Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. október 2026 16:02 Andri Snær segir skýrslu Viðskiptaráðs uppfulla af villum. Andri Snær Magnason rithöfundur og umhverfisverndarsinni fer hörðum orðum um Viðskiptaráð og nýja skýrslu ráðsins þar sem lagt er til að að rammaáætlun verði lögð niður svo hægt verði að tvöfalda orkuframleiðslu. Hann segir skýrsluna uppfulla af rangfærslum og hvetur opinber fyrirtæki á borð við Landsvirkjun og Orkuveituna til að hætta að fela sig á bakvið ráðið sem hann líkir við hugmyndafræðilegan handrukkara.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein Andra Snæs á Vísi. Tilefnið er skýrsla Viðskiptaráðs undir yfirskriftinni: Kraftur í kortunum: leiðin að tvöföldun raforkuframleiðslu. Þar er lagt til að rammaáætlun verði lögð af og að raforkuframleiðsla verði rúmlega tvöfölduð fyrir 2040. Þá er birt kort af mögulegum virkjunarkostum út um allt land. „Þegar Viðskiptaráð skilar af sér skýrslu má bóka að viðfangsefnið sé að eyðileggja eitthvað sem er mikilvægt, fallegt og jafnvel heilagt og svo má líka bóka að skýrslan sé óvönduð og uppfull af villum. Þannig var olíuskýrslan, þannig var menningarskýrslan og nú vill Viðskiptaráð leggja niður Rammaáætlun með markmiði um að tvöfalda orkuframleiðslu á 15 árum,“ skrifar Andri Snær. Hann segir Viðskiptaráð birta kort með nánast öllum náttúruperlum Íslands, Torfajökulsvæði, Jökulsá á Fjöllum og Kverkfjöllum. Kortið umdeilda. „Skýrslan er svolítið fyndin vegna þess að þar segir að aðeins orkukostir yfir 600MW séu þess eðlis að þeir réttlæti aðkomu Alþingis. Vandinn er sá að ENGINN orkukostur á Íslandi er yfir 570MW. Virkjun Jökulsár á Fjöllum þar sem henni er veitt gegnum Arnardal út á austurland er langstærsti kosturinn, betur þekkt sem lokaáfangi LSD - er 570MW. Þetta er auðvitað kostulegt. Að setja 600MW í skýrslu sem viðmið þegar ENGINN 600 MW virkjunarkostur er til á Íslandi. Kannski er þetta villa. Kannski halda þau að Íslendingar séu safn af hálfvitum sem kunna ekki að telja. Kannski eru þeir bara eins og Láki Jarðálfur og finnst gaman að vera vondir. Ég skil ekki hvað þeim fyrirtækjum sem halda uppi Viðskiptaráði gengur til.“ Andri Snær segir ekki hægt að segja að framkvæmdasaga síðustu tuttugu ára gefi nokkurt tilefni til þess að opið veiðileyfi verði gefið á náttúru Íslands eins og hann orðar það. Kísilverið í Helguvík hafi orðið gjaldþrota með 22 milljarða tjóni, álverið í Helguvík verið tjón upp á tuttugu milljarða, Thorsil í Helguvík orðið gjaldþrota á þessu ári með hundruð milljóna tapi, Kísilverið á Bakka fært alla fjárfestingu lífeyrissjóða niður í núll og tapið nemi enn fleiri milljörðum. „Hvað kallar þá á þessa tvöföldun? Hvað kallar á alla þessa orku? Ég skil ekki hvernig opinber fyrirtæki eins og Landsvirkjun og Orkuveitan sé stætt á að lobbía gegn Alþingi. Ég hvet forsvarsmenn þessara fyrirtækja til að draga þennan ófögnuð til baka og manna þetta ráð af einhverri fagmennsku - já eða hreinlega mennsku. Það væri heiðarlegra að forstjórar stigu fram og hættu að fela sig bak við hugmyndafræðilega handrukkara. Að þeir lýstu yfir því formlega að ný skyldi hefja stórsókn í hernaðnum gegn landinu. Ef þeir gera það ekki verður að líta svo á að þetta sé stefna þeirra og hugmyndafræði.“
Orkumál Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sjá meira