„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. október 2026 14:21 Fjöldi fólks hefur gagnrýnt tillögu meirihluta borgarstjórnar um að kanna hvort veta megi betri þjónustu með því að fækka útibúum Borgarbókasafnsins. Vísir/Vilhelm/Anton Brink/Aðsent Ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur um að kanna hvort megi veita sambærilega bókasafnsþjónustu með færri útibúum hefur vakið hörð viðbrögð. Fólk undrar sig á vangaveltum um niðurskurð á sama tíma og læsi barna hrakar. Ákvörðunin sé til marks um menningarlega uppgjöf og hnignun og ganga sumir svo langt að segja að borgarstjórn hatist við menningu.
Vísir greindi frá því í gær að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar hefðu lagt fram tillögu á fundi menningarráðs þann 21. október þess efnis að kannað yrði hvort mætti veita sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn. Afgreiðslu tillögunnar var hins vegar frestað og því hvorki búið að samþykkja hana né hafna. Í tillögunni er lagt til að fjöldi og staðsetning útibúa verði metin og skoða eigi sameiningar og samnýtingu húsnæðis, aðstöðu og starfsfólks með skólabókasöfnum. Markmiðið sé að ná fram hagræðingu án þess að skerða aðgengi að bókasafnsþjónustu. Tillöguflytjendur vilja bera saman rekstrar- og húsnæðiskostnað útibúa, aðsókn, útlán, opnunartíma og nýtingu húsnæðis. Sérstaklega verði reiknaður kostnaður á hvern gest og hvert útlán. Viðburðir og námskeið safnsins verði einnig tekin til skoðunar og kostnaður greindur við skipulagningu og framkvæmd, aðsókn og kostnað á hvern þátttakanda og metið hvort breyta eigi forgangsröðun. Blaðamaður Vísis ræddi fyrr í dag við Rúnar Frey Gíslason, formann menningarráðs, sem sagði hugmyndina að baki tillögunni vera að efla bókasöfnin. Meirihlutinn sé í sóknarhug þegar komi að skólakerfinu, lestri og læsi, vilji efla bókasöfnin og verja fjármunum þar sem þeir skipti mestu máli. „Við ætlum að kanna hvort hægt sé að nútímavæða söfnin og gera þau að alvöru aðdráttarafli, ekki síst fyrir börn og ungmenni,“ sagði hann. Taldi hann orðalagið um mögulega fækkun rekstrareininga hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum. Sameining rekstrareininga geti stundum haft góð áhrif á bæði þjónustu og aðgengi. „Það er ekkert í þessari tillögu sem segir að við ætlum að minnka þjónustuna, heldur þvert á móti ætlum við að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar. Það er ekki vanþörf á.“ „Nýja borgarstjórnin virðist hata menningu og mannúð“ Fregnirnar hafa vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum, sérstaklega meðal rithöfunda en einnig unnenda bóka og bókasafna. „Það er menningarleg uppgjöf og hnignun að loka bókasafni. Þau gegna veigamiklu hlutverki hér og á Norðurlöndum, það á síðan að vera metnaður að gæða þau lífi og nýju hlutverki,“ skrifar rithöfundurinn Andri Snær Magnason rithöfundur um tíðindin á Facebook. „Bókasöfn eru lífsgæði. Látið þau í friði,“ skrifar rithöfundurinn Kikka Sigurðardóttir við færsluna. Andri Snær segir áætlanir meirihlutans menningarlega uppgjöf.Vísir/Vilhelm Þröstur Helgason, útgefandi og ritstjóri Bændablaðsins, er orðlaus yfir vangaveltum borgarstjórnarinnar, birtir myndir af nýjum borgarbókasöfnum í Osló og Helsinki á Facebook og segir: „Í nágrannalöndum okkar líta höfuðborgirnar á bókasöfnin sem lykilstofnanir.“ „Menningarhatur íslensks stjórnmálafólks tekur á sig æ fjölbreyttari myndir og gengur þvert á flokka,“ skrifar hann. Þröstur Helgason. „Ég er ekki EIGINLEGA orðlaus. Ég er HREINLEGA orðlaus,“ skrifar rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir. „Ég ítreka: nýja borgarstjórnin virðist hata menningu og mannúð,“ skrifar Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur, gagnrýnandi og þýðandi. „Það er erfitt að ná utan um þetta, þetta er afhjúpandi fyrir eitthvað mjög skakkt,“ skrifar Halla Þórlaug Óskarsdóttir, rithöfundur og fyrrverandi verkefnastjóri á Borgarbókasafninu. Steinunn og Silja eru ekki par sáttar. „Ótrúlegt. Gæti skrifað margt og mikið en læt mér nægja að fnæsa ... í bili,“ skrifar Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður og poppfræðingur, um málið á Facebook. „Þetta er sama liðið og hrópar hæst þegar Pisa segir börn ekki kunna að lesa sér til gagns,“ skrifar Grímur Atlason, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri Geðhjálpar, við færsluna. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leikskáld segir nóg komið af niðurskurði borgarstjórnar: „Krumlurnar af bókasöfnunum nýfrjálshyggjufautar!“ Dýrasta borgin verði sú leiðinlegasta „Bókasöfnin líka?! Jæja, þá er það ákveðið: Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi. Skilja þau orðið „samfélag“? Hafa þau farið á bókasafn síðastliðin 10 ár? Þetta er síðasta þriðja rýmið! Eini staðurinn þar sem við erum öll velkomin án þess að þurfa að kaupa eitthvað,“ skrifaði Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, rithöfundur og tónlistarmaður, um tíðindin í Facebook-færslu í morgun. „Mikið verður þessi borg ömurleg eftir að þau hafa traðkað yfir hana á lakkskónum sínum. Við erum með dýrustu borgum í heimi og bráðum verður hún sú leiðinlegasta.“ Lóa Hlín segir borgarstjórnina ekki viðbjargandi.Vísir/Vilhelm „Við leyfum þessu ekki að gerast. Við þurfum að standa vörð um borgina okkar. Ég geri allt fyrir bókasöfnin,“ skrifaði rithöfundurinn Eva Rún Snorradóttir í ummælum við færsluna. „Ég skal hlekkja mig við bókasafn áður en ég leyfi þessu liði að breyta því í gróðatækifæri!“ skrifar Salka Guðmundsdóttir leikskáld og segjast bæði Lóa og Eva til í að taka þátt í slíkum gjörningi. „Áframhaldandi árás borgarstjórnar á menningu, listir og félagsþjónustu!! Þessi meirihluti er eyðileggingarafl sem þarf að stöðva. Þetta gerir mig brjálaða,“ skrifar Svanhvít Tryggvadóttir framleiðandi. Tónlistarmaðurinn Halldór Eldjárn hugsar í lausnum og hvetur fólk á bókasafnið: „Besta leiðin til að lækka kostnað per gest á bókasöfnin er að fjölga gestunum, þar sem kostnaðurinn er fastur. Allir á bókasafnið!“ Halldór Eldjárn Halldór Eldjárn tónlistarmaðurVísir/Anton Brink „Hvernig er hægt að reikna slíkt út?“ Borgarfulltrúar minnihlutans brugðust jafnframt margir við fregnunum og lýstu frati yfir áætlununum. Ekki sé hægt að reikna út kostnað við gesti bókasafna. „Hvert erum við komin þegar sérstaklega á að fara að skoða kostnað við hvern gest bókasafna?!?! Hvernig er hægt að reikna slíkt út?“ spyr Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í borginni. „Filistearnir láta ekki að sér hæða...“ segir Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins, um tíðindin á Facebook og vísar þar til fólks sem er andsnúið listum og menningu. Filisteunum mætti lýsa sem menningarsnauðum smáborgurum. Sanna og Stefán furða sig á áætlunum meirihlutans.Vísir/Anton Brink/Vilhelm „Börnin kunna og nenna ekki að lesa og þau eru að spá að fækka bókasöfnun? Og hvernig ætlar þú að skoða kostnað á gest? Bókasöfn eru notuð í svo margt annað en bara til að sækja bækur til láns. Eitt af fáu almenningsrýmum þar sem ekki þarf að taka upp veski. Og tölum ekki einu sinni um gildi bókasafna í inngildingu fyrir innflytjendur. Bjánaleg hugmynd allt í allt. Ef eitthvað mátti auka þess háttar almenningsrými,“ skrifar Maarit Kaipainen, umhverfisfræðingur og frumkvöðull við færslu Stefáns. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hæðist að plönum meirihlutans á Facebook, sér fyrir sér eitt risabókasafn í framtíðinni og veltir fyrir sé hvort eigi að skera næst niður í sundlaugunum. „Ég sé þetta alveg fyrir mér. Eitt risabókasafn fyrir alla Reykjavík, í glæsilegum turni við mislæg gatnamót þar sem nóg er af bílastæðum og engin leið að komast nema á bíl. Í risabókasafninu vinnur enginn og til að fá bók lánaða þarf að sækja sérstakt app. Kaffið fór auðvitað, því það dró bara að fólk sem fékk ekkert lánað og flestir sófarnir líka þar sem fólk sat of lengi í þeim. Barnadeildin er á sjöttu hæð og lyftan er biluð. Sögustundin er spiluð af upptöku í hátalara,“ skrifar Bjarnveig í færslu á Facebook. Birta býður sig fram í forprófkjöri.Sunna Ben Prjónaklúbburinn, Lego-klúbburinn og hrekkjavökuföndrið verði lagt niður því þau skili engum útlánum og bækur grisjaðar eftir útlánatölfræði, sem þýði að ljóðahillan verði ansi tómleg. „Ég fer óneitanlega að velta fyrir mér hvort sundlaugarnar verði næstar… Þar má eflaust reikna kostnað á hvern syntan metra og loka heitu pottunum fyrst, enda syndir þar enginn,“ bætir hún við. Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, leggur einnig orð í belg og hvetur fólk til að heimsækja bókasafnið til að láta „forheimskandi kapítalið“ ekki fækka litum mannlífsins. „Á þessum tímum, þegar mannfólkið rennir sér niður hlíðar forheimsku og ólæsis dettur stjórnmálafólki við völd í höfuðborginni í hug að lausnin að öflugra samfélagi sé að fækka tækifærum fólks til að leita sér fróðleiks, njóta samveru og stundar án stöðugs áreitis,“ skrifar Helga Vala á Facebook. Helga Vala hvetur fólk til að fara á bókasafnið.Vísir/Vilhelm „Þetta fólk vill fleiri Smáralindir, hoppiskopp og Ikea fyrir börnin en færri bókasöfn. Fyrir ykkur, sem viljið stuðla að velferð, hugarró, þekkingu og læsi mæli ég eindregið með að við tökum okkur nú til og heimsækjum bókasafnið okkar einu sinni í viku næstu mánuði. Þar er meðal annars hægt að leyfa börnum að leika sér í sérstöku leikhorni, setjast niður og glugga í bækur og tímarit, vinna myndbönd, fá sér kaffi, fá lánaðar bækur, listaverk og gamla DVD diska með myndum sem ekki er lengur hægt að finna á netinu og bara draga stuttlega andann í önnum dagsins. Látum ekki forheimskandi kapítalið fækka litum mannlífsins.“
Bókasöfn Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Vinstrið Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira