Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar og Miðborgar og Hlíða skrifa 2. nóvember 2026 14:18 Í kosningabaráttunni fyrir nýliðnar borgarstjórnarkosningar kepptust flokkarnir um hylli borgarbúa og lofuðu ýmsu fögru. Við heyrðum frambjóðendur ýmissa flokka tala um mikilvægi þess að borgin sé aðgengileg foreldrum og börnum og að gerðar verði jákvæðar breytingar í samgöngumálum, ,,líf borgaranna[þurfi]að verða auðveldara, hversdagurinn einfaldari og borgin skilvirkari”, svo við vitnum í Hildi Björnsdóttur borgarstjóra. Umferðin var líka áberandi málaflokkur í kosningabaráttunni og gripu margir flokkar til þess ráðs að auglýsa stefnu sína gegn umferðarþunga í Reykjavík aftan á strætóum borgarinnar. Ef markmiðið er að minnka umferð á götum borgarinnar, þá er rökréttast að hvetja borgarbúa enn frekar til að nýta sér almenningssamgöngur í stað þess að gera þeim það erfiðara fyrir, ekki satt? Í ljósi alls þessa kom það okkur óneitanlega í opna skjöldu þegar borgarráð samþykkti þann 25. júní tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að afturkalla gjaldfrjálsan strætó fyrir grunnskólabörn. Sú breyting var lögð til og samþykkt af fyrri borgarstjórn og tók gildi 4. maí, sem sagt mánuði áður en hún var afturkölluð. Við í Ungmennaráði Miðborgar, Vesturbæjar og Hlíða fögnuðum gjaldfrelsinu líkt og önnur ungmenni og fannst það vera skref í áttina að barnvænni og sjálfbærari borg þar sem ungmenni ættu greiðari aðgang að frístunda- og félagsstarfi óháð efnahag. Ungmennaráð borgarinnar og Reykjavíkurráð ungmenna hafa nefnilega lengi barist fyrir því að börn hljóti gjaldfrelsi í strætó, m.a. með því að leggja fram tillögur þess efnis á fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs. Það er nú þegar dýrt að hafa börn í tómstundum en gjaldskylda barna í strætó gerir þeim foreldrum sem hafa minnst á milli handanna enn erfiðara fyrir að koma börnunum sínum í tómstundir og annað félagsstarf. Nýlega lögðu fulltrúar meirihlutans í forsætisnefnd borgarinnar svo til að fækka áheyrnarfulltrúum í skóla- og frístundaráði og halda einungis þeim áheyrnarfulltrúum sem rætt er um í lögum. Hefði breytingin farið í gegn hefðu fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna annars vegar og stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva hins vegar verið fjarlægðir úr ráðinu. Þar með hefðum við, og fagfólk í þessum geira, misst rödd okkar innan þess ráðs sem tekur ákvarðanir sem bitna hvað mest á ungmennum. Þessi niðurskurður átti einungis að spara borginni eina og hálfa milljón á ári. Fórna átti mikilvægum vettvangi fyrir raddir ungmenna fyrir eina og hálfa milljón á ári. Sem betur fer gekk þessi breyting ekki í gegn, að miklu leyti vegna þrýstings frá Reykjavíkurráði ungmenna, en hún er samt dæmi um hversu auðveldlega er hægt að skerða þau tækifæri sem við höfum til að taka þátt í þessu lýðræði. En þetta eru ekki einu dæmin um niðurskurði, eða áform um slíka, hjá borginni sem bitna á börnum og ungmennum. Annað sparnaðarráð þeirra var að leggja niður Tjörnina, frístundamiðstöðina sem hélt utan um starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum, ásamt Brúnni, Kringlumýri og Miðbergi, sem sinntu svipuðu hlutverki í öðrum hverfum. Þessum breytingum mótmælti starfsfólk félagsmiðstöðva og annað fagfólk, sem lýsti því að þær væru illa ígrundaðar og að þeim fylgdi mikil óvissa. Við vitum í raun enn ekki hvaða áhrif þetta mun hafa á starf frístundaheimila og félagsmiðstöðva til lengri tíma en hingað til hafa breytingarnar ekki verið jákvæðar. Þetta veldur okkur miklum áhyggjum, sérstaklega í ljósi þess að þetta var ekki ákveðið í samráði við þau sem þessar aðgerðir bitna á. Þetta virðist vera rauði þráðurinn í aðgerðum borgarstjórnar undanfarið: hagsmunir og skoðanir íbúa, og þá sérstaklega barna og ungmenna, vega minna en fjármunirnir sem má spara með því að skerða þjónustu við þá. Við upplifum það að núverandi borgarstjórn sýni virðingarleysi gagnvart skoðunum ungmenna og þeim málefnum sem skipta okkur máli. Við óttumst einnig að ofantaldar aðgerðir geti dregið úr lýðræðisþátttöku ungmenna, enda er enginn tilgangur með því að tjá skoðanir sem hljóta hvorki rými né virðingu. Við þekkjum það sjálf hversu eflandi það er að fá vettvang til þess að tjá okkar skoðanir og fræðast um lýðræði, og þykir því einstaklega mikilvægt að borgin gæti þess að þær ákvarðanir sem varða ungmenni borgarinnar séu teknar í samráði við okkur. Við erum íbúar þessarar borgar og eigum sama rétt og samborgarar okkar á því að taka þátt í mótun hennar, þó við eigum ekki fulltrúa í borgarstjórn. Raddir ungmenna eru dýrmætar og það er ekki nóg að fagna þeim, heldur er nauðsynlegt að það sé líka tekið mark á okkur og að okkar skoðanir skili sér í aðgerðum borgarinnar. Höfundar eru öll fulltrúar í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða. Nína Marín Andradóttir, Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Ragnheiður “Robin” Andrésdóttir, Ísgerður Esja Nóadóttir, Elísabet Ösp Einarsdóttir, Stína Signý Sverrisdóttir, Þorsteinn Flóki Einarsson, Kolbeinn Sindri Kárason, Djovane Andrade Rocha, Rakel Jóhannesdóttir, Gerður Helgadóttir, María Karítas, Steinunn Katla Bjarkadóttir,Maríanna Stephensdóttir Roberts og Magnús Sigurður Jónsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar