Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Birgir Olgeirsson skrifar 22. október 2026 13:50 Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir er framsögumaður velferðarnefndar um leigubremsuna. Dóttir hennar, Karen Áslaug Vignisdóttir, undirritar umsögn Seðlabankans þar sem varað er við að breytingarnar geti unnið gegn markmiðum sínum. Vísir Dóttir formanns velferðarnefndar er meðal undirritenda gagnrýninnar umsagnar Seðlabankans um leigubremsu ríkisstjórnarinnar. Bankinn varar við því að breytingarnar geti fækkað leiguíbúðum og dregið úr húsnæðisöryggi. Móðir hennar er framsögumaður nefndarinnar í málinu.
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika. Karen er dóttir Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur, þingmanns Flokks fólksins og formanns velferðarnefndar, samkvæmt æviágripi Kolbrúnar á Alþingisvefnum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður velferðarnefndar, hefur umsjón með meðferð leigubremsunnar í nefndinni. Frumvarpinu er ætlað að auka húsnæðisöryggi og fyrirsjáanleika fyrir leigjendur.Vísir/Anton Brink Kolbrún er jafnframt skráð framsögumaður nefndarinnar um frumvarpið og hefur því umsjón með meðferð þess þar. Frumvarpið er lagt fram af félags- og húsnæðismálaráðherra. Það á meðal annars að tryggja að minnst tólf mánuðir líði milli reglubundinna breytinga á leigufjárhæð og að slíkar hækkanir fari ekki umfram hækkun vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Markmiðið er aukið húsnæðisöryggi og fyrirsjáanleiki fyrir leigjendur. Varar við að áhrifin verði þveröfug Seðlabankinn telur almennt jákvætt að draga úr sjálfvirkri og tíðri vísitölutengingu. Bankinn varar hins vegar við því að takmarkanir á leiguhækkunum geti dregið úr hvötum til útleigu, viðhalds og endurbóta. Afleiðingin geti orðið minna framboð, lengri biðlistar og lakara húsnæði. Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, er meðal undirritenda umsagnar bankans um leigubremsuna. Bankinn varar við minna framboði leiguhúsnæðis og styttri leigusamningum.Vísir/Vilhelm „Áhrifin myndu þá ganga gegn markmiðum frumvarpsins,“ segir í umsögninni. Þá geti leigusalar brugðist við með styttri leigusamningum. Bankinn telur jafnframt að breytt tíðni leiguhækkana ein og sér hafi að öðru óbreyttu ekki áhrif á verðbólgu til lengri tíma. Hann gagnrýnir einnig að takmarkanirnar eigi að ná til atvinnuhúsnæðis án fullnægjandi skýringa. Sex umsagnir og skiptar skoðanir Við vinnslu fréttarinnar höfðu sex umsagnir verið birtar á vef Alþingis. Þar koma fram ólíkar áherslur: BSRB styður frumvarpið, SVÞ leggst gegn því og óhagnaðardrifin leigufélög óska eftir breytingum. SVÞ, Samtök verslunar og þjónustu, vilja að frumvarpið verði dregið til baka eða endurunnið að miklu leyti. Samtökin telja leigubremsu geta veitt núverandi leigjendum tímabundið skjól en dregið úr útleigu og fjárfestingu, þannig að kostnaðurinn lendi á þeim sem síðar komi inn á markaðinn. Þau vilja sérstaklega undanskilja atvinnuhúsnæði. Brynja leigufélag fagnar aukinni vernd leigjenda en varar við áhrifum á rekstur óhagnaðardrifinna leigufélaga. Öll lán félagsins séu verðtryggð og greiðslur af þeim hækki mánaðarlega. Standi leigutekjur í stað í tólf mánuði þurfi að fjármagna mismuninn með skammtímalánum. Félagið vill áfram geta breytt leigu samhliða verðtryggðum lánum eða að fundin verði önnur lausn. Námsmannafélög óttast verri kjör Félagsstofnun stúdenta, Byggingarfélag námsmanna og Félagsstofnun stúdenta Akureyri skila sameiginlegri umsögn. Félögin taka undir markmið frumvarpsins en vilja undanþágu til að halda mánaðarlegri vísitölutengingu. Þau segja að annars þurfi að reikna vænta verðbólgu og áhættuálag inn í upphafsleigu. Það geti sérstaklega bitnað á námsmönnum sem leigja stutt, svo sem skiptinemum. Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík vill einnig halda undanþágu fyrir óhagnaðardrifna aðila sem reka námsmannaíbúðir. Félagið telur afnám hennar geta leitt til óhagstæðari kjara fyrir námsmenn og bendir á að leigusamningar þeirra séu jafnan styttri og íbúðaskipti tíðari en almennt gerist. BSRB vill flýta gildistöku BSRB styður frumvarpið og fagnar auknum fyrirsjáanleika og hömlum á vísitöluhækkanir. Bandalagið vill þó að breytingarnar taki gildi sem fyrst, en fyrirhuguð gildistaka er 1. júlí 2027. BSRB bendir á að samráði um frumvarpið hafi verið sleppt vegna hættu á að leigusalar hækkuðu leigu áður en lögin tækju gildi. Þeim gefist engu að síður rúmur tími til slíkra hækkana fram að næsta sumri.
Seðlabankinn Alþingi Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fasteignamarkaður Húsnæðismál Leigumarkaður Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Sjá meira