Lífið

Á­hrifa­valdur lést í mótorhjólaslysi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Áhrifavaldurinn Liam Fitzgerald lést í mótorhjólaslysi á föstudag.
Áhrifavaldurinn Liam Fitzgerald lést í mótorhjólaslysi á föstudag. Instagram

Áhrifavaldurinn Liam Fitzgerald lést síðastliðinn föstudag eftir mótorhjólaslys, aðeins 29 ára gamall. Fitzgerald var bandarískur einkaþjálfari og boxari, með rúmlega milljón fylgjendur á Instagram. 

Hann fagnaði afmæli sínu 16. október síðastliðinn með bátsferð í Miami í Flórídafylki. Fitzgerald deildi reglulega myndum og myndböndum af sér á mótorhjólinu í bland við æfingamyndbönd. 

Fjöldi fólks hefur minnst hans með fallegum minningarorðum, þar á meðal kærastan hans, áhrifavaldurinn Jaime Lyn Ryn. 

„Þú varst ástin í lífi mínu, Liam. Ég fyrirgef þér allt og ég vona að þú hafir vitað hversu mikið þú varst elskaður. Ég var svo spennt fyrir lífinu sem við ætluðum að byggja upp saman, öllum minningunum sem við áttum eftir að skapa og öllum þeim ævintýrum sem voru fram undan,“ var meðal þess sem hún skrifaði en í dánartilkynningu frá fjölskyldu Fitzgeralds kom fram að hann hafi glímt við fíknisjúkdóm sem hafði oft og tíðum gert líf hans erfitt. 

„Við deilum þessu í von um að saga hans hvetji fólk sem þarf á því að halda að leita sér aðstoðar. Ef þú ert að heyja sambærilega baráttu mundu eftir styrknum innra með þér, talaðu við fólkið þitt og biddu um hjálp.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.