Íslenski boltinn

Ólafur Ingi hættur með Blika

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ólafur Ingi Skúlason er ekki lengur þjálfari Breiðabliks.
Ólafur Ingi Skúlason er ekki lengur þjálfari Breiðabliks. Anton Brink/Vísir

Breiðablik hefur sagt Ólafi Inga Skúlasyni upp störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins í fótbolta. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Ólafur er hættur eftir ár í starfi.

Ólafur tók við liðinu af Halldóri Árnasyni í október 2025 og stýrði liðinu í Sambandsdeildinni síðasta vetur og í Bestu deild karla í sumar. Hann vann bikarmeistaratitil með Breiðabliki í sumar en árangurinn í deildinni var undir væntingum.

Halldóri Árnasyni var sagt upp sem þjálfara Breiðabliks undir lok tímabils í Bestu deild karla í fyrra og Ólafur Ingi tók við þegar Blikar undirbjuggu þátttöku sína í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Ólafur hætti sem þjálfari U21 árs landsliðs Íslands til að taka við Blikum síðasta haust og náði í fyrstu stig Kópavogsliðsins í Sambandsdeild. Blikar komust þó ekki áfram úr deildarkeppninni.

Breiðablik varð bikarmeistari undir stjórn Ólafs í sumar en árangur liðsins í deildinni var undir væntingum. Breiðablik hafnaði í fimmta sæti deildarinnar og lauk mótinu á 8-3 tapi fyrir KR síðustu helgi.

Jón Guðni Fjóluson, aðstoðarþjálfari Ólafs í Kópavogi, lætur einnig af störfum.

Yfirlýsing Breiðabliks

Ólafur Ingi Skúlason lætur af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla Breiðabliks.

Ólafur Ingi kom til starfa hjá Breiðablik í október 2025 og stýrði sínum fyrsta leik gegn Finnska liðinu KuPs í Sambandsdeildinni. Í leiknum náði liðið í sín fystu stig í deildakeppni í Evrópu. Undir stjórn Ólafs náði liðið í fimm stig í deildakeppninni sem var góður árangur. Á nýloknu keppnistímabili leiddi hann liðið til bikarmeistaratitils í annað skiptið í sögu félagsins og er það jafnframt fimmti titill meistaraflokks karla.

Á tíma sínum hjá félaginu hefur Ólafur lagt áherslu á að gefa ungum leikmönnum tækifæri í meistaraflokki og lagt sig allan fram um að leyfa þeim að þroskast sem leikmenn. Honum var umhugað um hagsmuni félagsins og átti í afar góður samstarfi við þá sem að félaginu standa.

Samhliða þessum breytingum lætur Jón Guðni Fjóluson, aðstoðarþjálfari liðsins, einnig af störfum.

Ólafur vill koma á framfæri þakklæti til félagsins og allra þeirra sem að starfi þess koma:

“Ég kveð Breiðablik sáttur og stoltur af þeim árangri sem við náðum saman. Ég skil við klúbbinn á frábærum stað og óska Breiðablik og öllum sem að liðinu standa velfarnaðar í framtíðinni."

Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Ólafi Inga og Jóni Guðna fyrir sín störf og óskar þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem taka við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×