Viðskipti innlent

„Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Anton Einar Mikaelsson var fyrsti karlmaðurinn til að versla í Skims á Íslandi.
Anton Einar Mikaelsson var fyrsti karlmaðurinn til að versla í Skims á Íslandi. Vísir/Einar

Það var margt um manninn í Kringlunni í hádeginu í dag þegar tímabundin verslun Skims var opnuð. Tugir biðu í röð fyrir utan áður en dyrnar voru opnaðar og bættist í eftir því sem leið á. Viðmælendur fréttastofu voru mjög spenntir fyrir komu merkisins til landsins. Fyrsti karlmaðurinn til að versla var líklegast sá allra spenntasti. 

Á örfáum árum hefur Skims orðið eitt vinsælasta merkið í undir-, aðhalds- og lífsstílsfatabransanum, ekki síst vegna frægðar stofnanda merkisins, Kim Kardashian. Kim stofnaði Skims árið 2019 og seldi fyrirtækið upphaflega eingöngu aðhaldsfatnað. 

Kim Kardashian er andlit Skims. Vísir/Einar

Hraður vöxtur en einnig gagnrýni

Á síðustu árum hefur fyrirtækið vaxið gífurlega og er það metið á rúmlega sex hundruð milljarða króna. Kardashian hefur leitt flestallar markaðsherferðir fyrirtækisins og selur það nú einnig nærföt, náttföt, kjóla og fleira.

Þrátt fyrir vinsældirnar hefur fyrirtækið reglulega verið gagnrýnt, meðal annars fyrir að gefa í skyn að konur þurfi aðhaldsfatnað til að líta vel út. Þá þykja vörur fyrirtækisins ansi dýrar.

Tók sinn tíma

Eigendur Mathilda standa að opnun tímabundnu verslunarinnar í Kringlunni. Hún var opnuð klukkan tólf í dag þar sem verslun Húrra Reykjavík var áður. 

„Við erum búin að vera að hugsa um þetta í smá tíma. Við höfum lengi haft áhuga á Skims og nú er þetta að verða að veruleika. Þetta tók smá tíma en tókst á endanum,“ sagði Aldís Thea Hákonardóttir, markaðsstjóri Fata og skóa, í samtali við fréttastofu nokkrum mínútum áður en verslunin var opnuð. 

Aldís Thea Hákonardóttir er konan sem kom Skims til landsins.Vísir/Einar

Hún segist eiga von á því að lagerinn seljist upp á næstu dögum en á von á fleiri sendingum að utan. 

„Ég er mikill aðdáandi Skims. Það er ótrúlega gaman að sjá alla hérna fyrir utan,“ segir Aldís. 

Mætti tveimur tímum fyrir opnun

Fremst í röðinni var Máney Líf Hákonardóttir Bridde. Hún var mætt tveimur tímum fyrir opnun.

„Ég hef aldrei verslað við Skims áður. Ég er að spá í að kaupa náttföt og stuttermaboli. Þetta er mjög góð verslun og þægilegt efni,“ sagði Máney við fréttamann aðspurð hvers vegna hún væri til í að bíða í tvo tíma eftir opnuninni. 

Röðin hafði lengst þegar fréttastofa fór af svæðinu um korteri eftir opnun.Vísir/Einar

Dýrt en þess virði

Fyrsti viðskiptavinurinn var ekki til í viðtal en viðskiptavinur númer tvö var það. Það var hún Ronja. 

„Ég elska Skims. Mér finnst geggjað að þetta sé komið til Íslands, mér finnst það æði. Ég keypti mér náttföt og bol,“ sagði Ronja. 

En er þetta dýrt?

„Já, en þess virði,“ sagði Ronja um leið og hún lagði símann upp að greiðsluposanum. 

Sumir voru fljótir að finna sér það þá langaði í á meðan aðrir eyddu tíma í að skoða. Vísir/Einar

Sýndi fréttamanni brækurnar

Í fyrsta hollinu sem hleypt var inn í búðina voru eingöngu stelpur. Nokkru síðar mætti fyrsti karlmaðurinn. Fréttamaður gerði ráð fyrir því að hann væri að versla fyrir kærustu sína en svo var ekki, enda selur Skims líka karlmannsföt. 

„Ég er að kaupa fyrir sjálfan mig. Ég elska Skims. Ég er í Skims-nærbuxum. Þetta eru þægileg föt, þægilegasta dót sem ég hef verið í,“ sagði Anton Einar Mikaelsson og sýndi fréttamanni að hann væri vissulega í nærbuxum frá Skims. 

Anton Einar Mikaelsson var fyrsti karlmaðurinn til að versla í Skims á Íslandi.Vísir/Einar

Anton kvaðst elska föt og gaf í skyn að hann hefði þróað með sér ákveðna kaupfíkn. 

„Ég ætla að kaupa mér nærbuxur, buxur, peysu, kannski náttbuxur. Ég ætla að reyna að kaupa mér eins mikið og ég get. Ég þekki nokkra stráka sem eiga Skims og segja að þetta séu þægilegustu nærbuxur sem þeir eiga,“ segir Anton. 

Þetta er ekki bara fyrir gellur?

„Alls ekki. Hvað meiniði? Strákar, það er 2026 sko,“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×