. Hafró meinar að umhverfisbreytingar, hafi haft mestu áhrif á þróun stofnsins. Ég gef mér að það sé rétt, en stofninn er löngu kominn niður fyrir þau mörk að hann þoli veiðar. Ársafli var að meðaltali tæp 1,1 milljón tonna 1992-2002, síðast liðin 10 ár er meðalaflinn hruninn í 190 þúsund tonn á ári, eða innan við 20% af því sem áður var. Þetta hefur gerst þrátt fyrir miklar tækniframfarir, sem bæði hafa nýst við leit og veiðar á loðnu. Frá árinu 1983 varð aldrei loðnubrestur fyrr en árið 2019, aftur 2020 og enn aftur 2024. Þetta merkir að Hafró taldi stofninn of lítinn til að þola veiðar; tæpt stendur hann. Ef við skoðum svo hvernig Hafró reiknar út sína ráðgjöf, rennir hún enn frekar stoðum undir þessa fullyrðingu mína. Hafró gefur sér það vald „að reikna út“ hvað er nauðsynlegt að afræningjar(fiskar, hvalir, fuglar, krabbadýr...) þurfa að loðnu. Gefur svo út veiði kvóta og passar „ að skilja eftir að lágmarki 114 þúsund tonn til hrygningar með 95 % líkum.En samkvæmt vísindunum á það magn nægja svo loðnan gefi af sér viðunandi stofn. Loðnustofninn berst í bökkum . Að segja að veiðar hafa ekki afgerandi áhrif á þorskstofninn, gengur ekki upp þegar loðnustofninn er í svo lélegu standi. Það er mikill munur á því sem Hafró segir að sé „næg loðna“ og það sem sagan segir okkur. Ef næg loðna hefði verið fyrir hendi, hefði þorskstofninn ekki misst yfir 200 þús tonn af vigt og nýliðun í stofninum verið mun betri. Það eru staðreyndir, rannsóknir í Barentshafi sýna beina fylgni milli magns loðnu og nýliðunar þorsks, rétt eins og lesa má í skýrslum Hafró. Á árunum 1986-88 hrinur nýliðun þorsks niður, eða á því tímabili sem verið var að veiða um 1-1,4 milljónir tonna af loðnu árlega. Nýliðun þorsks hefur síðan ekki náð sér almennilega á strik aftur. Sjófugli hefur fækkað um allt að rúm 30%, vegna skorts á æti, sem má m.a. rekja til skorts á loðnu. Ef loðnustofninn væri í jafn góðu ástandi og fyrir nokkrum áratugum, þegar hann taldi milljónir tonna, væri hægt að halda fram að veiðar hafi ekki merkjanlega áhrif á viðgang þorskstofnsins. EN það er ekki staðan í dag. Í tækniskýrslu Hafró frá 2026 um veiðiráðgjöf er eftirfarandi sett fram: “Nýliðun þorsks er beint tengd við aðgengi loðnu (fæðu) og aðrar umhverfisástandi. Árgangar frá 2021 og 2022 hafa verið undir meðaltali, og að 2019–2021 hafi verið hægvaxta árgangar vegna minni stofnstærð loðnu. Þessar breytingar hafa haft áhrif á stærð viðmiðunarstofns og því ráðgjöf.” Þessi lýsing vekur spurningu um hvernig Hafró samræmir mikilvægi loðnuframboðs fyrir þorsk við niðurstöðu sína um að loðnuveiðar hafi ekki afgerandi áhrif á stofnstærð hans. Hjálmar Vilhjálmsson ,heitinn, einn guðföður loðnurannsókna og vistfræðirannsókna hjá Hafró, og mikils metinn fræðimaður, sagði; „ Ef fram kemur stór þorskstofn verður að minnka loðnuveiðar“. Sem sýnir að hann gerði sér vel grein fyrir mikilvægi loðnunnar fyrir þorskinn. Hann marg ítrekaði mikilvægi loðnunnar og varfærni við veiðar hennar. Á vefsíðu Hafró má finna eftirfarandi: „Sýnt hefur verið fram á að vöxtur þorsksins er háður stærð loðnustofnsins á hverjum tíma. Meðalþyngd fjögurra til sex ára þorsks er allt að 25% minni þegar loðnustofninn er í lægð miðað við ástandið þegar loðnustofninn er stór.“ Hér er því ekki aðeins rætt um fjölda þorska, heldur einnig þyngd þeirra við tiltekinn aldur. Þessi samanburður styður mikilvægi loðnunnar fyrir vöxt þorsks. Hafró segir að tekist hafi að byggja upp þorskstofninn hér þrátt fyrir loðnuveiðar. Ef miðað er við afrakstur stofnsins, nýliðun, lélegt ástand hans og veiðiráðgjöf á niður leið, stenst sú fullyrðing ekki skoðun. Stofninn hefur þrátt fyrir stóra hrygningarstofna ekkert bætt við framleiðni sína. Hrygningarstofninn 1976, sem talin var 146 þús tonn, gaf 3x meiri nýliðun en hrygningarstofn upp á yfir 400 þús tonn árið 2019. Afhverju? Þessu hefur Hafró aldrei getað/viljað svara. Á Breska vefmiðlinum IntraFish (heimild 1) sem fjallar um sjávarútveg, má sjá fréttir um að ekki sé að vænta þess að þorskstofninn taki við sér á næstu árum. Ástæðan sé lélegir þorskárgangar og slæmt ástand á loðnustofninum. Eitthvað sem Hafró er ekki beint að flagga hér heima. Barentshaf (BH) og Nýfundalandsmið.(NL) Það eru til fjölmargar rannsóknir um ástandið á báðum þessum miðum. Staðan í BH er sú að ekki var gefinn út loðnukvóti fyrir þetta ár og ekki verður gefin út kvóti fyrir 2027. Staðan á loðnustofninum er mjög slæm þar. Þorskkvótinn fyrir þetta ár er sá lægsti síðan 1991, eða 285 þús tonn. Nýliðun hefur verið undir sögulegu lágmarki frá 2014 og hrygningarstofn þorsks ekki minni en síðan 2000. Þróun þorskstofnsins í Barentshafi á tímabilinu 2010–2025 vekur spurningar um tengsl hans við loðnuna. Þorskstofninn er nú lítill, ástand hans lélegt sem og nýliðun. Þorskkvótinn hefur lækkað um tæp 70% frá árinu 2013, þegar hann var hvað mestur. Rannsóknir sýna að loðnuveiðar í Barentshafi hafa haft bein og slæm áhrif á bæði magn loðnu og framleiðni þorskstofnsins. Veiðarnar á milli 1970 -1980 fóru í 2-3 milljónir tonna á ári. Þessi ofveiði hefur síðan haft varanleg áhrif á vistkerfið þar. Sambandið á milli loðnunnar og þorsksins í BH, er eitt best rannsakaða dæmi í heiminum um hvernig ofveiði á loðnu, getur skemmt heilt vistkerfi. Þó reynt sé að stjórna loðnuveiðunum af meiri ábyrgð, hefur enn ekki tekist að minnka þær miklu sveiflur sem verða á loðnustofninum, og þar með afkomu þorsksins. Því minni sem loðnustofn er, því meiri geta sveiflurnar orðið. Svo hart var gengið að loðnustofninum, að það vantar mikið upp á loðnumagnið sem var, og veitti stofninum sveigjanleika til að taka á áföllum vegna umhverfisbreytinga. Stefið er kunnulegt, en Hafró virðist vera ásömu vegferð með loðnu-og þorskstofnana hér við Ísland. Rannsóknir sýna, að vistfræðitengingin er staðreynd; ár með lélega loðnuárganga gefa nánast alltaf lélega þorskárganga. Nýfundlandsmið, dæmi um algjört hrun. NL eiga sér merka sögu sem ein gjöfulustu þorskveiðimið heimsins. Sögur um að hægt hafi verið að veiða þar þorsk í körfur eru vel skráðar. Þorskaflinn fór yfir 800 þús tonn 1968, og var lengi mjög mikill. Loðnustofninn á þessum miðum var talinn vera amk um 6 milljónir tonna, en veiðar á loðnu voru aldrei miklar, mest um 200 þús tonn. Þorskstofninn hrundi algjörlega um 1990/91. Ástæðan var talin ofveiði en ekki síður það mikla kuldaskeið sem gekk yfir svæðið. Það var til þess að loðnustofninn hrundi nánast á mettíma, þar sem nýliðun brást alfarið, og hrun þorskstofnsins fylgi í kjölfarið. Mjög illa hefur gengið að byggja þessa stofna upp. Þorskveiðin á NL hefur verið rétt fyrir heimamenn til að veiða í soðið. Nú, um 35 árum frá huninu, er þorskstofninn loks aðeins að rétta úr sér, en kvótinn í ár var 56 þús tonn, sem er tvöföldun frá 2025. Nýleg rannsókn bendir til þess að þorskstofnarnir við Nýfundnaland og í Barentshafi séu líffræðilega líkir, en að munurinn á þróun þeirra tengist vistkerfunum sem þeir tilheyra. Sú niðurstaða gefur tilefni til að spyrja hvort þorskstofninn við Nýfundnaland gæti náð sér betur á strik ef nægt framboð væri af loðnu; þó hún sé ekki trygging fyrir slíkum bata. Kanadíski fiskifræðingurinn Rebecca Schijns hjá Oceana Canada orðar mikilvægi loðnunnar þannig: „The choice is clear: restore capelin, or risk losing cod for good,” Um stöðuna á þorskstofninum við NL kemur fram í nýlegri rannsókn, (heimild 3): „Þorskur á norðurslóðum, sem er eitt helsta rándýr loðnunnar, er enn í lágmarki og á í erfiðleikum með að ná sér á strik. Þótt óvissa ríki í nýja matslíkaninu er þróunin skýr: þorskstofnarnir halda áfram að standa í stað eða minnka, að hluta til vegna skorts á helstu fæðu þeirra, loðnunni.“ Lokaorð. Svörin frá Hafró, eru í engu samræmi við helstu niðurstöður fjölda rannsókna, né við stöðu þorsk-og loðnustofna í N-Atlantshafi. Þvert á móti, eru umræddir stofnar allir í mikilli lægð. Á meðan svo er, hafa veiðar stórfelld áhrif á viðkomu þorsks og annarra nytjastofna sem stóla á loðnu sem fæðu. Hafró er á vegferð sem er alls ekki í þágu eigenda auðlindanna. Það er ekki hlutverk Hafró að útdeila auðlindum til sjávarútvegsfyrirtækja, eða sjá til þess „að þau fái sinn skammt af loðnu“ óháð ástand stofnsins. Nytjastofnar hafa hrunið á vakt Hafró; það er staðreynd sem stofnunin getur ekki flúið. Þessum hættulega „leik“ Hafró með afkomu loðnunnar og þorsksins að veði, verður að ljúka. Það er engin stemming fyrir að hér endurtaki sagan við Nýfundnaland sig. Loðnuveiðibann um tíma er nauðsyn. Það er dýrmætum nytjastofnum okkar fyrir langbestu, og efnahagslega nauðsynlegt. Höfundur er útgerðartæknir, fyrrverandi sjómaður, framleiðslustjóri. 1.No quick rebound in sight for Iceland's cod stock 2.About - Navigator Magazine 3.Frontiers | Comparative Modeling of Cod-Capelin Dynamics in the Newfoundland-Labrador Shelves and Barents Sea Ecosystems 4.Advice on fishing opportunities for Northeast Arctic cod in 2026 in ICES subareas 1 and 2 | Institute of Marine Research 5.The Barents Sea cod change spawning location, becomes smaller, and may struggle to survive their first winter. - CEES - Centre for Ecological and Evolutionary Synthesis 6.Climate change threatens fish stocks in the north: Halved since 2013 7.The Abrupt and Persistent Decline in Recruitment Success in Northeast Arctic Cod: A Review of Probable Causes - Johannesen - 2026 - Fish and Fisheries - Wiley Online Library 8.Marine Researcher on the Decline in the Cod Population: “Not One Sole Cause” 9.Capelin: The Keystone Forage Fish of Northern Oceans - ScienceInsights 10.Extending the Northern Cod (Gadus morhua) assessment model - part II : quantifying the impact of Capelin and Seals - Federal Open Science Repository of Canada 11.Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn - Vísir 12.Loðnuveiðar og stærð þorskstofna - Vísir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson Skoðun Skoðun Skoðun Hjólað í Hafró - ábyrgðarlaus stofnun Björn Ólafsson skrifar Skoðun Fiskeldi – best heppnaða byggðaaðgerð Íslands Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir,Wendill Galan Viejo skrifar Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun