Fótbolti

Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skila­boða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Grímuklædda veru með keðjusög að eyðileggja merki Barcelona sem fór mikið fyrir brjóstið á forráðamönnum Katalóníufélagsins.
Grímuklædda veru með keðjusög að eyðileggja merki Barcelona sem fór mikið fyrir brjóstið á forráðamönnum Katalóníufélagsins. EPA/MOHAMMED BADRA

Forráðamenn spænska fótboltaliðsins Barcelona hafa kært Paris Saint-Germain til Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, vegna myndrænna skilaboða sem stuðningsmenn franska félagsins sýndu fyrir leikinn í Meistaradeildinni á þriðjudag.

Þegar leikmennirnir gengu inn á völlinn fyrir upphafsflautið héldu stuðningsmenn fyrir aftan annað markið á Parc des Princes uppi risastórum borða sem sýndi grímuklædda veru með keðjusög að eyðileggja merki Barça.

Undir stóðu orðin: „Fjöldamorð að parísarsið.“

Auk þess var flugeldum beitt til að líkja eftir neistunum sem stóðu af keðjusöginni þegar hún hjó í merki Barcelona.

Heimildarmaður ESPN í herbúðum Barcelona sagði myndmálið bæði „óhóflega árásargjarnt og móðgandi“.

Á vellinum vann PSG 4-2 sigur í skemmtilegum leik tveggja af liðum Evrópu sem eru í hvað bestu formi.

Desiré Douré, Lucas Hernández, Vitinha og Fabián Ruiz skoruðu allir þegar PSG vann sinn þriðja sigur í þremur leikjum í Meistaradeildinni á tímabilinu.

Fyrir Barcelona, sem jafnaði tvisvar með mörkum Xavi Espart og Lamine Yamal, var þetta fyrsta tap tímabilsins og batt það enda á ellefu leikja sigurgöngu liðsins.

Bæði lið eiga stóra leiki fyrir höndum í sínum deildum um helgina.

PSG mætir Lyon í toppslag í frönsku deildinni á meðan Barcelona tekur á móti erkifjendunum í Real Madrid í El Clásico.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×