Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar 3. nóvember 2026 13:02 Áform ríkisstjórnarinnar um náttúru- og innviðagjald við Þingvelli, Geysi og Gullfoss hafa verið nefnd Bláskógaskatturinn. Þó gjaldtakan sé bundin við þessa þrjá staði munu áhrif hennar ekki einskorðast við sveitarfélagamörk Bláskógabyggðar. Samhliða boðaðri hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum munu þessar álögur hafa áhrif á atvinnulíf víða á Suðurlandi. Málið snýst um störf, fjárfestingu og framtíð samfélaga sem hafa byggst upp í kringum ferðaþjónustuna. Byggðastefna í verki Lengi vel fóru margir ferðamenn Gullna hringinn í dagsferð frá Reykjavík og sneru þangað aftur til að borða og gista. Dugmikið fólk, sem hafði kjark til að fjárfesta og skapa störf, hefur breytt þessu mynstri. Með uppbyggingu afþreyingar, veitingaþjónustu og gistiaðstöðu hafa skapast fleiri ástæður til að staldra við. Ávinningurinn nær langt út fyrir einstök fyrirtæki. Lengri dvöl gesta styður við fjölbreyttari þjónustu, fjárfestingu og atvinnuuppbyggingu. Þannig skapast tækifæri fyrir fleiri fjölskyldur til að sjá framtíð sína á svæðinu. Þetta er byggðastefna í verki og að mínu mati einhver hagkvæmasta byggðastefna sem stjórnvöld geta stutt. Áhrifin ná víðar Í Árborg sjáum við hvernig ferðaþjónusta styrkir samfélagið. Uppbygging hennar hefur átt þátt í að skapa forsendur fyrir nýjum miðbæ á Selfossi. Veitingastaðir, verslanir og þjónusta laða að gesti og auka um leið lífsgæði heimamanna. Hækkun ferðakostnaðar getur leitt til breyttra ferðaáætlana eða minni útgjalda til gistingar, veitinga og afþreyingar. Tekjuáætlun ríkissjóðs ein og sér segir því ekki alla söguna. Sækjum fram Árlegur fjöldi erlendra ferðamanna hafði árið 2025 enn ekki náð sömu hæðum og yfir met árið 2018. Áframhaldandi fjölgun er því ekki sjálfgefin. Tækifærin felast meðal annars í lengri dvöl. Samkvæmt útreikningum Samtaka ferðaþjónustunnar gæti það skilað sex til sjö milljörðum króna í auknar skatttekjur ef 30% ferðamanna dveldu einni nótt lengur. Sóknarfærin felast í því að skapa ferðamönnum ástæður til að dvelja lengur, fremur en að einblína á að afla aukinna tekna með skattahækkunum. Þingmenn standi saman Gjaldtaka við Gullna hringinn er ekki aðeins hagsmunamál þeirra fyrirtækja sem starfa á svæðinu, heldur snertir hún fyrirtæki og sveitarfélög á Suðurlandi öllu. Ferðaþjónustan er enda samofin atvinnulífi svæðisins og því geta áhrif aukinna álaga teygt anga sína langt út fyrir fyrirtækin sem bera þær beint. Ég skora á þingmenn Suðurkjördæmis að standa saman, þvert á flokka, og stöðva framgang þessara áforma þar til óháð og heildstætt áhrifamat liggur fyrir. Meta þarf samanlagðar afleiðingar fyrir heimili, fyrirtæki, störf og fjárhag sveitarfélaga á Suðurlandi. Höfundur er formaður bæjarráðs Árborgar og stjórnarmaður í Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Árborg Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun