Viðskipti innlent

Hækkun kílómetragjaldsins muni skila sér beint út í verð­lagið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Benedikt segir að gleymst hafi að taka með í reikninginn áhrifin af hækkuninni á vöruflutninga.
Benedikt segir að gleymst hafi að taka með í reikninginn áhrifin af hækkuninni á vöruflutninga.

Hækkun kílómetragjalds á flutningabíla mun skila sér beint út í verðlag hér á landi að sögn framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. Hann segir breytingarnar koma á óheppilegum tíma þegar heimsmarkaðsverð olíu sé í hæstu hæðum, gleymst hafi að líta til áhrifa hækkunarinnar á vöruflutninga.

Þetta er meðal þess sem fram kom í Reykjavík síðdegis þar sem rætt var við Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. Hann segir fyrirhugaðar hækkanir á kílómetragjaldi fela í sér mun meiri breytingar fyrir einkaaðila í flutningageiranum heldur en almenna bílaeigendur.

„Eins og þetta er sett fram þá skiptist þetta í tvennt. Þetta er annars vegar þessi 5,2 prósent verðlagsuppfærsla sem að er gerð og svo sérstök tekjuaðgerð, eins og þeir kalla það, og samanlagt nær þetta 15,9 prósent hækkun á kílómetragjaldi milli ára. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa sagt að það muni ekki um krónu, þetta er einhver rúm króna á kílómeterinn á fólksbílum. En það sem að mínu mati hefur gleymst að líta til er að í vöruflutningunum er þetta miklu stærri breyting.“

Ertu með dæmi?

„Já. Algengasta ækið í flutningum á Íslandi er sem sagt dráttarbíll svokallaður með eftirvagni og þá er þetta 26 tonna bíll, átján tonna vagn. Og breytingin á milli ára á kílómetragjaldinu í tilviki slíkra bíla verður 27,5 prósent og ég hef séð dæmi um aðrar samsetningar á ækjum þar sem þetta er komið upp fyrir þrjátíu prósent og ég sá reyndar ekki betur en að í minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu hefði komið fram að í tilviki hópferðabíla væri þetta komið bara hátt í fjörutíu prósent mun á milli ára.“

Benedikt segir að fyrir vörubílstjóra sem aki með dagvörur um 120 þúsund kílómetra á ári geti þetta munað tveimur milljónum á ári í aukinn rekstrarkostnað. Hann segir Bílgreinasambandið hafa fengið leyfi hjá flutningafyrirtæki á markaði til að skoða ársreikning þess fyrir 2024 og skala hann upp ef breytingin hefði verið búin að taka gildi þá.

„Þá sáum við að afkoma fyrirtækisins fór úr einhverjum þremur milljónum í plús niður í tuttugu milljónir í mínus. Sem segir okkur það að þetta mun náttúrulega rata út í verðlagið. Þar eru svona nokkrir þættir sem verða fyrir áhrifum af þessu. Í fyrsta lagi hækkar kostnaðru við flutning á dagvöru, varahlutum eða hvað það er út á land. Það hækkar líka flutningskostnaður hérna á landi, til dæmis á flutningi á ferskum fiski frá Vestfjörðum á suðvesturhornið.“

Hann segir það alvarlegasta í málinu vera það að um verulega óheppilegan tímapunkt sé að ræða. Frá janúarbyrjun hafi verð á dísilolíu hækkað um 42 prósent og verð á flugvélaeldsneyti um nánast sömu tölu.

„Þannig að sá sem er að flytja út ferskan fisk eða hvað eigum við að segja, frá fiskvinnslu einhverstaðar á Vestfjörðum, hann tekur annars vegar á sig hækkunina á flutningskostnaði vegna kílómetragjaldsins, svo vegna hækkana á disilolíu og í þokkabót hækkun á vöruflutningaverði vegna flugs erlendis.“

Og allt saman ratar þetta út í verðlagið?

„Það ratar annars vegar út í verðlag hjá almenningi, það endar alltaf þannig og hinsvegar í þrengri stöðu útflytjenda vara.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×