Innlent

Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Ís­landi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Talið er að hópurinn hafi verið ráðinn til þess að fremja ofbeldisverk á Íslandi. Í nýrri löggæsluáætlun er fjallað um aukin umsvif skipulagðrar glæpastarfsemi á Íslandi. Vísbendingar séu um að glæpahóparnir séu að taka upp sambærilegar aðferðir og þekkjast í Evrópu, að greiða þriðja aðila fyrir að fremja afbrot.
Talið er að hópurinn hafi verið ráðinn til þess að fremja ofbeldisverk á Íslandi. Í nýrri löggæsluáætlun er fjallað um aukin umsvif skipulagðrar glæpastarfsemi á Íslandi. Vísbendingar séu um að glæpahóparnir séu að taka upp sambærilegar aðferðir og þekkjast í Evrópu, að greiða þriðja aðila fyrir að fremja afbrot. vísir/vilhelm

Fjögurra manna hópi var snúið við á Keflavíkurflugvelli og vísað úr landi vegna gruns um að fólkið hefði verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Einn úr hópnum var stuttu síðar handtekinn í Svíþjóð fyrir tilraun til manndráps.

Hópurinn var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli í fyrra og segir Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, að um hafi verið að ræða fjóra sænska ríkisborgara sem komu til Íslands með flugi frá þremur mismunandi löndum. 

Lögregla hafi komist á snoðir um að fólkið, sem er talið tengjast skipulögðum glæpasamtökum í Svíþjóð, hafi verið væntanlegt til landsins og í kjölfarið hafi verið sett af stað vinna hjá lögreglu og tollgæslu auk þess sem frekari upplýsinga var aflað erlendis frá. Eftir greiningarvinnu hafi verið ákveðið að stöðva einstaklingana í Keflavík við komu þeirra til landsins og brottvísa þeim með vísan til allsherjarreglu.

Grunur leikur á um að aðilar á Íslandi hafi ráðið hópinn til þess að fremja ofbeldisbrot hér á landi og greitt fyrir þjónustuna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þetta ekki eina tilvikið þar sem grunur leikur á um að greitt sé fyrir þjónustu erlendra skipulagðra glæpasamtaka í brotastarfsemi á Íslandi en slíkt hefur færst í aukana í öðrum Evrópuríkjum á síðustu árum.

Þaulskipulögð árás

Þann 10. júní í fyrra, eða innan við tveimur vikum eftir að fólkinu var vísað úr landi, var ungur karlmaður úr hópnum handtekinn eftir skotárás og tilraun til manndráps í Järfälla, úthverfi Stokkhólms. 

Í frétt sænska ríkisútvarpsins segir að málið hafi tengst gengjaátökum. Maðurinn var í nóvember dæmdur í sextán ára fangelsi og var árásin sögð hafa verið þaulskipulögð. Tvær ungar konur voru einnig dæmdar fyrir hlut sinn í málinu en þær voru ákærðar fyrir að hafa lokkað fórnarlambið á tiltekinn stað þar sem til stóð að taka viðkomandi af lífi.

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, gegndi formennsku í stýrihópnum sem vann nýja löggæsluáætlun. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, skipaði hópinn í febrúar síðastliðnum.Vilhelm

Í nýrri löggæsluáætlun er fjallað um umfang skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi. Þar segir að innlendum og erlendum brotahópum, sem einkennist af alþjóðlegum tengslum, hafi fjölgað hér á landi. Vísbendingar séu um að þeir séu að taka upp sambærilegar aðferðir og þekkjast víða annars staðar í Evrópu, að greiða þriðja aðila fyrir að beita ofbeldi og hagnýta viðkvæma hópa, þar á meðal börn. 

Í áætluninni segir að leggja þurfi aukna áherslu á áhættugreiningar á landamærum og farþegagreiningar ásamt því að efla samstarf löggæsluyfirvalda við önnur ríki og stofnanir. Þar beri sérstaklega að nefna Landamærastofnun Evrópu (Frontex), Europol, Eurojust svo og innlendar stofnanir á borð við Útlendingastofnun og tollgæslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×