Telja Arion geta losað um 100 milljarða með sömu reglum og norrænir bankar
Arion gæti bundið um hundrað milljörðum króna minna í eigið fé ef íslenskir bankar byggju við sambærilegar eiginfjárkröfur og aðferðafræði við áhættumat útlána og tíðkast á Norðurlöndunum, að sögn forstjóra Stoða. Í kynningu fyrir hluthöfum fjárfestingafélagsins sagði hann ljóst að íslensk skattlagning og eiginfjárreglur dragi verulega úr samkeppnishæfni bankanna og þá um leið virði þeirra á hlutabréfamarkaði.
Tengdar fréttir
Beint tap ríkisins af lægra virði banka vegna sértækra skatta yfir 60 milljarðar
Samkeppnishæfni íslenska fjármálakerfisins er léleg, meðal annars út af miklum opinberum álögum, og bankaskattar valda því að virði eignarhluta ríkisins í bönkum er um 64 milljörðum lægra en ella til viðbótar við óbein áhrif í formi minni hagvaxtar og fjárfestingar, að sögn bankagreinanda. Hann telur að vaxtamunur banka sé „stórlega ofmetinn og rangtúlkaður“ í almennri umræðu og kemst að þeirri niðurstöðu að Arion sé talsvert undirverðlagður á markaði.
„Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann
Bankastjóri Arion banka segir það „eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun svokallaðs bankaskatts árið 2020 í vasann, líkt og framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar fullyrti um helgina.
Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða
Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur.
Stjórnendur Arion segja „hamlandi starfsumhverfi“ kalla á meiri vaxtamun
Æðstu stjórnendur Arion gagnrýndu „hamlandi starfsumhverfi“ hér á landi á aðalfundi bankans í gær, sem þýddi að vaxtamunur þyrfti að vera hærri en ella til að ná fram sambærilegri arðsemi og erlendir keppinautar þeirra, og kölluðu eftir því að stjórnvöld myndu „jafna leikinn.“ Íslenskir bankar greiddu í fyrra um 70 til 80 prósent meira í heildarskatta borið saman við aðra norræna banka, að sögn bankastjóra Arion.
Séríslenskar kvaðir á bankakerfið eru komnar „út fyrir öll velsæmismörk“
Það „blasir við“ að þörf er á meiri hagræðingu á fjármálamarkaði enda eru séríslenskar kvaðir, sem kosta heimili og fyrirtæki árlega yfir fimmtíu milljarða, komnar „út fyrir öll velsæmismörk“ og skaða samkeppnisstöðu íslenskra banka gagnvart erlendum keppinautum, fullyrðir forstjóri Stoða, stærsti einkafjárfestirinn í Arion og Kviku. Hann brýnir jafnframt nýja ríkisstjórn til að setja sérstök lög um nokkur lykilverkefni í virkjunarframkvæmdum til að vinna hratt upp orkuskortinn eftir langvarandi framtaksleysi í þeim efnum, að öðrum kosti muni innistæðulítil kaupamáttaraukning síðustu ára að lokum leiðréttast með gengisfalli og aukinni verðbólgu.
Vandinn ekki krónan heldur kvaðir á banka
Benedikt Gíslason, nýr bankastjóri Arion, segir fjármögnun fyrirtækja eiga eftir að færast á skuldabréfamarkaðinn. Bankarnir ekki samkeppnisfærir. Stjórnvalda að svara hvort skoða eigi sameiningar.