Handbolti

Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð mögnuðum árangri með Gummersbach.
Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð mögnuðum árangri með Gummersbach. Getty/Ronny Hartmann

Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach unnu í kvöld eins marks sigur á Flensburg í þýsku Bundesligunni í handbolta.

Gummersbach vann 31-30 sigur en Flensburg byrjaði umferðina í efsta sæti við hlið Kiel. Þetta tap þýðir að liðið endar umferðina í þriðja sætinu.

Gummersbach hafði ekki unnið í tveimur síðustu deildarleikjum sínum en sigurinn kemur liðinu upp í níunda sæti deildarinnar með fjóra sigra og tvö jafntefli í fyrstu níu leikjunum.

Elliði Snær Viðarsson og Garðar Ingi Sindrason skoruðu báðir tvö mörk fyrir Gummersbach en Teitur Örn Einarsson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×