Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Rakel Sveinsdóttir skrifar 19. október 2026 07:00 Alfreð stóð fyrir viðamikilli könnun á meðal atvinnuleitenda og vinnuveitenda. Guðmundur Jónsson, vöruþróunarstjóri Alfreðs, segir mjög afdráttarlausa niðurstöðu að umsækjendur vilja fá upplýsingar um laun, vinnuveitendur að fá færri umsóknir sem ekki eiga erindi. Vísir/Anton Brink Á viðburðinum Ráðningasúpa Alfreðs í síðustu viku voru kynntar athyglisverðar niðurstöður könnunar sem Alfreð stóð fyrir í sumar.
Þar kemur til dæmis fram að samkeppni um hvert starf hefur aukist um 30%, mun færri störf eru auglýst nú – á sama tíma og fleiri eru í atvinnuleit. Tæplega 5.500 einstaklingar og um 450 fyrirtæki tóku þátt og það er áhugavert að sjá og heyra hvaða óskir eru þær sömu hjá bæði atvinnuleitendum og vinnuveitendum og hvar ber helst í milli. „Umsækjendur vilja til dæmis fá meira gagnsæi þannig að fólk sjái hvar ráðningarferlið er statt,“ segir Guðmundur Jónsson, vöruþróunarstjóri Alfreðs. „Á meðan vinnuveitendur vilja færri umsóknir sem ekki standast kröfur samkvæmt auglýsingu eða eiga ekki við.“ Raddir umsækjenda Könnunin var kynnt undir yfirskriftinni „Gott báðum megin“ Enda rýnir hún í bæði raddir atvinnuleitenda og þeirra sem eru að auglýsa eftir fólki. Samtalið var tekið á mannamáli og spurt: Hvað einfaldlega er að pirra fólk mest? Það sem var efst á blaði hjá atvinnuleitendum er tvíverknaður í umsóknarferlinu. „Það sem kemur mjög skýrt fram er krafa um gagnsæi og virðingu fyrir tíma fólks,“ segir Guðmundur. Að þurfa að slá inn sömu upplýsingarnar aftur og aftur þegar þær eru þegar til staðar í ferilskránni er eitt af því sem pirrar fólk allra mest – yfir helmingur nefndi þann tvíverknað sérstaklega.“ Í þessu samhengi útskýrir Guðmundur að þótt flest störf séu auglýst í gegnum kerfi Alfreðs sé það ekki svo að allar umsóknir fari í gegnum það kerfi. „Þegar umsókn er send inn í gegnum kerfi Alfreðs þarf fólk ekki að skrá aftur upplýsingar um sjálft sig heldur er nóg að nánast smella bara á einn takka,“ segir Guðmundur en bætir við: „Við höfum hins vegar ekkert um það að segja ef umsóknir eiga að sendast inn í gegnum aðrar vefsíður en þá er ekki ólíklegt að fólk sé að upplifa sig skrá sömu upplýsingarnar aftur og aftur.“ Athygli vekur hversu margir nefna kynningarbréfið. „Það er eins og umsækjendum sé farið að finnast þetta kynningarbréf ansi þreytt. Að það þurfi að sérskrifa kynningarbréf fyrir hverja umsókn,“ segir Guðmundur en tiltekur þó að ekki allir vinnuveitendur fari fram á kynningarbréf með umsókn. Það sem stendur auðvitað upp úr hjá atvinnuleitendum er hversu margir fá ekki svör við umsóknum sínum. „Fólk vill einfaldlega fá að vita hvort viðtalsferli sé hafið eða hvort búið sé að ráða, í stað þess að sitja bara og bíða,“ segir Guðmundur. Í nútímasamfélagi er fólk orðið vant því að geta fylgst með stöðu á öllu. Þessi tíðarandi kemur vel fram í könnuninni því 80% umsækjenda geta séð hvar umsóknin er stödd hverju sinni og 71% óska eftir stuttri endurgjöf ef umsókn er hafnað.“ 80% umsækjenda vilja aukið gagnsæi þannig að fólk viti hvar ráðningaferlið sé statt, til dæmis hvort viðtöl séu hafin og svo framvegis - frekar en að vera bara í bið. Alfreð Raddir vinnuveitenda Eftir að hafa rýnt í raddir atvinnuleitenda er nokkuð fróðlegt að heyra hvað vinnuveitendur segja. Því þar kemur nokkuð vel fram að margar umsóknir sem fólk er að senda inn eiga í raun ekki við. Rúmlega 58% fyrirtækjanna nefna að yfirferð og skimun umsókna sé stærsti tímaþjófurinn í ráðningaferlinu. „Vandinn hjá fyrirtækjunum snýst oft ekki um skort á umsóknum, heldur að fá of mikið af umsóknum sem eiga hreinlega ekki erindi í starfið eða standast ekki lágmarkskröfur,“ segir Guðmundur og bætir við: „Þegar umsóknarferli eru orðin stafræn og aðgengileg eykst tilhneigingin til að sækja um nánast hvað sem er, jafnvel frá fólki sem býr erlendis eða hefur ekki tilskilin réttindi. Fyrirtækin eru því að drukkna í handavinnu við fyrstu síun í stað þess að geta einbeitt sér að viðtölum og mannlega þættinum.“ Þá vekur athygli að um 35% vinnuveitenda kvarta yfir því að eiga erfitt með að ná sambandi við umsækjendur. „Þetta tengist líklega breyttri samskiptahegðun milli kynslóða. Yngra fólk svarar síður ókunnugum símtölum og notar hefðbundinn tölvupóst með öðrum hætti en eldra fólkið. Samskiptin færast í önnur boðskiptaform og þar þurfa ráðningakerfi og atvinnurekendur að mæta breyttum veruleika og laga tæknina að honum.“ Guðmundur segir flest á óskalista vinnuveitenda nú þegar í ferli hjá Alfreð, þar á meðal að nota gervigreindina til að sía umsóknir. En er ekki hætta á að gervigreindin útiloki þá suma aðila og spegli þannig til dæmis kynjahalla í atvinnulífinu eins og lengi hefur verið þekkt í sumum störfum? „Nei, því við vinnum með sérþjálfuð líkön sem eru eingöngu fóðruð á starfstengdum hæfnisgögnum en ekki almennum spjallgögnum. Öllum persónugreinanlegum upplýsingum, eins og kyni og aldri, er haldið utan við ferlið til að koma í veg fyrir hlutdrægni,“ svarar Guðmundur. Áhugavert er að sjá hversu margir vinnuveitendur hafa áhuga á persónuleika- eða hæfnismati. „Vinnuveitendur upplifa stundum að umsækjendur tali hæfni sína eða getu langt upp fyrir það sem í raun er,“ segir Guðmundur en nú þegar er unnið að því að mæta þessu. „Það liggur fyrir að við munum sækja sjálfvirkt sveinspróf, meistarabréf og starfsleyfi, en við eigum eftir að skoða hvernig hægt verður að nálgast hluti eins og ökuskírteini rafrænt eða frekari hæfnismöt.“ Helsta ósk vinnuveitenda er að geta síað út umsóknir hraðar í upphafi og nýta þá gervigreindina til að flokka umsóknir.Alfreð Laun auglýst og fleiri breytingar Guðmundur segir jákvætt að í raun beri ekkert svo mikið á milli atvinnuleitenda og vinnuveitenda. „Óskalistar beggja aðila snúast um sömu meginatriðin. Atvinnurekendur vilja sjálfvirk skilaboð og tól sem hjálpa við síun á meðan umsækjendur vilja einfaldari skráningu og skýr svör. Við erum nú þegar komin í prófanir með sérhæfðar lausnir sem bera saman kröfur starfsauglýsinga og hæfni umsækjenda.“ Þá er eitt atriði ótalið enn, en það er ósk 82% umsækjenda um að launabil komi fram í auglýsingum um störf. „Þetta er mjög afdráttarlaus vilji,“ segir Guðmundur og bætir við: „Í Evrópu er þegar komin reglugerð sem skyldar fyrirtæki í auknum mæli til að birta launabil og þótt það hafi ekki verið ríkjandi hefð hér á landi bendir allt til þess að þróunin verði í þessa átt.“ Guðmundur segir tæknina eiga eftir að mæta mörgu sem nú þegar sé á óskalista atvinnuleitenda og vinnuveitenda, ekki síst með tilkomu gervigreindar. Þá segir hann kröfu atvinnuleitenda um meira gagnsæi í takt við tíðarandann og þá þróun að almennt sé fólk vel upplýst um allt í dag.Vísir/Anton Brink Stóra málið sé að nýta niðurstöðurnar nú til að bæta ráðningarferlið og koma til móts við þær raddir sem fram koma í könnunni. „Markmiðið er að láta tæknina taka við grófvinnunni og tvíverknaðinum svo ráðningarferlið verði ekki að svörtum kassa. Þegar fyrirtækin losna við tímafreka handavinnu skapast meiri tími til að svara öllum umsækjendum fljótt og eiga persónuleg samtöl við þá sem henta starfinu. Þannig verður þetta raunverulega gott báðum megin.“
Starfsframi Vinnumarkaður Tengdar fréttir Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Að sögn Geirlaugar Jóhannsdóttur, ráðgjafa og stjórnendamarkþjálfa hjá Hagvangi, eru um átta þúsund manns í atvinnuleit í augnablikinu. Sá hópur sem telur til fólks sem hefur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði telur að jafnaði innan við tvö þúsund manns. Enda atvinnuleysi almennt lágt hlutfallslega á Íslandi miðað við víða erlendis. 24. september 2026 07:03 Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ „Við lifum oft eftir væntingum sem enginn annar er að gera til okkar. Þetta sjáum við sérstaklega sterkt hjá karlmönnum. Það er kynjamunur í upplifun á atvinnuleysi og karlar eiga erfiðara með þetta andlega. Þeir eru með þessa innbyggðu hugmynd: „Ég vil vera til staðar, ég verð að skaffa“. En oft er makinn ekkert að gera þá kröfu,“ segir Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafaþjónustunnar Vinnuvís. 23. september 2026 07:02 Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu „Í Evrópu tekur um 22% vinnuafls að sér giggverkefni og hlutfallið er enn hærra í Bandaríkjunum,“ segir Elsa Thorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð ehf., og bætir við: 16. september 2026 07:01 Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi „Gigghagkerfið er að vaxa hægar á Íslandi en á Norðurlöndunum og í Evrópu, sem að mínu mati skýrist meðal annars af því að hér er þríhliða vinnumarkaðsmódelið enn svo sterkt,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar. 17. september 2026 07:03 Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ „Fríin mín voru eins og hjá flestum. Kannski einhverjar tvær vikur í senn. Og þá hugsaði ég oft með mér: Hvað það væri nú frábært að geta verið í fríi í svona tvo mánuði á launum og geta gert það sem manni langar til,“ segir Jón Jósafat Björnsson, framkvæmdastjóri Dale Carnegie um tímabilið þegar hann varð atvinnulaus um árið. 19. september 2024 07:02 Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Sjá meira
Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Að sögn Geirlaugar Jóhannsdóttur, ráðgjafa og stjórnendamarkþjálfa hjá Hagvangi, eru um átta þúsund manns í atvinnuleit í augnablikinu. Sá hópur sem telur til fólks sem hefur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði telur að jafnaði innan við tvö þúsund manns. Enda atvinnuleysi almennt lágt hlutfallslega á Íslandi miðað við víða erlendis. 24. september 2026 07:03
Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ „Við lifum oft eftir væntingum sem enginn annar er að gera til okkar. Þetta sjáum við sérstaklega sterkt hjá karlmönnum. Það er kynjamunur í upplifun á atvinnuleysi og karlar eiga erfiðara með þetta andlega. Þeir eru með þessa innbyggðu hugmynd: „Ég vil vera til staðar, ég verð að skaffa“. En oft er makinn ekkert að gera þá kröfu,“ segir Ólafur Kári Júlíusson vinnusálfræðingur og eigandi ráðgjafaþjónustunnar Vinnuvís. 23. september 2026 07:02
Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu „Í Evrópu tekur um 22% vinnuafls að sér giggverkefni og hlutfallið er enn hærra í Bandaríkjunum,“ segir Elsa Thorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð ehf., og bætir við: 16. september 2026 07:01
Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi „Gigghagkerfið er að vaxa hægar á Íslandi en á Norðurlöndunum og í Evrópu, sem að mínu mati skýrist meðal annars af því að hér er þríhliða vinnumarkaðsmódelið enn svo sterkt,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar. 17. september 2026 07:03
Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ „Fríin mín voru eins og hjá flestum. Kannski einhverjar tvær vikur í senn. Og þá hugsaði ég oft með mér: Hvað það væri nú frábært að geta verið í fríi í svona tvo mánuði á launum og geta gert það sem manni langar til,“ segir Jón Jósafat Björnsson, framkvæmdastjóri Dale Carnegie um tímabilið þegar hann varð atvinnulaus um árið. 19. september 2024 07:02